Fréttablaðið - 13.01.2005, Síða 69
FIMMTUDAGUR 13. janúar 2005 37
N etið er ótæmandi brunnurvisku og óskynsamlegraupplýsinga. Með tilkomu
netsins breyttist þróun tónlistar
til frambúðar. Útgáfurisarnir
misstu töluverða stjórn á markað-
inum þar sem þeir gátu ekki leng-
ur sent allt niður þann farveg
sem þeir höfðu skapað. Tónlistar-
menn höfðu nú aðrar leiðir til
þess að ná til fólksins. Það virðist
því sem útgáfurisarnir hafi ekki
verið búnir að kortleggja neyt-
endur tónlistar eins vel og þeir
héldu. Margt bendir nefnilega til
þess að plötusala hafi ekki minnk-
að með tilkomu netsins, heldur
hafi hún dreifst á fleiri söluaðila.
Þannig hafa risarnir þurft að
draga saman segl sín, á meðan
fleiri minni fyrirtæki hafa komið
vörum sínum á framfæri.
Hver sækir í sinn heim. Þannig
er það líka með tónlist og á netinu
getur hver orðið sérfræðingur á
sínu sviði, sama hversu þröngt
það er. Þetta var erfiðara hér
áður fyrr, þar sem hingað bárust
aðeins nokkur tímarit á mánuði.
Fyrir 10 árum síðan leituðu
grúskarar t.d. nær eingöngu í
blöð á borð við NME, Melody
Maker eða Wire til þess að fá vís-
bendingar um ferskustu
straumana í tónlist. Í dag getur
hver sem er beintengt sig hafi
hann nettengingu heima hjá sér.
Oft er erfitt að vita hvar á að
byrja, en hér eru nokkrar ábend-
ingar.
Fréttir
Flest tónlistarblöðin eru með vefi
þar sem oftast er hægt að finna
fréttir. Eðlilega eru fréttirnar á
þeim oftast mjög bundnar því
hvar í heiminum skrifstofur
þeirra eru. NME.com er gott
dæmi um það, þar sem flestar
greinarnar eru um breskar sveit-
ir. Sumar þeirra eru nánast
óþekktar í öðrum löndum. Roll-
ingStone.com gefur svo ágætis
heildarmynd af því sem er að ger-
ast á yfirborðinu í Bandaríkjun-
um. Þungarokkarar geta fengið
sinn skammt á Kerrang.com. Vef-
urinn MTV.com gefur ágætis
mynd af heimi unglinga, en
„fréttir“ þar eru oftast bara orð-
réttar fréttatilkynningar frá
plötufyrirtækjum. Sjónvarps-
stöðin reynir svo að sinna foreldr-
um krakkanna með fréttaflutn-
ingi á VH1.com sem tengir aðal-
lega á fréttir annars staðar frá,
oft frá viðurkenndum fréttastof-
um svo sem BBC. Þeir sem hafa
frekar brennandi áhuga á tónlist-
armarkaðnum en tónlist ættu að
skoða Billboard.com.
Þeim sem líður best á yfirborð-
inu er bent á vefina Dot-
music.com, Soundgenerator.com
og Popmatters.com. Þeir kafa
ekki djúpt, en skila oftast fagleg-
um fréttum af þeim tónlistar-
mönnum sem eru ofarlega á sölu-
listum víðs vegar um heim. Vef-
urinn launch.yahoo.com er besti
meginstraumsvefurinn því hann
býður notendum upp á að skoða
myndbönd og að heyra lagabúta.
Þeir sem hafa einungis gaman af
kántrítónlist geta fundið sér
heimili á cmt.com.
Plötudómar
Með komu netsins hafa skapast
nokkrir miðlar sem eru byrjaðir
að hafa þó nokkur áhrif á mark-
aðssetningu tónlistar. Þar má
nefna Metacritic.com sem fjallar
líka um kvikmyndir og tölvuleiki.
Hann safnar saman dómum héðan
og þaðan, svipað og Rottentom-
atoes.com gerir við kvikmyndir,
og setur upp heildareinkunn.
Shakingthrough.net er svipaður
vefur gagnrýnenda sem tekur þó
enga heildareinkunn saman.
Aðalfréttastofa grúskaranna
er líklegast vefurinn Pitchfork-
media.com. Hann er vel skrifaður
og fréttaritarar þar eru duglegir í
því að skúbba öðrum með merki-
legar fréttir. Einnig virðist hann
vera gjörsamlega óspilltur af
„lögmálum“ stjórfyrirtækjanna.
Það sést best á því að vefurinn
gerir engar tilraunir til þess að
útiloka neitt, sama þótt útgefand-
inn sé stórlax, smálax eða graf-
lax. Vefurinn býðir einnig gestum
sínum að setja inn mp3 lög, sem
aðrir grúskarar geta svo kynnt
sér.
Almennt grúsk og íslenskir vefir
Annar slíkur grúskaravefur er
breski vefurinn Drowned-
insound.com. Þar eru fréttir
ferskar auk þess sem vefurinn er
frábær þegar kemur að því að
finna athyglisverða tónleika í
Bretlandi. Aðalstöð grúskaranna
hlýtur þó að vera Allmusic.com.
Þar er hægt að fá sögu, dóma og
upplýsingar um nær alla tónlist-
armenn heims.
Hér á Íslandi er þróunin komin
styttra. Vefurinn Rokk.is virðist
vera miðstöð yngri tónlistar-
manna sem vilja koma sér á
framfæri. Þar er þeim boðið að
setja lög sín á netið og fá við-
brögð á spjallþráðum. Vefurinn
mp3.is er eini íslenski vefurinn
sem gerir tilraunir til þess að
segja fréttir af íslensku tónlistar-
lífi á kantinum. Hiphop.is átti að
gera slíkt hið sama fyrir íslenskt
hiphopp en er sjaldan uppfærður.
Á hugi.is skiptast menn á skoðun-
um um tónlist, en oft fara þær
rökræður út í innantómt skítkast.
Ekki má svo gleyma vefnum ton-
list.is sem er fyrst og fremst tón-
listarbúð sem selur stök lög og
plötur. Þess vegna eru fréttirnar
þar oft tengdar því sem selja á
hverju sinni.
biggi@frettabladid.is
DOTMUSIC.COM Fyrir þá sem líður best
á yfirborðinu.
METACRITIC Fjallar um kvikmyndir og
tölvuleiki. Þar má finna dóma allstaðar að.
DROWNEDINSOUND.COM Þar eru fréttir ferskar auk þess sem vefurinn er frábær þeg-
ar kemur að því að finna athyglisverða tónleika í Bretlandi.
Þeir sem lifa og hrærast í tónlist sækja ekki lengur upplýsingar sínar á síður
dagblaðanna. Fréttir dagsins í dag á netinu eru fréttir dagblaðanna daginn eftir.
Góðir tónlistarvefir á netinu