Tíminn - 06.01.1974, Page 12
12
iTÍMINN
Sunnudagur 6. janúar 1974
Framtíðarhús
þverrandi hei
Efst á baugi meðal þjöða heims
er orkuskorturinn. Má raunar
segja, að augu almennings, og
það sem mikilvægara er, vald-
hafa einstakra rikja um allan
heim, hafi fyrst opnazt svo um
munaði fyrir þvi, hve uggvænlegt
ástand orkumála er nú, með yfir-
lýsingu oliufurstanna arabisku
um takmörkum oliuframleiðslu
sinnar, að loknu striði Araba og
tsraelsmanna i haust. Það mál
þarf ekki að rekja frekar, en lik-
lega er þetta eitt af örfáum strið-
um mannkynssögunnar, sem
orðið hefur verulega til góðs að
einhverju leyti.
Slfkt er flóð alls kyns fræði- eða
vlsindarita á markaðinn nú á
dögum, að það er að kæfa menn.
Fólk stendur ráðvillt og veit ekki
hverju það á að trúa, en oftast fer
svo, að það setur undir sig haus-
inn og fer sina gömlu götu, án
þess að gefa gaum, að „þessum
furðulegu vlsindakenningum”.
Verst er, að ráðamönnum fer
yfirleitt eins, þeir eru jú aðeins
mannlegir. Þótt mönnum sé sagt,
að hindrun og hætta sé á næsta
leiti, paufast þeir áfram i myrkr
inu, unz þeir reka sig óþyrmilega
á steinvegginn.
Auðvitað eru sérfræðingar mis-
vitrir eða misáreiðanlegir eins og
gerist og gengur. En þegar ekki
er einu sinni tekið tillit til niður-
staða margra ára alþjóðlegra
rannsókna, er einstefnuaksturinn
orðinn of alvarlegur. Þetta á við
um rannsóknir á auðlindum og
orkuforða, sem svo fjölmargt
annað. Það þurfti hvorki meira né
minna en strið til i þessu tilfelli.
Nú viðurkenna hinar ýmsu
þjóðir þó fyrirhyggjuleysið i
orkumálum, annað væri lika
nautaspeki. Við tslendingar meg-
um þakka fyrir að eiga svo ein-
dæma orkurikt land, sem raun er
á. En getum við litið með svo
mikilli hreykni yfir farinn veg i
nýtingu orkuauðlinda okkar? Það
er anzi vafasamt. Sem dæmi næg-
ir að benda á, hvilika firna
óframsýni það sýnir, að ekki skuli
hafa verið rannsökuð og siðan
beizluð fyrir mörgum árum þau
jarðhitasvæði hér á höfuðborgar-
svæðinu og Suðurnesjum, sem
kunn hafa verið, en látin liggja
ónotuð. Peningaleysi er vinsælt
viðkvæði, en hér er það engin af-
sökun. Að Hafnarfjörður og
Kópavogur t.d. skuli fyrst nú vera
I þann veginn að fá hitaveitu, —
það er lygilegt. Það er ekki einu
sinni hægt að hlæja að slikum
sofandahætti.
Meðan tekin hafa verið lán hjá
erlendum lánastofnunum til ólik-
legustu hluta, hefur miður verið
hugsað til nýtingar hinnar stór-
kostlegu orku, sem i landinu er,
þessarar höfuðforsendu tækni-
vædds þjóðfélags.
,, Ca mbridge-húsið’ ’
Hérlendis eru hús mjög óviða
hituð upp með jarðhita. Oliu- og
rafmagnshitun eru algengastar.
Orkuskorturinn kemur ekki sfzt
við húsahitunina, og I sumum
löndum hefur i sparnaðarskyni
verið farið fram á, að fólk lækki
hitastigið i húsum sinum um fáein
stig. Olian var orðin afar dýr og
stór kostnaðarliður við húshaldið
vlða um heim. Stórhækkun hefur
orðið á siðustu mánuðum eins og
menn vita, og engar horfur eru á,
að oltuverðið fari lækkandi i
framtiðinni, öðru nær. Það er þvi
ekki að ósekju, að leitað er á ný
miðí þessu sambandi. Þegar hef-
ur verið vikið að kostum þeim, er
Island býr yfir með tilliti til raf-
orku og jarðhita, en ekki eru
mörg lönd, sem búa yfir sliku.
A undanförnum árum hefur
mikið verið rætt um og kannað,
hvort takast mætti á hagkvæman
hátt að virkja þann langsamlega
mesta, augljósasta, og um leið
óþrjótandi orkugjafa, sem við
jarðarbúar njótum, þ.e. sólarork-
una. Takist þetta með góöu móti,
er óhætt að segja, að gjörbylting
verði I orkumálum heimsins.
Fleiri atriði komu tii greina i
sambandi við orkuvinnslu.
I arkitektaskólanum við
Cambridge University I Englandi
er nú verið að vinna að tilrauna-
húsi, sem á að verða algerlega
óháð hinum venjulegu orkugjöf-
um. Það verður hitað upp með
sólarorku, fær rafmagnið frá
vindknúnum rafli og gas úr sorpi.
Ef til vill er hér á ferðinni hús
framtiðarinnar.
Rannsóknir og tilraunir i þessu
sambandi hafa staðið yfir I tvö ár,
en húsið á að vera fullgert eftir 2-3
mánuði. Visindaráðið brezka
styrkir þessar tilraunir með
25.000 sterlingspundum og um-
hverfismálaráðuneytið með 6.000
pundum. Að likindum verður hús-
ið látið standa I ein þrjú ár, en að
þeim tima liönum ættu fullnægj-
andi niðurstöður að liggja fyrir,
í orku-
mi
sem hægt verður þá að hagnýta
almennt ef húsið gefur góða raun.
Sólarorka við húshitun
Flest venjuleg hús njóta nægi-
legrar sólargeislunar til þess, að
hún geti hitað þau upp og einnig
hitað upp vatn. Vandamálið er að
safna saman og varðveita þennan
sólarvarma. Vísindamennirnir I
Cambridge reyna ýmsar leiðir til
þessa. Ein þeirra hefur þegar
verið reynd á sólrikari breiddar-
gráðum. Aðalkjarni hennar er
bárujárnslag, sem málað er
svart, til þess að það sjúgi betur i
sig sólargeislana. Yfir bárujárn-
inu er siðan glerlag til þess að
halda varmanum betur inni, á
sama hátt og i gróðurhúsi.
Vatn, sem seitlar niður renn-
urnar á bárujárninu, flytur
varmann burt af plötunum. Með
þessari aðferð er hægt að fylla
geymi af heitu vatni á fáum
minútum á sólskinsdegi, einnig
að vetrarlagi.
Þegar ekki er sólskin, er hita-
söfnunin mikilvægust. Aðferðinni
svipar til næturhitunar, sem þeg-
ar þekkist i mörgum húsum, en
þar er hitarinn (oliu- eða raf-
magnskynding) notaður til að
hita upp vatn i geymi á næturnar.
Við sólarhitun er hins vegar um
að ræða lengra timabil, eða
nokkra daga i stað fárra klukku-
stunda.
Griðarstór vatnsgeymir
og blástur
í Cambridge-húsinu mun hita-
söfnunin að likindum fara þannig
fram, að griðarstórum, einagruð-
um geymi, sem rúmar allt að
40.000 íitra, verður komið fyrir
undir húsinu. Þegar skilyrðin eru
nógu hagstæð, á vatnið að renna i
hringrás gegnum söfnunarkerfið,
þar til það hefur náð um það bil 50
stiga hita (á Celsius). Þegar svo
þörf verður fyrir upphitun húss-
ins, verður loft látið blása yfir
geyminn, og þaðan i einstök her-
bergi.
Ekki þyrfti endilega að nota
vatn við varmasöfnunina. Cam-
bridge-flokkurinn hefur gert
tilraun með að nota lag af blaut-
um sandi, sem hitaður var með
krókóttum rörum, en gegnum þau
var leitt vatn, sem sólin hafði
hitað upp (eins og fyrr var lýst).
Til að minnka varmatapið sem
mest, er mikilvægt að notuð séu
hin beztu einangrunarefni. Vegg-
ir og þak eru klædd með allt að
tuttugu sentimetra þykku lagi af
glerull eða froðuplasti. Tvöfalt
gler verður að vera i öllum glugg-
um, og nokkrir þeirra einnig með
einangraða hlera til að draga úr
varmatapinu, þegar dimmt er.
,,Að sjóða graut með
sorpi”
Það regn, sem kemur af þak-
inu, á að vera nægilegt til að full-
nægja vatnsþörf hússins. En þvi
vatni, sem notað er i böð upp-
þvott og tauþvott, er safnað sam-
an og það hreinsað i litlu hreinsi-
kerfi, en i þvi er meðal annars
sandsia, og siðan fer það inn i
hringrásina aftur.
Sorpið og skólpið verður ekki
meðhöndlað i venjulegri rotþró,
heldur I nokkurs konar ,,melt-
ara”, þar sem bakteriurnar, sem
orsaka é.framhaldandi efnaklofn-
un, mynda gastegundina metan
(CH4).Þessa gasframleiðslu er
siðan hægt að auka með þvi að
setja úrgang úr eldhúsinu i
„meltarann”, eða sérstök efni,
eins og t.d. sojabaunir. A þennan
hátt á að vera hægt að framleiða
nægilegt gas til þess að sjá fyrir
þörfum eldhússins.
Þess ber að geta, að enda þótt
Framhald á 37. slöu. 1
ORT
Á
ÖXI
Ingimar Erlendur
Sigurðsson:
Ort á öxi
Ijoö
Bókaútgáfan Kjölur
1973
Ingimar Erlendur Sigurðs-
son hefur sent frá sér aðra
ljóðabók sina, en hún kemur á
eftir smásagnasafni og tveim
skáldsögum, sem athygli
vöktu á sinni tið. Þær komu út
árin 1965 og 1967 hjá Helga-
felli, en siðan hefur allt verið
hljótt þar til nú, að ort er á öxi
— áttatiu og fimm siður.
Fyrir okkur, sem lesum ljóð
helzt I rúminu, er Ort á öxi
nokkuð svakaleg bók. Hún er
full af klámi, speki og undar-
legri gleði — já og djöfullegri
ró og þú skelfur i bælinu undir
hrimaðri súð og heldur áfram
að fletta blöðum með áferju og
fara i löng ferðalög með skáld-
inu og öðrum villingi, sem
heitir Walt Withman, sem
Einar Benediktss. byrjaöi að
þýða fyrir mörgum árum, Úr
grasblöðum. Ingimar þýðir úr
hans XVI. bók. Svo eru i bók-
inni þýðingar á vögguljóði eft-
ir James Agee og eilifri þrenn-
ingu Tove Ditlevsen, sem er
með brókarsótt.
Annað er frumsamið
Ingimar Erlendur kemur
viða við i þessari bók. Undan
leirugu fjallinu brýzt skað-
ræðisfljót I sólbráðinni og
flæðir yfir bakka sina hams-
laust og litað af blóði og mold
það urgar i grjóti. Stundum
skilurðu ekki allt, þvi þú hefur
refsaugu núna og hjarta úr
steini. Þetta er handa börn-
um:
A meðan dreymdi mig
drauminn um okkur
ræktaði blóm á jöklum
lagði veg til stjarnanna
ntcð varanlegu slitlagi.
— En hver veit. Kannske
skiljum við það lika.
Oft er manni til efs, að ljóð-
formið sé hentugasta form
fyrir Ingimar Erlend. Ljóð
sumra eru nostursamleg, fin-
legt nudd við hin smáu form.
Aðrir segja sinn sannleik
kannske hvað bezt með
sprengiefni og loftborum, eða
fimmtiu tonna jarðýtum. Hið
beljandi fljót Ingimars er ekki
sem hentugast til virkjunar,
fullt af grjóti og skit og ýmist
flóir yfir bakka þess, eða það
er svo til þurrt, og þá standa
safnvirkin auð og vatnslaus.
Þá er komið haust. og
Bráðum kemur kvöldið
köldum skuggafingrum leik-
ur:
strýkur kyrrð
af strengjum fljótsins
Ingimar Erlendur Sigurðsson
dregur húm
úr djúpum hafsins
rauiar Ijóð
á lúður vindsins,
meðan vakir máni bleikur.
Og þótt ég legði
sóttheitt enni
á fjalhögg þitt
— hver þeirra megnaði
að lyfta þér?
spyr skáldið á einum stað,
þegar það ávarpar fallöxina
með geislandi egg.
Einna auðskildast virðist
mér, þegar Ingimar fer i
stjarnferðir með lesandann.
Hann gengur á konubrjóstum,
/þvi mjúkt skal það vera,
/blómálfar og stjarnguðir
voru hjú okkar, /unnu kaup-
laust upp i eilifðina.
Og allt i einu ferð þú að
skilja, að þetta er háleitur
skáldskapur, og þú verður að
hætta að lesa á nærbuxunum
undir kaldri súð. Þú verður að
ná andanum og drekka mikið
kaffi og reykja.
Með þessari bók sýnir Ingi-
mar Erlendur að hann getur
orðið mikið skáld. Sumt i bók-
inni hefði betur orðið eftir
heima, eins og prósaljóðin,
sem fullorðið fólk tekur naum-
ast alvarlega:
,,sagði Nixon rómklökkur
yfir likinu af Fyrrum forseta
striðsglæpanna:
Truman.........”
Og ég þakka Ingimari lest-
urinn og segi við hann úr hans
eigin bók:
Fætur þinir og hryggur
eru nógu sterkir til ,að bera
þig
nógu sterkir til að bera him-
ininn”.
Jónas Guðmundsson.