Tíminn - 06.01.1974, Qupperneq 21
Sunnudagur 6. janúar 1974
TÍMINN
21
Miklavatnsmýraráveitu og að
nokkru frá Flóaáveitunni.
Sakir þess hversu stór áveitu-
löndin voru og vel hagað til
túnræktar, var landið kjörið til
kúabúskapar.
Oft veitir litil þúfa....
Bændum á þessum slóðum var
auðvitað kunnugt um þau rjóma-
bú, sem efnt hafði verið til annars
staðar og hver tekjuaukning
fylgdi hærra smjörverði, en þó er
svo sagt, að atvik, sem henti einn
bændanna.og var i rauninni ekki
ýkja merkilegt, hafi orðið þess
valdandi að ráðist var i að koma á
fót Baugsstaðabúinu, svo
snemma.
Gisli Pálsson i Kakkarhjáleigu
var á ferð i Reykjavik eitt sinn
þeirra erinda að selja smjör, sem
hann hafði meðferðis i tveimur
kössum. Honum veittist erfitt að
koma út smjörinu. Einkum voru
menn tregir til þess að kaupa
smjörið úr öðrum kassanum, sem
i var hvitt vetrarsmjör, fáir vildu
lita við.
Gisli hét sjálfum sér þvi að
fara ekki fleiri ferðir slikar til
Reykjavikur.
Eftir þetta hóf hann að hvetja
menn eystra að bindast sam-
tökum um að stofna rjómabú og
fékk hann marga i lið með sér,
svo sem séra Einar Pálsson i
Gaulverjabæ og Ólaf Árnason
kaupmann á Stokksyeri, svo að
tveir séu nefndir. Þeir félagar
nutu stuðnings og ráða Sigurðar
ráðunauts Sigurðssonar um
fyrirkomulag búsins og fram-
kvæmdir allar.
Rjómabúið stofnað
Á stofnfundinn hinn 8. otk. 1904
komu 40 bændur og þar af
gerðust 29 félagar þegar i stað,
en siðar slógust 19 i hópinn, svo
að félagar i rjómabúinu urðu alls
48 fyrsta árið.
Félagsmenn hófust handa
þegar i stað. Reistur var rjóma-
skáli og búinn vélum. Vélarnar
voru knúnar með vatnsafli og af
þeim sökum þurfti að grafa 1400
metra langan vatnsveituskurð.
Búið var fullbúið og tók til starfa
hinn 21. júni 1905, og starfaði
siðan óslitið til ársins 1952 að
undanteknum árunum 1925 og
1927, en það ár mun hafa verið
nokkurt los á félagsskapnum
vegna mjólkur- og rjómasölu til
Reykjavikur.
Alit til ársins 1928 starfaði
rjómabúið aðeins á sumrin, en
eftir það allt árið.
Þegar Mjólkurbú Flóamanna
var stofnað árið 1929, komst
nokkur rót á starfsemi Baug-
staðabúsins, þvi að sumir félags-
manna gerðust aðilar á mjólkur-
búinu, en aðrir ráku rjómabúið
áfram.
t lögum þeim, sem rjómabúinu
voru sett á stofnfundinum 1904,
er svo á kveðið, að það sé sam-
eiginieg eign félagsnvanna og
hver félagi sé skyldur að taka til-
tölulegan þátt i kostnaði við stofn-
un þess og rekstur. Tilgangurinn
er að sjálfsögðu sá, að bæta verk-
un smjörsins, auka framleiðslu
og útvega eins góðan markað og
tök séu á.
Lýsing á rjómabúinu
Rjómaskálinn var og erhöfuð-
bygging búsins. Hann stendur við
svokallað Þórðarsker skammt
frá Baugsstaðaá. Láglent er um-
hverfis skálann, en útsýni fagurt
til fjallanna og hafsins með Vest-
mannaeyjar að útvörðum.
Rjómaskálinn er sex sinnum
sjö metrar að flatarmáli og við
hann var aukið skúr, sem siðar
var hækkaður tiljafns við húsið.
Þar er mótor, klefi til fitu-
mælinga og geymslu og á loftinu
vörugeymsla. Skálinn er nokkuð
grafinn i jörðu og veggir eru
klæddir með steinsteypu utanvert
til varnar gegn ágangi vatns.
Gólf er steinsteypt en húsgrindin
er úr viði klædd með bárujárni að
utan. en þiljuð innanvert. Skálinn
er þriskiptur. Þegar inn kemur
verður fyrst fyrir móttökuher-
bergi með suðupotti og áhöld
ýmis, tunnur og önnur ilát. Inn af
og suður af móttökuklefanum er
vinnuherbergi með hnoðunarvél,
strokk og öðru, semytil heyrir.
Austan á húsinu var stórt yfir-
fallshjól: og vatni veitt úr
skurðinum á hjólið. Það var á
járnás, sem gengur inn undir
gólfið, en á ásnum var hjól og lá
reim af þvi á ás uppi undir
loftinu.
Á þeim ási eru önnur hjól, sem
reimar hafa legið af og á
strokkinn og hnoðunarvélina. f
þessu herbergi er einnig þró, sem
fyllt er með saltvatni. þar sem
ostur var afvatnaður.
Hægra megin við móttöku-
klefann var ibúðarherbergi, búið
húsgögnum og hitað með kaminu.
Jón Gestsson frá Villingaholti
var yfirsmiður við skálasmiðina.
Kælihús var reist árið 1910. Það
var torfkofi litill eða 3 sinnum
fjórir metrar að grunnmáli. Hann
var að hálfu notaður undir is eða
snjó að vetrum, en að hálfu til
geýmslu á sm jörkvartelum .
Kofinn var notaður i einn áratug,
en siðar stækkaður og breytt i
geymsluhús.
Rjómabússtýrur voru alls sex.
Hin siðasta var Margrét Június-
dóttir, sem verið hefur rjóma-
bússtýra lengur en nokkur önnur
kona á fslandi. Eftir að MBF
kom til sögu stýrði hún einnig
pöntunarfélagi og rak ferða-
mannaverzlun, keypti egg og
seldi nauðsynjavörur ýmsar i
húsinu log það mun hafa
bjargað þvi, eftir að halla tók
undan fæti fyrir rjómabúinu sem
sliku.
Þess vegna stendur húsið nú
með öllum ummerkjum og tækja-
búnaði. Yfirfallshjólið hafði þó
fúnað niður, þegar áhugamenn
ýmsir tóku höndum saman til
þess að varðveita frá glötun þetta
rjómabú, sem nú stendur eitt eftir
hér á landi, en Ólafur Gunnars-
son .á Baugsstöðum, sem smiðaði
fyrsta yfirfallshjólið- 1936, hefur
nú smiðað nýtt.
Samtök rjómabúinu til
bjargar
Stofnað var árið 1970 félag, sem
hafði að markmiði að varðveita
rjómabúið og hlúa að þvi og gera
við það, sem látið hefði á sjá.
Aðilar að þvi voru Búnaðarsam-
band Suðurlands, Byggðasafn
Arnessýslu og búnaðarfélög
þeirra hreppa, sem rjómabúið tók
yfir. Stefán Jasonarson i Vorsabæ
er formaður, en ritari Helgi
tvarsson i Hólum og gjaldkeri
Páll Lýðsson i Litlu-Sandvik.
Lóðarréttindi létu Baugstaða-
bændur i té og félagið fékk búið til
eignar með öllum gögnum og
gæðum.
Alþingi veitti fimmtiu þúsund
krónur i þrjú ár til endurnýjunar
á búinu og hreppurinn, sýslan og
Búnaðarsamband Suðurlands
hafa einnig lagt fram fé.
Nú er þvinæst lokið viðgerðum
og það er von forkólfa félágsins,
að hægt verði að opna búið al-
menningi til sýnis á sumri kom-
anda.
— Það er von okkar að þetta
framtak minni komandi kynslóðir
á gengna tima, sagði Stefán
Jasonarson, þegar hann sýndi
blaðamanni Timans rjómabúið,
og verði þeim til nokkurs
Brúsar eins og þessi komu til sögu
upp úr 1920. Þeir voru kallaðir
,,læstir brúsar”, af þvi að þeim
inætti læsa, svo að ekki fór niður
rjóminn, þótt þeir dyttu á hiiðina,
og þóttu hin mestu þing. Tii voru
10, 15 og 20 litra brúsar.
Inn af móttökuherberginu er vélaherbergið. t horninu vinstra megin er strokkurinn, en fyrir miðri
mynd smjörhnoðarinn. Yfirfallshjólið knúði hjólin, sem sjá má uppi á veggnum til hægri. Þaðan lágu
svo rcimar yfir á hjólin á vélunum.
i þessum kofa var gcymdur ostur og is, sem höggvinn var af tjörnum f grenndinni og notaður til þess að
kæla, smjör að sumarlagi, eða eins lengi fram eftir sumri og hann entist.
fróðleiks, sem gefa sér tima til
þess að staldra hér og skoða búið.
Rjómabúinmörkuðu fyrstu vél-
væðinguna i islenzkum iand-
búnaði og þau eru tákn merkilegs
áfanga i sókn islenzkra bænda i
átt til aukinna framfara.
Timinn vill taka undir þessi orð
Stefáns. Við værum auðugri að
menningasögulegum minjum, ef
fleiri væri sama sinnis og þeir
félagar, sem standa að endur-
nýjung rjómabúsins að Baugs-
stöðum, hinu eina sinnar tegund-
ar á landinu.
HHJ tók saman.
Ljósmyndir:
Róbert
Ágústsson
GIös til filumælinga.
Það vantar ekki einu sinni trcskóna rjómabússtýrunnar.