Fréttablaðið - 20.06.2005, Blaðsíða 44
15. júní 2005 MIÐVIKUDAGUR4
ÁLFUKEPPNIN Í dag sem fyrr eiga
Brasilíumenn marga frábæra
leikmenn, en enginn stenst þó hin-
um stórkostlega Ronaldinho snún-
ing. Á góðum degi er það framlag
hans sem gerir gæfumuninn í
jöfnum leikjum.
Frank Rijkaard, þjálfari hans
hjá Barcelona, segir getu hans
koma sér á óvart á hverjum degi.
„Það er ekki nóg með að hann
kunni allar gabbhreyfingar sem
þekkjast í leiknum, heldur er fjöl-
hæfni hans sem leikmanns ótrú-
leg. Hann getur klárað færi eins
og framherji, er góður auka-
spyrnumaður og hefur frábært
auga fyrir samspili. Hann gerir
aðra leikmenn í liðinu betri með
nærveru sinni og sá eiginleiki hjá
honum er alltaf að vaxa“.
Alinn upp í fátækt
Ronaldinho var alinn upp í
Restinga, sem er fátækra-
hverfi í borginni Porto
Alegre. Þar var
hann með boltann
á tánum allan
daginn. „Ég
hugsa um
f ó t b o l t a
t u t t u g u
og fjóra
klukkutíma á dag. Allt mitt líf
snýst um fótbolta og hefur gert
það alla tíð. Ég gæti einfaldlega
ekki lifað án bolta.“
Ferill Ronaldinhos hingað til er
glæsilegur. Hann var lykilmaður í
sautján ára landsliði Brasilíu-
manna sem varð heimsmeistari
árið 1997 og var eftir hann krýnd-
ur besti leikmaður keppninnar.
Skoraði í fyrsta leik
Fyrsti A-landsliðsleikur
hans var gegn Venesú-
ela í Ameríkubikarn-
um árið 1999, og þar
skoraði hann frá-
bært mark og stal
senunni af
mörg-
u m
stærri nöfnum í liði Brasilíu-
manna. Nokkrum vikum síðar var
hann kjörinn besti leikmaður álfu-
keppninnar í Mexíkó þar sem
hann var jafnframt markahæstur
allra leikmanna.
Árið 2002 varð hann síðan
heimsmeistari með frábæru liði
Brasilíumanna á HM í Japan og
Suður-Kóreu.
Stórkostlegur vetur
Nú á vormánuðum
varð lið hans,
B a r c e l o n a ,
Spánarmeist-
ari eftir
langa bið,
og voru
flestir á
því að það
h e f ð i
aldrei get-
að orðið
ef Ronald-
i n h o s
hefði ekki
notið við.
Þrátt fyrir
alla titlana og ár-
angurinn er Ron-
aldinho enn ungur
að árum, aðeins 25
ára, og hann á ef-
laust eftir að sýna
sitt besta í
á l f u -
keppn-
inni í
s u m a r ,
þar sem hann
verður drifkraft-
urinn í liði Brasilíu.
Erfitt að er að leita að
sambærilegum leikmanni og Ron-
aldinho í sögu knattspyrnunnar,
þar sem sérstaða hans felst í fjöl-
breytilegum eiginleikum og að-
lögunarhæfni að ýmsum afbrigð-
um sóknarleiks.
Líkt við Zico og Pelé
Helst hefur honum verið líkt við
samlanda sína Zico og Pele, en
einnig hefur argentíski snillingur-
inn Diego Armando Maradona
verið borinn saman við hann þeg-
ar kemur að boltatækni og
leikskilningi. Þótt Ronaldinho sé
ekki á sama stalli og þessir snill-
ingar enn sem komið er verður
forvitnilegt að sjá hvernig hann á
eftir að þróast sem leikmaður.
Hann virðist hafa alla burði til
þess að vera einn af betri leik-
mönnum sögunnar og hefur nú
þegar afrekað ótrúlega margt,
þrátt fyrir ungan aldur.
Langt er síðan jafn skemmti-
legur leikmaður kom fram á sjón-
arsviðið og því er gleðilegt fyrir
sjónvarpsáhorfendur að fá að
fylgjast með honum í álfukeppn-
inni í sumar.
magnush@frettabladid.is
ÁLFUKEPPNIN Í BEINNI Á
SÝN OG SÝN2
Miðvikudagur 15. júní
Argentína -Túnis kl. 16:00
Fimmtudagur 16. júní
Brasilía – Grikkland kl. 22:30
Laugardagur 18. júní
Túnis – Þýskaland kl. 15:45
Ástralía – Argentína kl. 18:30 (Sýn2)
Sunnudagur 19. júní
Grikkland – Japan kl. 15:45
Mexikó – Brasilía kl. 18:30 (Sýn2)
Þriðjudagur 21. júní
Argentína – Þýskaland kl. 18:30
Miðvikudagur 22. júní
Japan – Brasilía kl. 18:30
Grikkland – Mexíkó kl. 18:30 (Sýn2)
Laugardagur 25. júní
Undanúrslit kl. 15:45
Sunnudagur 26. júní
Undanúrslit kl. 14:05
Miðvikudagur 29. júní
Úrslitaleikurinn kl. 18:30
Álfukeppnin hefur aldrei verið glæsilegri en í ár og búist er við frábærri keppni:
Sigurvegararnir lei›a saman hesta sína
ÁLFUKEPPNIN Liðin átta sem taka
þátt í keppninni mæta með sína
sterkustu leikmenn og munu
leggja allt í sölurnar til þess að
sigra í keppninni.
Otto Rehhagel, sem gerði
Grikki svo eftiminnilega að Evr-
ópumeisturum í Portúgal í fyrra,
segir mikilvægt fyrir lið sitt að
sanna sig meðal þeirra bestu.
Aldrei jafnsterk lið
„Það reynir á okkur í þessari
keppni, því við verðum að standa
undir þeim væntingum sem
mynduðust við sigurinn á EM í
fyrra. Að auki hafa liðin sem
keppa aldrei verið jafnsterk og
þess vegna verður þessi keppni
lærdómsrík fyrir mig og leik-
menn mína.“
Heims- og Suður-Ameríku-
meistarar Brasilíumanna eru
undir mikilli pressu. „Það er ekki
hægt að neita því að við erum
sigurstranglegir en þannig er
það alltaf hjá okkur. Við tökum
þessa keppni mjög alvarlega því
þetta er fullkominn undirbúning-
ur fyrir heimsmeistarakeppnina
á næsta ári. Við munum spila til
sigurs í
hverjum leik
og ávallt
stilla upp
s t e r k a s t a
m ö g u l e g a
liði,“ segir
l a n d s l i ð s -
þ j á l f a r i n n
Carlos Al-
b e r t o
Parreira.
Ólympíu-
m e i s t a r a r
Argent ínu-
manna ætla
sér stóra
hluti á mót-
inu. Þeir
mæta með
sína sterk-
ustu menn
og líta á mót-
ið sem mikil-
vægan und-
irbúning fyrir HM á næsta ári,
þar sem ófarirnar frá HM 2002,
þegar Argentínumenn komust
ekki upp úr
riðlakeppn-
inni, verða
ekki látnar
e n d u r t a k a
sig.
Sigurveg-
arar í keppni
h v e r r a r
h e i m s á l f u
fyrir sig
mætast í
á l f u k e p p n -
inni, en að
auki bætast
Ó l y m p í u -
meistararnir
við, sem að
þessu sinni
eru Argent-
í n u m e n n ,
eins og áður
sagði.
Japönum
er mikið í
mun að standa sig á mótinu fyrir
hönd allrar Asíu, þar sem fótbolt-
inn er orðinn vinsælasta íþrótta-
greinin eftir velgengni Suður-
Kóreu á HM 2002.
Mikið af stjörnum
Afríkumeistarar Túnisbúa,
Mexíkóar og Eyjaálfumeistarar
Ástrala, hafa átt góðu gengi að
fagna að undanförnu, og hafa
lykilmenn þeirra getið sér gott
orð á sviði alþjóðaboltans.
Sérstaklega hafa leikmenn
eins og Ástralinn Tim Cahill hjá
Everton, Mexíkóinn Rafael
Marquez sem leikur með
Barcelona og Túnisbúinn Slim
Ben Achour, leikmaður Paris St-
Germain í Frakklandi, vakið
verðskuldaða athygli.
Það má því með sanni segja að
á þessu móti leiði sigurvegararn-
ir saman hesta sína, og því mikil-
vægt fyrir liðin að sanna sig sem
stórþjóð í knattspyrnuheiminum
með góðum árangri í keppninni.
Sá besti ver›ur
me› Brasilíu
Álfukeppnin í knattspyrnu hefst í dag en keppnin fer a› flessu sinni fram í
fi‡skalandi og er eins konar upphitunarmót fyrir HM sem fram fer í
fi‡skalandi a› ári. Margar af bestu knattspyrnufljó›um heims eru mættar til
leiks en augu flestra beinast a› heimsmeisturum Brasilíumanna. fieir mæta til
leiks me› grí›arlega sterkt li› og flar á me›al besta knattspynumann heims,
Ronaldinho, sem fór á kostum me› Barcelona í vetur.
Í FÍNU FORMI Ronaldinho ætlar sér stóra hluti í Álfukeppninni en hann sést hér æfa
hornspyrnur á æfingu í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/AFP GETTY IMAGES