Fréttablaðið - 16.12.2004, Blaðsíða 80
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 550 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 550 5005, fax: 550 5006, ritstjorn@frettabladid.is
Auglýsinga- og markaðsdeild: 550 5010 - fax 550 2727, auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is
VI Ð S EG J U M F R É T T I R SM Á A U G L Ý S I N G AS Í M I N N E R 550 5000 69%Vi› segjum fréttirFlestir velja Fréttablaðið!Fréttablaðið er sá miðill sem flestir Íslendingar veljasem sinn á hverjum degi*Vertu séður, auglýstu þar sem viðskiptavinur þinn er.* GALLUP NÓV. 2004
TRÚ
Mikil umræða hefur verið í fjöl-miðlum að undanförnu um trú
og trúarbrögð. Bæði hafa trúaðir og
vantrúaðir skipst á skoðunum. Mér
finnst trúin vera eins og kærleikur-
inn. Það er ekki hægt að rökræða um
þau. Fyrir mér sem trúuðum manni er
trúin persónuleg reynsla mín eins og
hjónaband mitt. Ég get ekki rifist við
einhvern í fjölmiðlum um það hvort
ég elski konuna mína eða hvort ég sé
hálfviti að treysta henni. Ég elska
konuna mína. Einhver sem elskar
hana ekki getur ekki skilið það. Við
værum ekki að ræða um það sama.
SÚ ÁST sem um er rætt er ekki ást.
Trúin er ekki endilega lógísk, ekki
frekar en vonin. Trú hefur ekkert
með vitsmuni eða menntun að gera.
Jesús var ekki menntamaður sem sló
um sig með kenningum og nöfnum
fræðimanna. Hann lifði það sem hann
sagði, ólíkt fræðimönnunum sem of-
sóttu hann. Þeir vissu allt og kunnu
allt en vantaði umburðarlyndi, mis-
kunnsemi og kærleika. Og það er svo-
lítið mikið.
TRÚ ER allt í kringum okkur og í
öllu sem við gerum. Við erum öll trú-
uð á margan hátt. Þegar ég vakna á
morgnana er ég uppfullur af trú. Ég
veit ekki hvernig dagurinn verður en
ég hef mínar vonir. Ég vil trúa því að
allt verði gott. Ég geri það ekki til að
blekkja mig eða til að gera mér lífið
of auðvelt. Við neyðumst til að notast
við trú því við vitum ekki allt. Hvern-
ig væri lífið ef það væri enginn kær-
leikur eða trú?
ÉG KOMST á þann stað í lífinu þar
sem enginn mannlegur máttur gat
hjálpað mér. Ég hafði reynt allt. Í
staðinn fyrir að gefast bara upp, sem
virtist það eina rétta í stöðunni, ákvað
ég að halda áfram í blindri von um að
ekki væri allt vonlaust. Og það reynd-
ist mér til happs. Ég fékk trú á Guð
og ekki bara hann heldur líka á sjálf-
an mig sem Guðs barn og annað fólk
sem Guðs börn líka. Þessi trú hefur
gert líf mitt hamingjuríkara en það
var áður.
EF KÆRLEIKURINN er einungis
lífeðlislegt fyrirbæri sem á sér rætur í
ótta mannsins við einsemd sína þá er
ég illa svikinn. En mér finnst það fyrst
og fremst leiðinleg kenning sem gerir
lítið úr andlegum mætti mannsins. Og
ef það væri sannað fyrir mér, með vís-
indalegum aðferðum, að kærleikurinn
væri ekki til þá mundi ég samt halda
áfram að trúa á kærleikann.
JÓNS GNARR
BAKÞANKAR
80 (60) Bak 15.12.2004 21:03 Page 2