Fréttablaðið - 20.06.2005, Blaðsíða 4
KAUP
Gengisvísitala krónunnar
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR
USD
GBP
EUR
DKK
NOK
SEK
JPY
XDR
65,58 65,90
118,79 119,37
79,47 79,91
10,68 10,74
10,09 10,15
8,56 8,61
0,60 0,60
95,95 96,53
GENGI GJALDMIÐLA 14.06.2005
GENGIÐ
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
SALA
111,8831 +0,90%
4 15. júní 2005 MIÐVIKUDAGUR
Skeggrætt um staðsetningu álvers á Norðurlandi:
Húnvetningar vilja stóri›ju
STÓRIÐJA Fulltrúar allra átta sveit-
arfélaganna í Austur-Húnavatns-
sýslu hafa sent ríkisstjórninni
áskorun þess efnis að Austur-
Húnavatnssýsla eða Skagafjarð-
arsýsla verði kynnt fyrir fjár-
festum sem vænlegur valkostur
varðandi staðsetningu fyrir stór-
iðju.
Jóna Fanney Friðriksdóttir,
bæjarstjóri Blönduósbæjar, seg-
ir að sveitarstjórnarmenn í Aust-
ur-Húnavatnssýslu telji að þeir
hafi orðið útundan í umræðunni
um stóriðju og með áskoruninni
vilji þeir koma sýslunni á fram-
færi.
„Við horfum einkum til um 50
hektara iðnaðarsvæðis við
Eyjarey sem er miðja vegu á
milli Skagastrandar og Blöndu-
óss og í 40 km fjarlægð frá Sauð-
árkróki. Það er mikill vilji á með-
al sveitarstjórnarmanna í sýsl-
unni fyrir að fá álver eða aðra
stóriðju í sýsluna og á döfinni er
að kanna hug íbúanna,“ segir
Jóna.
Austur-Húnvetningar telja að
nálægð við Blönduvirkjun eigi að
vega þungt varðandi staðsetn-
ingu stóriðju á Norðurlandi og
segja að allt frá því virkjunin hóf
starfsemi árið 1991 hafi orkan
verið flutt úr héraði til notkunar
á sunnanverðu landinu. -kk
Barnakláms leita› í
tölvum Íslendings
LÖGREGLUMÁL Lögreglan í Reykja-
vík rannsakar nú átta tölvur og
fjöldann allan af disklingum og
myndböndum sem gerð voru
upptæk heima hjá 32 ára manni í
gærmorgun vegna gruns um að
þar væri að finna barnaklám.
Rannsóknin tengist umfangs-
miklum aðgerðum gegn alþjóð-
legum barnaklámhring, en þeim
var stjórnað af Europol undir
heitinu „Icebreaker“ og náðu þær
til um 150 manns í 13 löndum.
Vísbendingar voru um að Ís-
lendingurinn hefði tengst net-
búnaði barnaklámhringsins.
Lögreglan í Reykjavík tók því
þátt í aðgerðunum sem fram
fóru á sama tíma í öllum löndun-
um. Lögreglumenn fóru inn á
heimili hins grunaða snemma í
gærmorgun, handtóku hann og
gerðu hjá honum húsleit. Hald-
lagðar voru fjórar tölvur sem
voru til athugunar hjá lögreglu í
gær. Við frekari leit var svo sótt
meira af tölvubúnaði og efni.
Maðurinn var í haldi fram eftir
degi í gær og yfirheyrður, en
síðan látinn laus. Hörður Jó-
hannesson yfirlögregluþjónn hjá
Lögreglunni í Reykjavík vildi
ekki upplýsa um hvort maðurinn
hefði játað eða neitað vörslu
barnakláms. Hann sagði að ekki
fengist staðfest fyrr en í dag
hvort tölvubúnaður mannsins
hefði að geyma barnaklám.
„Þetta er gríðarlegt magn af efni
sem við tókum og mikið verk
fyrir höndum að fara yfir það
allt,“ sagði hann.
Barnaklámið sem maðurinn
er grunaður um að hafa sótt var
vistað á tölvu á Ítalíu. Hörður
sagði að maðurinn hefði ekki
þurft að hafa sérstakan aðgang
að netkláminu heldur hefði hann
getað komist inn á miðilinn með
leit.
„Ástæðan fyrir því að þessar
aðgerðir eru svona víðfemar er
viðleitni til að ná lengra inn í
þennan hóp, ná til upphafs-
punktsins og finna þá sem fram-
leiða þetta efni til dreifingar.
Það er refsivert í öllum þessum
löndum að hafa barnaklám í
vörslu sinni. Það er hægt að taka
þessa menn, sem miðla þessu á
milli sín, sekta þá og dæma. En
aðalmarkmiðið er að ná til
þeirra sem framleiða þetta, því
það eru þeir sem misþyrma
börnunum.“
Hörður sagði ekki leika grun
á því að fleiri hér á landi væru
viðriðnir þennan alþjóðlega
barnaklámhring, því það hefði
verið búið að kortleggja þá
vandlega sem hefðu sótt frá hon-
um efni. Maðurinn sem leitað
var hjá hefur ekki komið við
sögu lögreglu áður vegna aðildar
að barnaklámi og ekki er talið að
hann hafi dreift efninu til ann-
arra hér á landi.
jss@frettabladid.is
Olíu-fyrir-mat rannsókn SÞ:
N‡ gögn um
flátt Annans
SAMEINUÐU ÞJÓÐIRNAR, AP Aðilar að
rannsókninni á framkvæmd hinn-
ar svonefndu olíu-fyrir-mat áætl-
un Sameinuðu þjóðanna í Írak
sögðu í gær að þeir væru að skoða
með hraði ný gögn sem fram
væru komin um málið og kunna
að vera íþyngjandi fyrir Kofi
Annan, framkvæmdastjóra sam-
takanna.
Gögnin kváðu benda til að
Annan hafi vitað meira en áður
var talið um samning sem gerður
var á vegum olíu-fyrir-mat áætl-
unarinnar við svissneskt fyrir-
tæki sem sonur Annans, Kojo, var
á launaskrá hjá. ■
Slys í sjóræningjaskipi:
Háseti fær
hníf í kvi›inn Hamfarir í Chile:Miki› tjón
í jar›skjálfta
CHILE, AP Stjórnvöld í Chile reyndu
í gær allt sem í þeirra valdi stóð til
að hindra frekari hörmungar og
hlúa að þeim sem um sárt eiga að
binda eftir að öflugur jarðskjálfti,
7,9 á Richter, skók dreifbýlt hérað
í Andesfjöllum í norðurhluta
landsins í fyrrinótt.
Skjálftinn varð að minnsta
kosti tíu manns að fjörtjóni og
olli miklu tjóni á mannvirkjum.
Vegir voru víða í sundur vegna
jarðhruns.
Reynist mælingin á styrkleika
skjálftans rétt er þetta þriðji öfl-
ugasti skjálftinn sem orðið hefur
í heiminum síðan fljóðbylgju-
skjálftinn mikli varð í Indlands-
hafi um jólin. ■
VEÐRIÐ Í DAG
Tölvubúna›ur, disklingar og myndbönd eru til rannsóknar hjá Lögreglunni í
Reykjavík vegna gruns um a› fla› innihaldi barnaklám. Eigandi búna›arins,
32 ára karlma›ur, var handtekinn í gær og yfirheyr›ur.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/H
AR
I
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/M
AG
N
Ú
S
EI
N
AR
SS
O
N
Í ÞYRLUNNI Hlynnt var að hinum slasaða
um leið og hann var kominn í þyrluna
SJÓSLYS Landhelgisgæslan sótti
slasaðan sjómann í togarann
Ostrovet frá Dóminíku í fyrrinótt.
Sjómaðurinn, sem var rússneskur,
hafði að sögn áhafnar hlotið
stungusár á kvið við fiskvinnslu
um borð. Ekki er þó talið útlokað
að stungan hafi orðið eftir
einhvers konar átök.
Þegar tilkynnt var um slysið
var togarinn 268 sjómílur frá
landi. Þyrlan fór í loftið um fjögur
um nóttina og fékk fylgd frá þyrlu
varnarliðsins sökum þess hve
fjarlægðin var mikil. Vel gekk að
hífa manninn um borð í þyrluna
enda voru fjórir skipverjar úr
varðskipinu Óðni þá komnir um
borð í skipið. Þyrlan var komin til
Reykjavíkur rúmlega átta í gær-
morgun og var hinn slasaði fluttur
á sjúkrahúsið í Fossvogi.
Samkvæmt upplýsingum frá
togaranum var hinn slasaði 29 ára
karlmaður frá Rússlandi, en flestir
í áhöfn skipsins eru Rússar. - grs
BANDARÍKIN
BANASLYS Í DISNEY WORLD
Fjögurra ára gamall piltur lést af
völdum hjartaáfalls eftir að hafa
farið í tívolítæki í Disney World
skemmtigarðinum í Flórída. Tæk-
ið á að líkja eftir geimskoti en
því er skotið upp í loftið á ógnar-
hraða. Margir hafa veikst í tæk-
inu síðan það var tekið í notkun
enda eru ælupokar um borð.
Notkun þess var tímabundið
stöðvuð eftir slysið en nú hefur
hún verið heimiluð á ný.
HLÚÐ AÐ SLÖSUÐUM Sjúkraliðar bera
mann sem slasaðist í jarðskjálfatnum í
Iquique í Norður-Chile á mánudagskvöld.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/A
P
UPPTÆKAR TÖLVUR Tölvurnar hér að ofan gerði lögregla upptækar í mars í öðru máli en
hér er fjallað um, en þó tengdu barnaklámi á netinu. Ljóst verður í dag hvort tölvurnar
sem teknar voru í gær hjá 32 ára manni hafa verið notaðar til að vista barnaklám.
IÐNAÐARSVÆÐIÐ VIÐ EYJAREY
Sveitarstjórnarmenn í Austur-Húnavatns-
sýslu telja sýsluna mörgum kostum búna
með tilliti til stóriðju.
BORGARFJÖRÐUR
BILUN Í DREIFIKERFI Um klukkan
sex í gærkvöldi fór rafmagn af í
hluta Borgarfjarðar. Vinnuflokk-
ur Rarik frá Borgarnesi var í
gærkvöldi búinn að einangra bil-
unina við álmu að Hítardal og
vann að bilanaleit. Vonir stóðu til
að fljótlega tækist að finna bilun-
ina og koma rafmagni á bæi sem
enn voru án rafmagns.