Tíminn - 06.01.1974, Side 10
10
TÍMINN
Sunnudagur 6. janúar 1974
Sló tvær flugur
í einu höggi
fyrir þrem
árum
— náðisérí
konu og
stofnaði
eigið
fyrirtæki
Pétur og Valdls.
VIÐ erum i heldur seinna
lagi meö kynningu á brúð-
hjónum nóvembermánað-
ar, en nú hefur Timinn á
annað ár heiðraö brúðhjón
mánaðarins með fjárupp-
hæð. Þegar vinningurinn
var dreginn út i þetta skipti
kom upp hlutur ungra
hjóna úr Vogunum, en það
er i fyrsta skipti, sem vinn-
ingurinn hafnar á Suður-
nesjum. Það ætlaði að
ganga erfiðlega að ná í
brúðhjónin til að tilkynna
þeim úrslitin. Síminn á
heimili þeirra hjóna var úr
sambandi og húsbóndinn lá
veikur. En skilaboðin kom-
ust sina boðleið og þau eru
núna stödd hérna hjá okkur
og ætla að leyfa okkur að
forvitnast dálítið um sína
hagi.
Brúðguminn Pétur Pétursson
er 21 árs, sonur hjónanna Péturs
Jónssonar húsvarðar og Huldu
Biering. Pétur er fæddur i Vogun-
um, þarsem hann hefur alið allan
sinn aldur og vill hvergi annars
staðar búa.
Brúðurin Valdis Skúladóttir er
19 ára, dóttir Skúla Vigfússonar
bifreiðarstjóra og Ingu Ingólfs-
dóttur. Valdis er aftur á móti
fædd og uppalin i Keflavik, en
fluttist i Vogana þegar þau Pétur
stofnuðu heimili.
Látlaus gifting
— Við giftum okkur núna i
september og það var séra Björn
Jónsson i Keflavik, sem vigði
okkur segir Valdis. — Þetta var
látlaus athöfn, engir gestir viö-
staddir, aðeins við tvö og prestur-
inn og orgelleikari. Vigsluvott-
orðið var handskrifað. Um kvöld-
ið buðu tengdaforeldrar minir,
okkur i mat.
Þar sem ég hef aldrei átt þvi
láni að fagna að hlotnast vinning-
ur, hvorki i happadrætti eða öðru
sliku þar sem heppnin ræður,
leikur mér íorvitni á að vita
hvernig fólk bregzt við slikri
lrétt.
— Við vorum auðvitað himinlif-
andi, segir Pétur.
— £cg var á leið heim akandi
innan úr Reykjavik, þegar ég sé
systur Péturs standandi á
tröppunum heima hjá sér veif-
andi, heldur Valdis áfram. Ég
trúði henni nú ekki l'yrst i stað en
l'lýtti mér heim til að segja Pétri
fréttirnar. Hann var þá i svefn-
rofunum, en glaðvaknaði þegar
hann heyrði tiðindin.
— É)g get ekki neitað þvi, að
hugurinn var búinn að hvarfla til
vinningsins, heldur Valdis áfram.
Það birtist lika i Timanum i þess-
um sama mánuði brúðarmynd af
bróður minum og við gáfum bæði
vinningnum hýrt auga, ég varð þó
hlutskarpari i þetta skiptið.
Stofnar eigið
fyrirtæki
— Tómstundaráhugamál?
— Það er fljótsagt segir Pétur.
Þungavinnuvélar, gröfur og önn-
ur slik tæki.
— Hann fer jafnvel út á kvöldin
og ekur um til að skoða gröfur
skýtur Valdis inn i, en Pétur held-
ur áfram.
— Frá þvi að ég lauk gagn-
fræðaprófi hefur allur minn áhugi
beinzt að þungavinnuvélum, og
ég stefndi alltaf að þvi að stofna
mitt eigið fyritæki með slikar vél-
ar. Fyrir þremur árum rættist sá
draumur. Ég, ásamt tveim vinum
minum og eiginkonum þeirra,
stofnuðum hlutaféiagið Land-
verk. Áður hafði ég unnið á gröfu i
nokkur ár.
Hjá þeim félögum hefur verið
mikið að gera i allt sumar eins og
i öðrum greinum islenzks at-
vinnulifs. Og Valdis hefur sömu
sögu að segja, og svo margar aðr-
ar heimavinnandi eiginkonur
þegar atvinnulifið blómstrar, að
hún sér varla mann sinn nema yf-
ir blánóttina. Þetta unga fyrir-
tæki hefur haft nóg að gera. Vest-
mannaeyingar sóttu mikið til
Keflavikur á sinum tima og Við-
lagasjóður reisti sin fyrstu hús
þar. Landverk h.f. tók að sér að
annast frágang á lóðum þessara
Viðlagasjóðshúsa.
— Við mokuðum grunnana og
erum núna að leggja gangstéttir
við húsin og ganga frá öðru þvi,
sem þarf að gera fyrir lóðirnar,
annað en það, sem bæjarsjóður
sér um. Við erum þegar búin með
38 hús, en húsin verða 55.
Lentu i hrakningum
i Landmannalaugum
Það kemur upp úr kafinu, að
þau hjónin eru mikið áhugafólk
um ferðalög og hafa ferðazt mikið
hér innanlands. Þau eru i félagi
við hóp af ungum áhugaferða-
löngum af Suðurnesjum. Til þess
að fullnægja þessari ferðaþrá
hafa þau keypt sér Bronco, þvi
það er ekki auðveldasta leiðin,
sem þrædd er á þessum ferðalög-
um. Torfærur og erfið yfirferð
freista þeirra mest, og i siðustu
útivist sinni urðu þau að súpa
seiðið af þvi, þvi að þá komust
þau heidur betur i hann kappann.
Mönnum er enn i fersk minni
..glæfraferð" ferðafólks i Land-
mannalaugar- i siðasta mánuði.
þegar átján ungmenni tóku sig
upp og ætluðu að dveljast þar frá
laugardegi til sunnudags. Það fór
öðru visi en ætlað var, og á mánu-
degi var farið að óttast um þau
flugvél var send af stað.til að
svipast um eftir þeim, og Slysa-
varnarfélagið sendi út leitar-
flokk.
— Hvernig stóð á þvi að þið vor-