Tíminn - 06.01.1974, Page 31
Sunnudagur 6. janúar 1974
TÍMINN
31
Hér sést atgeirinn mundaöur, og bifreiöin er skorin og rifin nifiur á nokkrum mlnútum
SÆNSK undrasmið getur bók-
staflega allt sem þarf til aft losa
fólk úr bila- og flugvélaflökum á
svipstundú. Hauði kross islands
liefur gefið slíkt tæki nokkrum
stofnunumhérá landi, og ætlazt er
til, að atgeir þessi sé i sjúkra- og
lögreglubifreiðuin og yfirleitt öll-
um björgunarfarartækjum.
A ráðstefnu Rauða kross ts-
lands um sjukraflutninga, sem
haldin var að Hótel Loftleiðum i
nóvember s.1., var kynnt tæki,
sem aðeins vegur tæplega 4 kg, en
er þó hreinasta undratæki við
björgunarstörf.
Sýning var haldin á tækinu i
porti Vöku, þar sem bifreið var
bókstaflega skorin og rifin i
sundur á nokkrum minútum af
einum manni, og sýndi hann,
hvernig hann lyfti framhluta bif-
reiðarinnar á svipstundu, svo að
hjól námu ekki við jörð. Luku
áhorfendur einróma lofsorði á
tækiö að sýningu lokinni.
Rauði krossinn færði siðan
Slökkviliði Reykjavikur, Lögregl-
unni i Reykjavik, Slysavarna-
félagi Islands, Almannavörnum
rikisins, Flugbjörgunarsveitinni
og Landssambandi hjálparsveita
skáta eitt tæki hverjum að gjöf til
kynningar.
Tækið er sænsk smið úr mis-
munandi hörðu síáliog getur bök-
staflega allt sem þarf til að losa
fólk úr bila: eða flugvélaflökum á
svipstundu. Það getur t.d. lyft
nokkrum tonnum án verulegs
átaks, sem það notar. Tækið
hefúr fengið islenzkt nafn og
kallast „björgunar-atgeir''.
Atgeirnum fylgir sérstaklega
hönnuð ól. sem m.a. er gerð til að
lyfta þungu hlassi ofan af manni.
Ætlazt er til að atgeir þessi sé i
öllum björgunarfarartækjum, og
hefur honum þegar verið komið
fyrir i öllum sjúkrabifreiðum i
Reykjavik. Rauði kross lslands
hefur séð um útvegun á atgeir
þessum. og kostar tækið 20 þús-
und krónur til kaupanda. —kr —
Atgeirinn mundaður
til björgunar
— Nýrri tækni beitt við björgun
fólks úr bifreiðum og flugvélum
(íat höggvið á þak.
Sigurður M. Þorsteinsson tekur við atgeirnum, gjöf Rauða kross islands til Flugbjörgunarsveitarinnar.
Þak skorið af án neistaflugs.
Virar, leiðslur og fl. skorið I
sundur.
Björgun manns, sem hefur
fcstst undir stýrinu.
Fáein sýnishorn af möguleikum
atgeirsins og fylgiólarinnar: