Fréttablaðið - 20.06.2005, Blaðsíða 36
MIÐVIKUDAGUR 15. JÚNÍ 2005 MARKAÐURINN8
NÝJASTA TÆKNI OG VÍSINDI
Þórlindur Kjartansson
skrifar
Á síðustu misserum hefur sú breyting orðið hjá ís-
lenskum netnotendum að sífellt meira gagnamagn
er innifalið í áskriftinni. Nú auglýsa fyrirtækin að
innhal frá útlöndum sé ótakmarkað en fyrir ör-
stuttu síðan þurfu notendur að borga í kringum
2.500 krónur fyrir hvert gígabæt sem þeir höluðu
inn umfram tiltekið þak.
Sá böggull fylgir hins vegar
skammrifi að ótakmarkað inn-
hal getur leitt til þess að kerfi
stíflist þar sem burðargeta net-
kerfisins er ekki næg til þess
að margir notendur geti hlaðið
niður gögnum á fullum afköst-
um. Af þessum sökum hafa
bæði Síminn og Og Vodafone
gripið til þess ráðs að áskilja
sér rétt til þess að draga úr
þjónustu við viðskiptavini sem
að mati fyrirtækjanna hala inn
óhóflegu magni.
Hive setur hins vegar engin
slík mörk gagnvart sínum við-
skiptavinum. Hins vegar reyna
kerfisstjórar Hive að tryggja
að mikið innhal gagna hjá einstaka notendum hafi
ekki áhrif á hraðann hjá öðrum notendum. Þessu
má líkja við það þegar flutningabílar eru skyldaðir
til að keyra um að nóttu svo þeir hægi ekki á bíla-
umferð þegar álagið er mest á daginn.
Hjá Og Vodafone er kveðið á um það í notkunar-
skilmálum að ekki sé ætlast til þess að hlaðið sé
niður meira en fjörtíu gígabætum á mánuði. Ef það
gerist geta notendurnir átt von á bréfi frá fyrir-
tækinu þar sem þeir eru látnir vita af því að þeir
séu komnir yfir þau mörk. Að sögn Gísla Þorsteins-
sonar hjá Og Vodafone er mjög fátítt að grípa þurfi
til þessa ráðs.
Eva Magnúsdóttir, upplýsingafulltrúi Símans,
segir að í notkunarskilmálum sé kveðið á um að
hægt sé að bregðast við óhóflegri notkun. Að sögn
Evu telja sérfræðingar hjá Símanum að eðlilegt sé
að miða við fimmtíu gígabæt á mánuði í því sam-
hengi en Síminn hafi ekki haft afskipti af neinum
notendum enn sem komið er og
muni byrja á því að hafa sam-
band við þá sem hlaða niður
meira en hundrað gígabætum.
Þeir sem hlaða niður svo miklu
að efni þurfa að vera að hala inn
gögnum á fullum afköstum
næstum allan sólarhringinn.
Netnotendur hafa hins vegar
bent á að hugtakið óhófleg net-
notkun sé loðið. Ef netverji vill
horfa á sjónvarp í gegnum netið
eru gígabætin fljót að hlaðast
upp. Auknir möguleikar til þess
að horfa á sjónvarp yfir netið
breyta því öllum forsendum um
hvað sé eðlilegt magn af niður-
hali. Sé til dæmis horft á sjón-
varp á Netinu í fullum gæðum
átta tíma á dag er heildarniðurhal á mánuði 139
gígabæt sem er langt umfram þau viðmið sem Og
Vodafone og Síminn hafa sett sér.
Þorsteinn Baldur Friðriksson, markaðsstjóri
Hive, segir að stórtækustu notendur Hive séu að
hlaða niður um þrjú hundruð gígabætum á mánuði.
Hann bendir á að áður en Hive kom til sögunnar og
hóf að bjóða ótakmarkað innhal á netinu hefði slíkt
kostað viðkomandi hátt í milljón á mánuði.
Stórnotendur hægja á netumferð
Þótt fyrirtæki auglýsi ótakmarkað innhal á netinu beita þau
aðferðum til að takmarka notkunina svo hraðinn á netinu
minnki ekki vegna álags frá stórnotendum.
Vilja áfram bann við GSM
Vísindamenn óttast verri skilyrði til stjörnugláps
ef GSM-símar verða leyfðir í flugvélum.
Microsoft bætir ráð sitt
Tölvurisinn lofar að láta af einokunartilburðum.
MIKIÐ ÁLAG Á NETIÐ Sjónvarpssendingar í góð-
um gæðum á Netinu útheimta mikla gagnaflutn-
inga. Símafyrirtækin bjóða upp á takmarkalaust
innhal en setja samt sem áður skilyrði þar sem
mjög mikil notkun getur dregið úr hraða hjá öðrum
notendum.
Microsoft tölvurisinn hefur sent Evrópusambandinu tillögur um
hvernig fyrirtækið hyggist bæta viðskiptahætti sína.
Evrópusambandið hefur sakað Microsoft um að misnota einokun-
arstöðu sína. Í fyrra var fyrirtækið sektað um 40 milljarða króna og
gefinn frestur til fyrsta júní 2005 til að bæta ráð sitt.
Hefði Microsoft ekki sent inn tillögurnar hefði fyrir-
tækið mátt búast við 300 milljóna króna dagsektum.
Evrópusambandinu mislíkar einkum hvernig
Microsoft reynir að koma í veg fyrir að önnur tölvufyrir-
tæki geti hannað forrit sem nota má innan Windows stýri-
forritsins. Hefur fyrirtækinu meðal annars verið gert að
framleiða útgáfu af Windows sem ekki inniheldur Media
Player tónlistarforritið.
Evrópusambandið vill að tölvuframleiðendur
sjálfir ráði því hvaða tónlistarforrit fylgi afurðum
þeirra. - jsk
Áhugamenn um rannsóknir á
himingeiminum eru ekki sáttir
við hugmyndir um að leyfa far-
þegum í flugvélum að nota GSM
síma. Stjörnuskoðararnir segja
að rafsegulmerki frá símunum
trufli móttökuskilyrði fyrir aðrar
bylgjur sem notaðar eru til að
rannsaka útgeiminn.
Mjög umdeilt er hvort það
hafi slæm áhrif á flugöryggi að
leyfa notkun farsíma í farþega-
rými og er líklegt að banninu
verði aflétt í Bandaríkjunum inn-
an tíðar og þá munu önnur ríki
sennilega fylgja í kjölfarið.
Til þess að draga úr rafsegul-
mengun ef GSM-símar verða
leyfðir í háloftunum hefur verið
stungið upp á því að komið verði
fyrir GSM-mastri í hverri vél.
Ástæðan er sú að merkjasending-
ar GSM-síma breytast í hlutfalli
við fjarlægð frá sendi og með því
að hafa sendinn um borð í vélinni
er hægt að draga verulega úr
styrk merkisins. - þk
SKOÐAR STJÖRNURNAR Áhugamenn
um stjörnuskoðun óttast að ef GSM símar
verða leyfðir í flugvélum kunni það að hafa
slæm áhrif á móttökuskilyrðin.
Fr
ét
ta
bl
að
ið
/A
FP