Fréttablaðið - 16.12.2004, Blaðsíða 24

Fréttablaðið - 16.12.2004, Blaðsíða 24
24 16. desember 2004 FIMMTUDAGUR Óvenjutíðir stórbrunar Eftir fremur rólega tíð hjáslökkviliðum landsinsfyrstu átta mánuði ársins hefur fjöldi bruna orðið í landinu síðan í september. Sumir þeirra hafa verið ansi stórir. Bruninn í Hringrás í Klettagörðum er ein- hver mesti bruni sem orðið hefur síðustu ár eða jafnvel áratugi. Jón Viðar Matthíasson, aðstoð- arslökkviliðsstjóri Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins, segir að fjöldi bruna komi í sveiflum. „Við vorum að ræða það í lok sumars hversu rólegt þetta ár hefði verið – svo kemur þessi gusa,“ segir Jón Viðar. „Fjöldi bruna er mjög sveiflukenndur eftir árum og ég held að það sé ekki hægt að skýra það á nokkurn hátt hvers vegna margir stórir brunar verði á stuttu tímabili. Ég held það sé algjörlega tilviljunum háð hvernig þetta gerist allt sam- an. Þetta hefur gengið svona í gegnum árin og er því engin nýlunda fyrir okkur.“ Í eldsvoðum haustsins hefur einn maður látist. Það var þegar íbúðarhús brann á Sauðarkróki í byrjun mánaðarins. Jón Viðar segir að eitt mannslát sé of mikið. Það fyrsta sem slökkviliðsmenn hugsi um þegar þeir komi á vett- vang bruna sé að ganga úr skugga um að fólk sé ekki í hættu og ef einhver sé í hættu sé öll áhersla lögð á að bjarga viðkomandi. Stundum sé það bara ekki hægt og það sé það versta sem slökkviliðs- menn lendi í. Jón Viðar segir að sá bruni sem standi upp úr hjá Slökkviliði höfuðborgarsvæðsins sé án efa bruninn í Hringrás. „Það var slíkur bruni að það liggur við að maður líki honum við náttúruhamfarir,“ segir Jón Viðar. „Það hafa líka orðið aðrir stórir brunar hérna á höfuðborgarsvæð- inu í haust eins og til dæmis brun- inn í vélsmiðjunni í Garðabæ. Þá var líka mikil hætta á ferðum þeg- ar eldurinn kom upp í timburhús- inu í Lækjargötu 2. Það gekk reyndar vel að slökkva eldinn þar en við erum alltaf með í maganum þegar við fáum tilkynningu um eld í timburhúsi í miðborginni. Það þarf svo lítið að gerast til að hann breiðist út í sambyggð hús og úr verði illviðráðanlegur bruni. Miðborgin er rosalega viðkvæmt svæði. Það er ekki langt síðan stór hluti miðborgar Björgvin í Noregi brann eftir að eldur kom upp í timburhúsi en það sýnir ágætlega hættuna sem getur skapast á svona svæðum.“ Þó að mikið hafi verið að gera hjá slökkviliðinu undanfarna mánuði segir Jón Viðar að nú sé sá tími að renna upp þegar ansi mikið geti orðið að gera. „Það hefur því miður oft verið mikið að gera hjá okkur um jólin og áramótin. Brunar á þessum árstíma eru yfirleitt mjög erfiðir að því leyti að þessi tími er svo viðkvæmur hjá fjölskyldum. Reyndar hafa líka komið ár þar sem nánast ekkert hefur verið að gera hjá okkur yfir jól og áramót og auðvitað vonum við að svo verði nú.“ Jón Viðar segir forvarnastarf undanfarinna ára hafa skilað sér. Jákvætt sé hversu meðvitað fólk sé almennt orðið um mikilvægi þess að vera með góð viðvörunar- kerfi. Þessi breyting sem orðið hafi á hugsunarhætti fólks hafi breytt miklu fyrir slökkviliðið og auðveldað starf þess. Til dæmis séu slökkvililiðsmenn nú yfirleitt komnir fyrr á vettvang en áður tíðkaðist. ■ VOTMÚLI BRANN TIL KALDRA KOLA Óvenjumargir brunar hafa orðið í landinu síðustu mánuði. Aðstoðarslökkvi- liðsstjórinn á höfuðborgarsvæðinu segir fjölda bruna koma í sveiflum. Hann líkir eldsvoðanum í Hringrás við náttúruhamfarir. Flutningabílstjóri sem átti leið í gegnum Blönduós aðfaranótt þriðjudagsins 28. september tilkynnti lögreglu um eld í atvinnuhúsnæðinu Votmúla. Þegar slökkvilið bæjarins kom á vettvang stóðu eldtungur upp úr þaki hússins. Var þá strax kallað á aðstoð frá slökkviliðinu á Skagaströnd og Hvammstanga. Með sam- hæfðum aðgerðum tókst að bjarga norð- urhluta hússins en óhjákvæmilega varð stærsti hluti þess eldinum að bráð. Mikill eldsmatur var í húsinu, þar sem mat- vælaverksmiðja Vilkó, pakkhús kaupfé- lagsins og Bílaþjónustan voru með starf- semi. Gaskútar sprungu með svo miklum hvelli að íbúar í nágrenninu vöknuðu. Lögregluna á Blönduósi grunar að kveikt hafi verið í húsinu. Enginn hefur hins vegar verið handtekinn og er málið í rannsókn. STÓRTJÓN Á SNÆFELLSNESI Ríflega sex hundruð fjár brunnu inni í fjárhúsi við bæinn Knerri í Breiðuvík á Snæfellsnesi mánudaginn 18. október. Mikið eignatjón varð því fjárhúsið eyði- lagðist, sem og hlaða og skemma með fjölda tækja. Aðkoman var hræðileg. Sumar kindur komust út en hlupu log- andi um, brunnar í framan og blindar. Aðstæður fyrir slökkvistarf voru óhemju- erfiðar vegna ofsaroks. Járnplötur fuku sem og hjálmar af slökkviliðsmönnum. Talið er að vindhraði hafi farið hátt í 60 metra á sekúndu í mestu hviðunum og þurftu slökkviliðsmenn um tíma að hörfa inn í tankbíl fullan af vatni. Óttuðust þeir jafnvel að bíllinn myndi velta þegar veð- urofsinn var hvað mestur. Talið er að eld- urinn hafi kviknað vegna hitnunar í heyi. BRUNINN Í HRINGRÁS Gríðarlegur eldur kviknaði í dekkjahaug við fyrirtækið Hringrás í Klettagörðum mánudagskvöldið 22. nóvember. Þegar mest lét tóku á fjórða hundrað manns þátt í samhæfðum aðgerðum björgunar- aðila og hafa ekki fleiri komið að slíkum verkum fyrr hérlendis. Um 80 slökkviliðs- menn stóðu í ströngu um langa hríð, yfir 30 lögreglumenn komu að verkinu, 90 björgunarsveitarmenn og 50 liðsmenn Rauða krossins auk fjölda annarra, eins og strætisvagna- og leigubílstjóra. Um sex hundruð íbúum í grennd við brunann var gert að yfirgefa heimili sín vegna eitraðs reyks sem barst frá eldsvoðanum. Skemma Hringrásar varð eldinum að bráð og allt sem í henni var auk þess sem talsverð verðmæti voru í dekkja- haugnum sem brann til kaldra kola. Starf- semi lá niðri í mörgum nærliggjandi fyrir- tækjum daginn eftir brunann og eigur sumra þeirra eyðilögðust vegna reyks og sóts. Matvælafyrirtæki í grenndinni þurfti að farga allri framleiðslu sinni. Ónefndar eru þær skemmdir sem urðu á heimilum. Talið er að kviknað hafi í út frá hleðslu- tæki fyrir lyftara sem var á lóðinni við dekkjahauginn. PILTUR LÉST Á SAUÐÁRKRÓKI Piltur um tvítugt fórst þegar eldur kom upp í einbýlishúsi við Bárustíg á Sauðár- króki sunnudagsmorguninn 5. desember. Annar piltur fannst meðvitundarlaus í húsinu og var hann fluttur á sjúkrahús Sauðárkróks og þaðan til Reykjavíkur á gjörgæsludeild. Stúlka og piltur sem einnig voru í húsinu sluppu ómeidd. Samkvæmi hafði verið í húsinu um nótt- ina og fannst pilturinn sem lést inni í stofu hússins þar sem talið er að eldur- inn hafi kviknað. Þegar slökkviliðið kom á staðinn var mikill eldur í húsinu. Slökkvi- starf gekk samt greiðlega fyrir sig. Húsið er talið nánast ónýtt. Eldsupptök eru ókunn. Mögulegt er talið að kviknað hafi í út frá sígarettu en hins vegar útilokar lögreglan ekki að um íkveikju hafi verið að ræða. ALLT ÓNÝTT Í NÓATÚNI Eldur kviknaði í hluta verslunar Nóatúns í JL-húsinu við Hringbraut 121 aðfaranótt laugardagsins 11. desember. Mikill eldur var í verslun í húsinu og um það leyti sem slökkvilið bar að garði sprakk gluggi í versluninni og gengu eldtungur út. Vel gekk að slökkva eldinn og tók það tiltölu- lega lítinn tíma. Engin slys urðu á fólki, enda verslunin mannlaus, en gjörsam- lega allt er ónýtt í versluninni. Talið er að eldurinn hafi kviknað út frá rafmagni við kjötborð verslunarinnar. ELDUR Í HJARTA MIÐBORGARINNAR Eldur kom upp á matsölustaðnum Kebabhúsinu í Lækjargötu 2 mánudags- kvöldið 13. desember. Allt tiltækt lið slökkviliðsins var sent á staðinn auk þess sem kallað var á slökkviliðsmenn á auka- vakt þar sem um timburhús í hjarta mið- borgarinnar var að ræða. Frá staðnum lagði mikinn reyk, sem barst bæði um Lækjargötu og Austurstræti. Húsið er samtengt fleiri timburhúsum, meðal ann- ars Hressingarskálanum. Rýma þurfti kaffihús í samliggjandi húsi vegna reyks. Greiðlega gekk að slökkva eldinn. Þó nokkurt eignatjón varð. VÉLSMIÐJA Í BJÖRTU BÁLI Vélvirki í Vélsmiðju Sigurðar Jónssonar var að slípa rör aðfaranótt þriðjudagsins 14. desember þegar neisti úr slípirokkn- um fór í tunnu fulla af olíu með þeim af- leiðingum að eldur blossaði upp. Vél- smiðir á staðnum gripu nálæg slökkvi- tæki en náðu ekki að slökkva eldinn. Húsið varð síðan alelda á örskammri stundu. Það tók slökkviliðið um klukku- stund að ráða niðurlögum eldsins. Tjónið er metið á tugi milljóna króna. Grind hússins er talin heil en nokkra mánuði mun taka að klæða það upp á nýtt og endurnýja það að innan. STÓRBRUNI Í KLETTAGÖRÐUM Einn mesti bruni á síðari árum kom upp við fyrirtækið Hringrás við Sundahöfn fyrir þremur vikum. Slökkvilið var við störf á vettvangi í tvo sólarhringa, svo erfiður var eldurinn viðureignar. BRUNAR HAUSTSINS Staður Hvenær Orsök Vélsmiðja Garðabæ 14. des. Neisti frá slípirokki Lækjargata 2 (Kebabhúsið) 13. des. Eldur í potti JL-húsið (Nóatún) 11. des. Rafmagn Íbúð á Sauðárkróki 5. des. Ókunn Klettagarðar 9 (Hringrás) 22. nóv. Hleðsla í lyftara Knörr á Snæfellsnesi 18. okt Hitnun í heyi Þjóðleikhúsið 15. okt. Eldur í potti Votmúli á Blönduósi 28. sept. Ókunn TRAUSTI HAFLIÐASON BLAÐAMAÐUR FRÉTTASKÝRING STÓRBRUNAR 24-25 (360°) 15.12.2004 20:08 Page 2
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.