Tíminn - 06.01.1974, Qupperneq 11
Sunnudagur 6. janúar 1974
TÍMINN
11
~' í+A. 'v.
Kristján Ólafsson leiðbeinir þeim hjónum við val á borðstofuhúsgögnum. Pétur grandskoðar hér stól og
spyr úr hverju hann sé, því það á ekki aö kaupa köttinn i sekknum.
uð ekki með talstöð i bilnum Pét-
ur?
— bað kom ekki til af góðu. Við
vorum búin að reyna mikið til að
verða okkur úti um eina slika, en
allt kom fyrir ekki. Það var
ómögulegt að fá nokkra, hvorki i
Reykjavik, Kópavogi né Kefla-
vik.
— Ykkur hefur ekki orðið meint
af volkinu?
— Nei, við vorum á átta bilum
og á leiðinni slóst sá niundi i hóp-
inn. Tveir kennarar frá Hvolsvelli
röktu slóð okkar. Við dvöldumst i
upphituðum bilunum aðfaranótt
mánudagsins og um morguninn
ókum við af stað og keyrðum
stanzlaust i einn og hálfan sólar-
hring, þar til að við komum heim
á þriðjudagskvöld. Það var ekk-
ert farið að óttast um okkur, þvi
að við höfðum sagt aðstandend-
um okkar, að þeir gætu allt eins
búizt við okkur á miðvikudegi, þvi
að það væri allra veðra von á
þessum árstima. Það var niundi
billinn, sem fjaðrafokinu olli, þvi
að bróðir stúlku, em var i þeim
bil, hóf leitina.
Eiga einn son
Andrés Skúla
Svo kemur hin sigilda spurning,
hvar og hvenær kynntust þið?
— Við vorum búin að þekkjast i
eitt ár þó að það yrðu aldrei náin
kynni, segir Valdis, það var ekki
fyrr en á dansleik fyrir þremur
árum, að alvara fór að færast i
leikinn. Sambandið endaði með
trúlofun og i desember i fyrra
stofnuðum við okkar eigið heim-
ili.
Þau eiga eitt barn, tveggja ára
son. Andrés Skúla. Ég get ekki
stillt mig um að spyrja, hvort þau
séu búin að gera áætlun um það
hvað fjölskyldan eigi að verða
stór.
— Viö erum nú ekki búin að
gera neina fjölskylduáætlun, seg-
ir Pétur og hlær við, en ætii börn-
in verði ekki tvö til þrjú að lokum.
Valdis kink-ar kolli til samþykkis.
Hún á sjálf átta systkini og finnst
það heldur stór hópur að annast.
Við höldum spjallinu áfram og
talið berst að stöðu konunnar i
þjóðfélaginu, og ég nota tækifærið
og spyr Pétur hvort hann sé rauð-
sokkur.
— Neei, segir hann og dregur
seiminn. Annars veit ég það ekki,
ég er samþykkur mörgu af þvi,
sem þær hafa fram að færa. —
Það hefur litið reynt á það, gripur
Valdis fram i, — Ég hef verið
heima allan okkar búskap, en
hann hefur unniö úti, svo það er
ekki hægt að ætlast til þess að
hann taki þátt i heimilisstörfun-
um, þegar hann kemur heim á
kvöldin.
Ætla að búa áfram
i Vogunum
Þau eru svo heppin að hafa
aldrei átt við nein húsnæðisvand-
ræði að etja, eins og svo margir,
sem eru að stofna heimili. Þau
leigja hjá föður Péturs og þegar
ég spyr, hvort þau séu ekkert að
hugsa sér til hreyfings með
ibúðarbyggingu, eins og annað
ungt fólk, hrista þau bæði höfuðið
og segja að þeim liggi ekkert á.
— Þegar við byggjum verður
það i Vogunum, segir Pétur. Val-
dis litur á hann kimin, en leggur
ekkert til málanna. Hún er þegar
búin að láta að þvi liggja, að
henni finnist nú dálitið einangrað
þarna.
Keyptu sér
borðstofuhúsgögn
Þau fengu borðstofuskáp i
brúðargjöf og hafði alltaf langað
til að eignast borðstofustóla og
borðstofuborð, sem passaði við
skápinn. Þau voru þvi ekki lengi
að ákveða, hvað þau ætluðu að
gera við peningana. Það var ekið
beint upp i Vörumarkað i Ármúla.
Þar var mikið úrval af borðstofu-
húsgögnum, sem voru grand-
skoðuð. Að lokum urðu þau ásátt
um að velja fallegt sex manna
sænskt beisað borðstofusett úr
birki, sem var hægt að stækka
með aukaplötu. Húsgögnunum
var siðan pakkað niður. Það var
rétt svo að Valdis og Pétur gátu
meö lagi smeygt sér inn i Broncó-
inn eltir að húsgögnunum hafði
verið haglega fyrirkomið. inni i
bilnum. Eftir að við höfðum kvatt
þau hjónakornin og óskað þeim
góðs gengis óku þau af stað suður
i Voga. kr—
Hross f óskilum
í Kjósarhreppi er i óskilum:
1. Rauð hryssa 4-5 vetra, mark vaglrifa
framan vinstra. Er með merfolaldi.
2. Rauðstjörnótt hryssa vetur gömul,
ómörkuð.
Hreppstjóri Kjósarhrepps.
OSRAM
ljós úr hverjum
glugga
OSRAM
vegna goeðanna
Vinningsnúmerin
i happdrætti Styrktarfélags vangefinna
eru:
1. R 21950 Mercury Comet
2. R 27870 Volvo 144
2. R 6529 Saab 196
4. R 22181 Peugeot 104
5. Ö 1424 Sunbeam
Styrktarfélag vangefinna