Fréttablaðið - 20.06.2005, Blaðsíða 24
Sólarvörn
Á ferðalögum erlendis þarf sólarvörnin alltaf að vera við hendina. Sérstak-
lega þarf að passa ungbörn í sólinni og hafa þarf í huga að þau geta
brunnið jafnvel þó að það sé skýjað.[ ]
Þjóðhátíð allar helgar
Sumarbústaðir á hjólum
verða sífellt vinsælli. Á föstu-
dagskvöldum er haldið af
stað með allt innanborðs sem
þarf til einnar útilegu. Hjónin
Kristín Anný Jónsdóttir og
Valgeir Ingi Ólafsson eru hjól-
hýsafólk.
„Við förum í útilegur allar helgar
með hjólhýsið. Það er bara hringt út
og athugað hvert kunningjarnir eru
að fara. Yfirleitt hittist fólk úr
svona fjórum til fimm vögnum og
allt upp í tuttugu,“ segir Kristín sem
starfar í Víkurverki, ásamt manni
sínum. Þar versla þau með hjólhýsi
og Kristín telur útlit fyrir algera
sprengingu í sölu þeirra þetta árið.
„Það er hjólhýsaæði í gangi og hver
smitast af öðrum. Við seldum mikið
í fyrra en það er margföldun í ár,“
segir hún.
Alltaf eru hjólhýsin að verða
fullkomnari og fullkomnari. Kristín
og Valgeir eiga eitt risastórt og í því
er ofnakerfi eins og í heimahúsi og
gólfhiti að auki. Þar er barnaher-
bergi og fullkomið eldhús með stór-
um ísskáp, frysti og bakarofni.
Skyldi Kristín baka í vagninum?
„Já, já, það kemur fyrir. Fólk kom
að mér við að hnoða deig í grill-
brauð og rak upp stór augu. Þetta er
eitthvað sem maður hefur aldrei
tíma til að gera heima.“
Greinilegt er að fjölskyldan læt-
ur fara vel um sig í vagninum því
þar er sjónvarp og meira að segja
gervihnattadiskur til að hægt sé að
velja úr stöðvum. „Sumir eru með
heimabíó,“ lýsir Kristín og hlær
þegar hún sér undrunarsvipinn á
blaðamanni. „Fólk reynir að hafa
það eins huggulegt og hægt er. Til
dæmis er skreytt með blómum og
fánum utan við vagnana um leið og
komið er á áfangastað.“
Þegar komið er heim úr einni
ferð kveðst Kristín þrífa vagninn og
pakka til næstu ferðar. Þá er hægt
að bruna af stað um leið og færi
gefst.
Framundan eru ótal skemmtileg-
ar helgar, meðal annars fjölskyldu-
ferð 8. júlí á Úlfljótsvatn.
„Svo er ætt á allar bæjarhátíðir
landsins, hvort sem það eru danskir
dagar, franskir dagar, humarhátíð
eða hvað,“ segir Kristín brosandi.
„Það er þjóðhátíð allar helgar hjá
okkur.“
gun@frettabladid.is
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/P
JE
TU
R
Kristín og Valgeir láta fara vel um sig í vagninum.
Hjólhýsið þeirra hjóna er stórt og þegar komið er á áfangastað er brugðið upp álíka stóru
fortjaldi.
Sonurinn Ólafur Jón í barnaherberginu.
Eldhúsið er búið öllum græjum.
Sjónvarpið á sínum stað og diskur uppi á þaki.