Fréttablaðið - 20.06.2005, Blaðsíða 68
Finnur Beck, fréttamaður, verður
á vakt hjá Sjónvarpinu fram á
kvöld og ætlar því ekki að halda
stórt upp á þrítugsafmælið sitt.
„Ég gifti mig í fyrra og þá var
stór veisla, þannig að þetta verð-
ur „low profile“ núna,“ segir
Finnur sem ætlar þó að bjóða
fjölskyldunni í kaffi í kvöld. „Þar
mun frúin bera fram svakalegar
kræsingar eins og vanalega þeg-
ar svona stendur á,“ segir Finnur
sem finnst konan sín snillingur í
matargerð. Finnur segir að henni
takist ágætlega að fita sig þó ekki
sé það á honum að sjá.
Finnur er nýlega kominn heim
úr fríi frá Taílandi ásamt konu
sinni. „Það var alveg frábært og
ég mæli með að fólk fari þangað í
frí,“ segir Finnur sem fannst
fólkið yndislegt, veðrið frábært
og strendurnar góðar. Það kom
honum einna mest á óvart hve
auðvelt er að vera ferðamaður á
Taílandi. Því sé að þakka hve
fólkið er almennilegt og því hve
margir tali ensku. Einu tungu-
málaerfiðleikarnir hafi verið að
skilja framburðinn sem oft hafi
skapað fyndinn misskilning.
Finnur fór bæði til Bangkok
þar sem hann segir að margt sé
að skoða og gott að versla. Þá
fóru þau hjónin til Phuket eyju til
að kanna hvernig sá staður væri
að jafna sig eftir fljóðbylgjuna í
desember. Finnur segir að upp-
byggingin gangi mjög vel þótt
vanti enn þá ferðamennina. „Hins
vegar er ekkert slegið af í þjón-
ustunni,“ segir Finnur en sums
staðar voru sex þjónar á veitinga-
stað en einungis setið á tveimur
borðum.
Finni finnst bara skemmtilegt
að vera að komast á fertugsaldur-
inn og hræðist það ekki. „Maður
verður alltaf betri manneskja eft-
ir því sem maður þroskast
meira,“ segir Finnur sem ætlar
ekki að hætta að kalla vini sína
stráka alveg á næstunni. ■
24 15. júní 2005 MIÐVIKUDAGUR
ELLA FITZGERALD (1918-1996)
lést á þessum degi.
Það er gott að
komast á fertugsaldur
TÍMAMÓT: FINNUR BECK FRÉTTAMAÐUR ER ÞRÍTUGUR Í DAG
„Það eina sem er betra en að syngja er að
syngja meira.“
Bandaríska söngkonan Ella Fitzgerald sló í gegn á unglingsaldri og
er minnst sem einnar bestu djasssöngkonu allra tíma.
timamot@frettabladid.is
FINNUR BECK Er nýlega kominn heim úr fríi frá Taílandi þar sem hann skoðaði meðal
annars Phuket eyju sem varð hvað verst úti í flóðbylgjunum í desember. Finnur segir upp-
byggingu ganga mjög vel en það vanti enn þá ferðamenn.
Á þessum degi árið 1215 setti Jóhann Englands-
konungur innsigli sitt á Magna Carta, eða Sáttmál-
ann mikla.
Jóhann var krýndur konungur árið 1199 eftir að
bróðir hans, Ríkharður Ljónshjarta, féll frá. Jóhann
þótti almennt séð slæmur konungur og tókst illa
upp í valdatíð sinni. Árið 1214 fundaði erkibisk-
upinn af Kantaraborg með aðalsmönnum og sam-
mæltust þeir um að krefja konunginn um réttinda-
skrá sér til handa. Ári seinna gerðu þeir uppreisn
þegar þeim fannst Jóhann brjóta lög lénsherranna.
Hann átti engra úrkosta völ nema að láta undan
kröfum aðalsmannanna.
Magna Carta-skjalið samanstendur af formála og
63 klásúlum og þykir merkilegt fyrir þær sakir að
það staðfesti að til væru lög sem jafnvel konungur-
inn þyrfti að lúta. Þá skipti 39. ákvæðið ekki síst
máli, en þar kemur fram að engan má svipta frelsi
eða eignum án réttarhalda og
skal hann dæmdur af jafningj-
um sínum.
Sama ár og sáttmálinn var
innsiglaður braust út borgara-
styrjöld. Jóhann féll frá árið
1216 en sonur hans, Hinrik III,
gaf sáttmálann út aftur árið
1217. Hann gerði það í annað
sinn árið 1225 eftir að hafa
brotið uppreisnarmenn á bak
aftur og Magna Carta var
formlega bundinn í ríkislög.
Mikilvægi skjalsins liggur fyrst
og fremst í því að það er birtingarmynd þess að
enginn væri yfir lög hafinn og stuðlaði þannig að
lýðræðisþróun á Englandi. Fjögur frumrit af skjalinu
hafa varðveist.
MAGNA CARTA
ÞETTA GERÐIST MERKISATBURÐIR
1389 Tyrkir sigra Serba í orrust-
unni um Kosovo-hérað.
1590 Leó X páfi hótar að bann-
færa Martein Lúther.
1626 Karl I Englandskonungur
leysir upp þingið.
1752 Benjamin Franklin gerir til-
raunir á rafmagni með
flugdreka.
1785 Tveir franskir loftbelgjaflug-
menn láta lífið í fyrsta flug-
slysi heimsins.
1869 John Wesley Hyatt fær
einkaleyfi á filmu.
1876 Flóðbylgja verður 28 þús-
und Japönum að bana.
1924 J. Edgar Hoover verður yfir-
maður bandarísku alríkis-
lögreglunnar, FBI.
1965 Bob Dylan tekur upp lagið
„Like a Rolling Stone“.
Konungur sta›festir Magna Carta
Hugheilar þakkir færum við öllum þeim sem sýndu
okkur samúð og hlýhug við andlát og útför ástkærs
eiginmans míns, föður, tengdaföður, afa og langafa
Sveinbjörns Sigurðssonar
byggingameistara, Miðleiti 7,
Helga Kristinsdóttir
Kristinn Sveinbjörnsson Valgerður Bjarnadóttir
Sigurður Sveinbjörnsson Dagný Jónasdóttir
Árni Sveinbjörnsson Áslaug Sigurðardóttir
Sveinbjörn Sveinbjörnsson Auður Jónsdóttir
Anna María Sveinbjörnsdóttir Egill Ingibergsson
barnabörn, barnabarnabörn.
Okkar ástkæri faðir, fósturfaðir, tengdafaðir, afi
og langafi,
Óskar Emilsson
Bólstaðarhlíð 41,
andaðist þann 13. júní.
Hafdís Óskarsdóttir Hlynur Guðmundsson
Birgir L. Blöndal Áslaug Steingrímsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
Bergljót Þorsteinsdóttir
frá Byggðarholti, Lóni, fyrrum húsfreyja,
andaðist á Elliheimilinu Skjólgarði, Höfn, Hornafirði, fimmtudag-
inn 9. júní.
Guðmundur Þórðarson, Freysteinn Þórðarson, Guðlaug Þorgeirs-
dóttir, Arnór Þórðarson, Ólöf Rafnsdóttir, Erla Ásthildur Þórðar-
dóttir, Hugi Jóhannesson, barnabörn og barnabarnabörn.
Elskulegur faðir okkar ,
Svavar Vemundsson
múrarameistari, Lækjarsmára 6, Kópavogi,
Verður jarðsunginn fimmtudaginn 16. júní frá Kópavogskirkju kl. 15.
Guðmundur Svavarsson Hrafnhildur Björnsdóttir
Ósk Svavarsdóttir Andrés Árnmarsson
Svava Hlíð Svavarsdóttir Páll Breiðfjörð Eyjólfsson
Sandra Svavarsdóttir
Gunnar Svavarsson Erla Kolbrún Svavarsdóttir
Barnabörn og barnabarnabörn
80 ára
afmæli
Föstudaginn 17. júlí n.k. verður
Lilja Stefánsdóttir
Grensásvegi 58 í Reykjavík, áttræð.
Af því tilefni taka hún og fjölskylda hennar á móti gestum
í Holtakránni Kirkjustétt 2-6 í Grafarholti milli
kl. 16.00 og 19.00 á afmælisdaginn.
70 ÁRA AFMÆLI
Miðvikudaginn 15. júní
verður Svanur Jóhanns-
son 70 ára.
Svanur verður að heiman
á afmælisdaginn.
ANDLÁT
Kristín Helgadóttir, Hvítingavegi 2, Vest-
mannaeyjum, lést á Hraunbúðum föstu-
daginn 10. júní.
Brynjólfur Jónatan Jónsson, Borg,
Reykhólasveit, andaðist á dvalarheimil-
inu Barmahlíð laugardaginn 11. júní.
Þorbjörg Einarsdóttir, Hóli, Stöðvarfirði,
lést laugardaginn 11. júní.
Jörundur Sigurgeir Sigtryggsson and-
aðist á Fjórðungssjúkrahúsinu á Ísafirði
laugardaginn 11. júní.
Ragnar Guðjónsson, úr Landeyjum, lést
á hjúkrunarheimilinu Sóltúni sunnudag-
inn 12. júní.
JAR‹ARFARIR
13.00 Gísli Jósefsson, málarameistari,
verður jarðsunginn frá Grafarvogs-
kirkju.
14.00 Kristín Stefanía Magnúsdóttir,
Kirkjuvegi 1, Keflavík, verður jarð-
sungin frá Keflavíkurkirkju.
15.00 Vikar Davíðsson, Hátúni 8,
Reykjavík, verður jarðsunginn frá
Fossvogskirkju.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/T
EI
TU
R