Tíminn - 06.01.1974, Blaðsíða 32
32
TÍMINN
Sunnudagur 6. janúar 1974
Þegar eldurinn slokknaðí
ÞAÐ eru mörg þúsund ár
síðan þetta gerðist. Dreng-
ur nokkur sat fyrir utan
stóran helli og var að
höggva tinnu með steinexi.
Drengurinn var sjö vetra
gamall.
Framundan hellismunn-
anum var dálíðtið rjóður í
frumskóginum og rann á
ekki alllangt i burtu.
,, Pabbi sjáðu, það er eld-
ur í steininum", kallaði
strákhnokkinn og hjó svo
hratt, að neistarnir flugu í
allar áttir.
Þrekvaxinn maður,
skeggjaður, með skinn um
lendar gekk fram úr hell-
inum, það var Wawa, höfð-
inginn.
,,Jæja Swar litli, þú hef-
ur veitt því athygli, að eld-
töfrar búa í steinunum",
sagði hann. ,,Það er ekkert
nýtt, skal ég segja þér, við
höfum allir vitað það fyrir
ævalöngu".
,, En hvers vegna búið þið
þá ekki til eld með hon-
um", spurði Swar undr-
andi.
,,Það getur enginn, jafn-
vel ekki mestu töfra-
menn", svaraði Wawa, ,,en
það væri óskandi. að við
gætum það, ekki sizt núna
undir veturinn". Að svo
mæltu gekk hann inn í hell
inn aftur til þess að líta
eftir ættarbálinu.
Um þessar mundir hafði
maðurinn ekki lært að gera
sér eld. Bálin, sem fjöl-
Swar og Wawa, faöir hans
Wawa dansaöi um hellinn meö Swar á háhesti
skyldurnar sátu við, áttu
rót sína að rekja til eldinga
og skógarelda, þangað
sóttu forfeður okkar
nokkrar logandi trjágrein-
ar og báru heim í kalda
hellana eða jarðholurnar,
þar sem þeir höfðust við.
Það var hið mesta óhapp,
ef eldurinn slokknaði.
Ungu stúlkurnar áttu að
gæta hans, þær tíndu sam-
an greinar og sprek og
stunduðu arininn með hinni
mestu kostgæfni.
Swar sat og hjó tinnu
sína. Hann hafði hugsað
sér að gera úr henni exi
mikla, því að hann ætlaði
að leggja stóran mammút
að velli, þegar honum yxi
fiskur um hrygg og var nú
farinn að búa sig undir
það. Allt í einu kom dreng-
ur hlaupandi innan úr
skóginum. AAóður og más-
andi kallaði hann: ,,Hirtir!
Það er stór hjartahópur
niðri við fljótið, þar sem
þeir eru vanir að drekka".
Á augabragði voru allir
komnir á kreik. Út úr hell-
inum hlupu karlar, konur
og börn. Veturinn var fyrir
DAN
BARRY
f