Tíminn - 06.01.1974, Side 7
Leifur Aðalsteinsson sölumaður viö sýningarborö hjö Skrifvéiinni að Suðuiiandsbraut 12. Lcifur hefur
starfað í 12 ár hjá Skrifvélinni og hefur orðið mikla reynslu I kynningu og sölu skrifvéla og reiknivéla.
Leifur er meistari i skriftvélavirkjun.
þekkja. Annars var þetta ekki
löggilt iðngrein þá, og varð það
ekki fyrr en 1952, að mig minnir.
Þá fór ég i Iðnskólann.
Það var nú ekki fjölmennt hjá
Ottó Michelsen þá, þvi við vorum
aðeins tveir, sem unnum þarna,
fyrir utan forstjórann. Sigurður
Hákonarson hét hinn maðurinn,
og hann vinnur núna hjá Lands-
simanum. Um þetta leyti var
þetta ekki orðið fag, eins og sést
af þvi, að þegar ég fór i Iðnskól-
ann, var enginn skriftvélavirki
útskrifaður þaöan, og vorum við
Sigurður Guðmundsson fyrstu
mennirnir, sem tókum próf i
þessu fagi frá Iðnskólanum.
Þegar námi lauk, hélt ég áfram
að vinna fyrir' Ottó, og var
samtals hjá honum i sjö ár á
verkstæði hans.
Seldi bilog steypti moldar-
gólf — stofnaði nýtt fyrir-
tæki
Þetta var fjölbreytt nám. Ég
var til dæmis tæpt ár úti i Sviþjóð
að læra, en siðan vann ég, sem
áður sagði, áfram i þrjú ár á
verkstæðinu. Þá hætti ég hjá
honum og seti sjálfur upp verk-
stæði á Bergstaðastræti 3, i gamla
Sjúkrasamlagshúsinu, sem
margir nefna svo.
Þarna var ég einn i fyrstu og
hafði enga verzlun, heldur aðeins
viðgerðir. Ég varð að byrja á að
moka út moldargólf og steypa i
það. Reyndar hafði nú verið
trégólf i húsinu, en það var alveg
búið. Þarna kom ég mér svo fyrir
af litlum efnum. Það vildi mér til
happs, að ég átti ágætan bíl. Ég
gat selt hann með talsverðum
hagnaði, eins og þá var oft hægt,
og fyrir peningana setti ég á stofn
verkstæðið. Ég átti eitthvað af
verkfærum, annað keypti ég
notað.
SiS — fyrsti kúnninn —
engin umboð laus
— Það var ósköp litið að gera
hjá mér til að byrja með. Það
kom þetta ein og ein vél til
viðgerðar. Fyrsti kúnninn var
held ég Sambandið (SIS), eða
vélar, sem ég fekk til viðgerðar
frá Sambandinu. Ég held, að þær
hafi verið frá Samvinnutrygging-
um. Þeir voru örugglega minir
fyrstu viðskiptavinir, og eru nú
minir beztu viðskiptavinir, eða i
hópi þeirra alla vega.
Þetta gekk ósköp rólega fyrst i
stað. Ég var fjávana, og þótt ég
setti mig ekki i skuldir meðan ég
var að læra þetta, þá var ég alveg
auralaus, þannig séð, og hver
króna fór i að byggja upp verk-
stæðið, en það gekk hægt.
Það má segja, að vinnan hafi
alltaf verið að aukast. Um raun-
verulega þróun var þó ekki að
ræöa. Það var þétt setinn bekkur-
inn. öll gömlu umboðin voru setin
fyriraf ágætum fyrirtækjum, það
er að sega mekaniskar skrifvélar
(til aðgreiningar frá elektrónisk-
um). Ég leitaði mikið og skrifaði
eftir umboðum, þvi mér varð
ljóst, að rekstur svona fyrirtækis
varö að byggjast að verulegu
leyti á ákveðinni gerð véla, sölu á
þeim og þjónustu við kaupendur
og notendur þeirra.
Bylting í reiknivélum —
Canon
Árið 1970, eða um það leyti,
varð bylting i skrifvélatækninni.
Þá komu elektróniskar skrifvélar
i stað gömlu mekanisku vélanna.
Þó er ef til vill réttara að segja,
að þessi nýja tækni hafi farið að
ryðja sér tií rúms hér á landi. Þá
skynjaði ég — og eflaust margir
fleiri, — að nú voru að opnast
nýjar leiðir. Ég skrifaði hreint út
um allt til framleiðenda elektrón-
iskra reiknivéla. Ég held að
Japanir hafi verið frestir i þessari
nýju tækni, og ég pantaði
ailmargar gerðir af vélum hjá
ýmsum fyrirtækjum. Það varð
ofaná, að ég tók Canon — umboðið
japanska. Mér leizt bezt á þeirra
vélar og þurfti ekki að sjá eftir
þvi, þvi þeir eru með langmestu
framleiðsluna, og þá beztu.
Reiknaö á broti úr sekúndu
— Hver er munurinn á mekan-
iskri vél og elektróniskri?
— Það er reginmunur á þessu
tvennu. Hraði elektrónisku vél-
anna til dæmis miklu meiri.
Dæmi, sem tæki mekaniska vél
eina minútu að vinna niður, leysir
sú elektróniska á broti úr
sekúndu. Þar að auki vinnur hún
algjörlega hljóðlaust (að
reikningnum), en hávaði verður
alltaf nokkur frá mekaniskri vél.
1 þriðja lagi er það svo verðið.
Elektrónisk vél er miklu ódýrari i
framleiðslu, og sem dæmi má
taka, að sjálfvirkur calculator
kostaði 60.000 krónur, en elek-
trónisk vél, sem skilar sama
verkefni, kostar 18-20.000 krónur.
Þetta verður til þess, að
mekanisku vélarnar munu al-
gjörlega detta út af markaðnum
hér. Auðvitað verður þeim haldið
gangandi enn um hriö. Bæði var
mikið magn til af þessum vélum i
landinu og i birgðum hjá seljend-
um, en þær munu ekki verða
endurnýjaðar með mekaniskum
vélum, þegar þær hafa sungið sitt
siðasta vers.
Ný tækni og þjónusta viö
elektrónískar vélar
— Hvað um viðgerðarþjón-
ustu?
— Hún er fyrir hendi hér. Ég
hefi hins vegar ekkert lært sér-
staklega á elektróniskar vélar.
Ég er hættur viðgerðum, þvi ég
hef i svo mörgu öðru að snúast.
Þvi miður, liggur mér oft við að
segja. Hins vegar hafa skriftvéla-
virkjar tileinkað sér þessa nýju
tækni. Við hér sendum menn til
náms ytra á hverju ári. Það er
nauðsynlegt, þótt það sé
kostnaðarsamt. Einnig er byrjað
að kenna þessa tækni i Iðnskólan-
um.
1 upphafi varð nokkur
ágreiningur um það, hverjum
bæri að annast viðgerð og þjón-
ustu á elektrónisku vélunum.
Útvarpsvirkjar gerðu kröfu til
þeirra, en það varð úr, að skrift-
vélavirkjar fengu þessi nýju tæki
á sitt fagsvið.
Það má segja, að nú höfum við
þessa tækni á okkar valdi, ráðum
við þessi tæki. Þetta kostaði
vitanlega mikið fé, þvi að verk-
stæðin urðu að kaupa allskonar
mælitæki og búnað til að sinna
þessum nýju vélum. Það er ekki
hægt að gera við þessi tæki nema
hafa oscilloscope og digitalmæla,
svo eitthvað sé nefnt. Nú kennir
Iðnskólinn undirstöðuna i þessum
fræðum, og fyrirtækin senda
menn til útlanda til að kynnast
nýjungum.
— Hvað með tölvur?
— Þessar stóru tölvur hafa
aldrei heyrt undir þetta fag. Þró-
unin virðist vera sú, að sérstakir
menn iæri að umgangast þær og
þjóna, þótt auðvitað sé þelta
skylt, og sami hlutur að mörgu
leyti. Sumir þessara sérfræöinga
hafa þó réttindi sem skriftvéla-
virkjar, en þeir sinna ekki öðru en
stórum tölvun.
Canon á islandi
— Hvað með Canon-umboöiö?
— Canon-verksmiðjurnar
sendu mér samning til undir-
skriftar á gamlársdag árið 1970,
og þá undirritaði ég samninga.tók
að mér umboð fyrir þá og pantaði
fyrstu vélarnar. I marz 1971
komst svo sala á þessum vélum i
fullan gang, og þá um sumarið
var stór sýning á skrifstofutækj-
um i Laugardalshöllinni. Þar var
Valgarður Valgarðsson og Pétur Óskarsson skriftvélavirkjar, að störfum I viðgeröaverkstæöi Skrifvélarinnar.
Margskonar elektrónísk mælitæki eru nú nauðsynlcg til viögeröa á skrifstofuvélum. Skrifvélin sendir menn á hverju ári til náms og starfs-
þjálfunar ytra, til aö fylgjast með nýjungum. lslenzk fyrirtæki f skrif vélatækni hafa þegar náð valdi á rafeindatækni þcirri, er notuð er viö
elektrónískar reiknivélar, sem nú hafa rutt sér til rúms á þessu sviði.