Fréttablaðið - 20.06.2005, Blaðsíða 88
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 550 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 550 5005, fax: 550 5006, ritstjorn@frettabladid.is
DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 550 5000 555 7500
Þakviðgerðir
Nánari upplýsingar á www.pace.is
Málarameistari
sér um þakið
Síðan 1991
Þegar ég var patti spurði mammamig einu sinni hvað ég ætlaði að
verða þegar ég yrði stór. „Lögfræð-
ingur,“ svaraði ég um hæl. Svarið
vakti undran þar sem ég þekkti eng-
an lögfræðing og vissi ekkert um
lögfræðinga. Pabbi var bifvélavirki
og ég þekkti ekki aðra menn en þá
sem unnu með höndunum og reynd-
ar var það svo að oft mátti ekki á
milli sjá hvor var skítugri að kveldi,
ég eða pabbi. Eftir að hafa svarað að
ég vildi verða lögfræðingur var ég
spurður hvers vegna ég vildi verða
lögfræðingur: „Þá þarf ég ekki að
þvo mér um hendurnar.“
EINHVERRA HLUTA vegna vissi
ég, sem barn, að lögfræðingar vinna
ekki vinnu sem gerir þá skítuga um
hendurnar. Svo er hægt að takast á
um hvað er skítugt og hvað ekki. Í
huga barnsins var hins vegar enginn
vafi á hvað var skítugt og hvað ekki.
Tjöruslettur, málning og sorgarrend-
ur undir nöglum gerðu hendur skítug-
ar. Grænsápa var fín til að ná flestu
af en stundum varð að nota magarín,
einkum á tjöru og olíumálningu. Við
slíkar hreingerningar er eðlilegt að
barn óski sér að þurfa aldrei aftur að
ganga í gegnum þannig hreinsun.
SVO ER HITT. Ekki nást öll óhrein-
indi af, jafnvel ekki með magaríni og
grænsápu. Jafnvel ekki með Ríkis-
endurskoðun. Halldór Ásgrímsson
veifaði samantekt Ríkisendurskoðun-
ar um það sem hann gerði ekki við
sölu bankanna, en sá hængur er á að
Ríkisendurskoðun er með fyrirvara
um að stofnunin sé kannski hvorki
grænsápa né magarín. Þess vegna eru
áhöld um hvort hendur forsætisráð-
herra eru eins hreinar og hann vill
vera láta. Þess vegna er mögulegt að
Halldór verði að finna aðra sápu til að
losna við þau óhreinindi sem hann er
sagður þakinn.
SKAÐI ER ORÐINN af þessu
máli. Efast er um hvort forsætisráð-
herra hafi hreinar hendur. Honum
dugir ekki að þvo sér með Ríkisend-
urskoðun. Svo er það álit margra að
meira þurfi að koma til. Sala bank-
anna var fjölbreyttari en svo að
skýrsla um það sem Halldór ekki
gerði eyði öllum efasemdum. Sér-
staklega þegar varað er við að hún
sé ekki sótthreinsandi. Svo að lok-
um, þurfa ekki fleiri að taka hendur
úr vösum og leyfa þjóðinni að sjá
hvort sorgarrönd sé undir nögl og
nögl?
BAKÞANKAR
SIGURJÓNS M.
EGILSSONAR
Hreinar
hendur