Fréttablaðið - 20.06.2005, Blaðsíða 25

Fréttablaðið - 20.06.2005, Blaðsíða 25
Nú er tími útreiðartúranna. Bráðum taka sleppitúrar við og síðan lengri hestaferðir. Því er ráð að skoða hvaða reiðfatnaður er í tísku. „Það eru tískusveiflur í reiðfatnaði eins og öðrum fötum,“ segir Brynja Viðarsdóttir, afgreiðslukona í versl- uninni Hestar og menn, sem selur allt sem við- kemur útreiðum. „Eitt það nýjasta er stuttir sum- arjakkar sem hægt er að taka ermarnar af og gera að vestum sem notuð eru mikið í keppni. Þeir ná svona niður fyrir buxnastreng. Það þýðir ekkert að vera í síðu þeg- ar maður situr í hnakk. Það er svo óþægilegt“. Brynja sýnir flíspeysur, bæði venjulegar og „vindstopper“ sem eru vindþéttar og aðsniðnar. „Þetta eru flott sportföt sem margir ganga í dags daglega.“ En hvað um ís- lensku lopapeysuna, er hún úti? „Lopapeysur eru ekki mikið notað- ar af hestamönnum dags daglega. Hárin loða við þær og það er meira mál að þvo þær en gerviefnin. En á hestamótum vill fólk vera í flottri lopapeysu og útlendingar kaupa þær talsvert hjá okkur á sumrin.“ Bómullarklútar, svokölluð buff, eru eitt af því sem allir verða að eiga,“ að sögn Brynju. Klútarnir eru til í öllum litum, bæði einlitir og mynstraðir. „Fyrir utan að vera notaðir um hálsinn er hægt að setja þá fyrir andlitið ef það er mikið ryk, og líka undir hjálminn sem e y r n a b a n d . Rosasniðugt,“ segir hún og hljómar sannfærandi. Þá eru þunn- ar fiberpeysur vinsælar hjá hestamönnum, aðsniðnar fyrir konur og beinar fyrir herra. Þær eru renndar í hálsinn og með rúllukraga og fást í mörgum litum. En talandi um liti. Eru einhverj- ir sérstakir litir sem falla í kramið hjá hestamönnum? „Það er mjög al- gengt að fólk sé í svörtu en grænir og rauðir litir koma svolítið inn á vorin og sumrin, þá þessi kívígræni. Ekki bleikir og aðrir væmnir litir heldur einhverjir sportlegir. Nema kannski ein gul peysa innanundir!“ gun@frettabladid.is 3MIÐVIKUDAGUR 15. júní 2005 Leggjabrjótur 17. júní og Jónsmessuganga á Heklu 24. júní Hún opnar fyrir míkrafóninn næsta sunnudagsmorgun kl. 9 Gistihúsið Skúlagarður í Kelduhverfi Sími 465-2280 skulagardur@kelduhverfi.is Notalegt gistihús sem býður upp á góðar veitingar í mat og drykk.Tilvalið fyrir smærri ættarmót, veislur og fundi. Við erum í næsta nágrenni við náttúruperlurnar Ásbyrgi, Jökulsárgljúfur, Hljóðakletta, Hafragilsfoss og Dettifoss. Verið velkomin, Guðrún og Júlíus golfvöllur vikunnar } Garðavöllur GOLFKLÚBBURINN LEYNIR AKRANESI. Garðavöllur er heimavöllur Golfklúbbsins Leynis á Akranesi en hann var stofn- aður fyrir þrjátíu árum og var sjöundi golfklúbbur landsins. Bæjaryfirvöld höfðu úthlutað klúbbnum gamalgrónu þriggja hektara túni við austurenda skógræktar bæjarins og voru þar strax gerðar tvær holur og slegin braut milli þeirra. Árið eftir fékkst álíka stórt tún til viðbótar vestan þess fyrsta og voru settar út sex brautir. Völlurinn er nú átján holur og sjötta holan er almennt vinsælust enda talin fallegust þótt sú þriðja fylgi henni fast á eftir. Á golfvellinum er æfingasvæði og hægt að fá leigða bolta og gott púttgrín fyrir utan skálann. Í skálanum er veitingasala og hægt að fá leigð sett og kerrur. Fullt vallargjald fyrir 17 ára og eldri er 3.000 krónur en 16 ára og yngri borga 1.500 krónur. Þriðjungsafsláttur er ef mætt er fyrir klukkan tvö á virkum dögum. Nánari upplýsingar má fá á www.golf.is. Ekki gott að vera í síðu þegar setið er í hnakk Fréttablaðið/Edwin Rögnvaldsson Veiðimenn spá nú í hæga byrjun í laxánum sem þegar hafa verið opnaðar: Norðurá þokast hægt af stað, Blanda er engin veisla, Kjósin dauf til að byrja með en nú spá menn í þau tíðindi að einkum er það smálax sem gengur svo snemma. Náttúruvísindin kenna að fyrst gangi stórlax sem hefur verið tvö ár í sjó, síðan laxinn sem var á beit í vetur við strendur laxins. Það er sá síðarnefndi sem er kominn vonum fyrr, eins og sást í Þverá þegar hún var opnuð með fimm smálöxum, en engum stórlaxi sem hún er þó fræg fyrir. Sumir segja að þetta viti á miklar smálaxa- göngur, en eftir stendur spurningin: Hvar er sá stóri úr því hann er ekki mættur? Dauður í hafi? Stórurriðar sleppa Silungsveiðin á Skagaheiði þykir fara vel af stað, margir renna hýru auga til þessa rómaða „einverusvæðis“ þar sem er ódýr veiði, stundum góð, og dásamleg náttúra. Nú fara að berast fréttir af Arnar- vatnsheiði fljótlega, en þar verður opnað fyrir almenning 15. júní. Gloppóttur gangur hefur verið á Þingvöllum, menn kvarta nokkuð yfir smárri bleikju, en þar lenti veiðimaður í hrikalegri glímu við urriðatröll á dögunum, var í klukkutíma að draga að landi og missti alla línuna út þrívegis. Þegar fiskurinn kom svo nálægt veiðimanninum að hann áttaði sig á því að skelfast sleit hann 6 punda bleikjutaum eins og ekkert væri. Á urriða- svæðinu í Mývatnssveit lenti Ólafur Haralds- son í svipuðu dæmi, nema þar kom flugan til baka með slitru úr gómi fisksins eftir harðan slag! Hvers vegna ekki ókeypis á Þingvöllum? Menn tína ber á Þingvöllum án greiðslu, hirða sveppi, sóla sig, ganga um stíga og njóta lífsins, allt án greiðslu – en veiðimenn þurfa að borga fyrir sig í „þjóðgarðinum“. Hvers vegna? Ekki er stofninn í hættu, engin er þjónustan, hvers vegna fá menn ekki að veiða ókeypis? Svo spyrja veiðimenn en þessi umræða sprettur upp árlega og sárnar mörgum. Heilræði vikunnar: Farðu vel með fiskinn! Veiddur fiskur þarf að komast í kæli sem fyrst! Ekki liggja í plastpoka og soðna í sólinni! Ekki slægja fisk á bakkanum, aldrei! Sýkingarhætta er mikil af slíku og slógið dregur að varg. Verið umhverfisvæn: Vandið meðferð, skiljið ekki eftir úrgang við vatnið, hvorki af fiski né öðru. Bara eigin spor. Fleiri veiðifréttir daglega og heilræði við veiðar á www.flugur.is; Flugufréttir koma alla föstudaga í tölvupósti til áskrifenda á flugur.is með ítarlega umfjöllun um allt sem varðar veiðiskap í sumar VEIÐISUMARIÐ með Stefáni Jóni Hafstein VEIÐIFRÉTTIR Í SAMSTARFI VIÐ FLUGUR.IS Smálaxarnir koma en stórurriðar sleppa! Tóti tönn alias Þórarinn Sigþórsson, tannlæknir, með einn af þeim fáu stóru sem fengist hafa í vor. „Vindstopper“ eru þessar flíspeysur kall- aðar, enda eru þær vindheldar. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /V AL G AR Ð U R Buff eru eitt af því sem hestamenn verða að eiga. Það gagnast sem háls- klútur, rykgríma eða eyrnaskjól. Fiberfatnaður er mjúkur og hlýr og mik- ið notaður af hestafólki. Regnkápur geta verið nauðsynlegar í hestaferðum. Þessar eru með hárri klauf að aftan og hægt að smella löfunum utan um kálfana þannig að úr verði buxnaskálmar. Eitt það nýjasta er stuttir sumarjakkar sem hægt er að taka ermarnar af og gera að vestum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.