Fréttablaðið - 20.06.2005, Qupperneq 38
MIÐVIKUDAGUR 15. JÚNÍ 2005 MARKAÐURINN10
F R É T T A S K Ý R I N G
Samkomulag á að hafa náðst í maí síðastliðn-
um milli Jóns Ásgeirs Jóhannessonar, for-
stjóra Baugs Group, og Þórðar Más Jóhannes-
sonar, forstjóra Straums fjárfestingarbanka,
um að selja hlutafé Straums í Íslandsbanka inn
í nýtt eignarhaldsfélag. Karl Wernersson átti
ásamt systkinum sínum að eiga meirihluta í
félaginu eftir að hafa sett sín 12,5 prósent í Ís-
landsbanka og Sjóvá, sem hann á tvo þriðju
hluta í, inn í félagið.
Jón Ásgeir og fleiri áttu að eiga minnihluta
í eignarhaldsfélaginu á móti Karli eftir að hafa
keypt átján prósent hlut Straums samkvæmt
samkomulaginu. Hefur FL Group, undir stjórn
Hannesar Smárasonar, verið nefnt í því sam-
hengi en það mun ekki hafa verið fullfrágeng-
ið samkvæmt því sem heimildir Markaðarins
herma. Einnig kom til álita á síðari stigum,
samkvæmt upplýsingum frá Straumsmönn-
um, að Straumur ætti lítinn hlut í eignarhalds-
félaginu. Þótti það ekki spennandi kostur á
endanum.
Hvort þetta samkomulag hafi náðst er nú
deilt um innan hluthafahóps Íslandsbanka.
Þeir sem tengjast Straumi segja þetta ekki
rétta túlkun á atburðarrásinni. Engin ákvörð-
un hafi verið tekin um að setja hlut þeirra inn
í nýtt eignarhaldsfélag. Viðræður hafi átt sér
stað milli Jóns Ásgeirs og stjórnenda Straums
í þá veru en svarið hafi alltaf verið nei. Þetta
hafi til dæmis ekki verið rætt í stjórn Straums.
VILDU STERKAN MEIRIHLUTA
Það sem vakti fyrir Karli Wernerssyni, Jóni
Ásgeiri Jóhannssyni og fleirum með þessum
áformum var samkvæmt heimildum Markað-
arins að fá kjölfestu í hluthafahóp Íslands-
banka eftir mikinn óróleika og átök síðasta
árs. Hefur ólgan meðal annars varið vegna
tilrauna Landsbankans til að ná auknum
áhrifum í Íslandsbanka síðasta árið.
Með samkomulaginu töldu menn að tvennt
myndi aðallega vinnast; Straumur losaði sig
við óþægilega stóra eign sína í Íslandsbanka,
sem nemur nálægt þrjátíu prósent af heildar-
eignum hans, og átök í hluthafahópnum
myndu lægja með styrkri forystu félags, sem
hefði að minnsta kosti þriðjung hlutafjár á
bak við sig. Eigendur og stjórnendur bankans
gætu þá farið að einbeita sér að rekstri og
sóknarfærum fyrirtækisins í stað deilna. Var
þessi áætlun gerð með velþóknun Bjarna Ár-
mannssonar, forstjóra Íslandsbanka, Einars
Sveinssonar, stjórnarformanns, og Jóns
Snorrasonar, stjórnarmanns. Það er því nokk-
uð ljóst að traustur meirihluti hefði ráðið
ferðinni hefði þetta gengi eftir.
Sagt er að Karl hafi ekki viljað leika þessa
fléttu án þess að upplýsa þá, sem hann hefur
staðið með í meirihluta bankaráðs Íslands-
banka, um áformin. Það var á þeim forsend-
um sem hann óskaði eftir fundi með Stein-
unni Jónsdóttur, dóttur Jóns Helga Guð-
mundssonar í Byko, til að setja hana inn í
málin. Hafa þau starfað saman í bankastjórn.
Staðfest hefur verið að Karl var ekki á þess-
um fundi að falast eftir fjögurra prósenta
hlut Steinunnar í Íslandsbanka, sem nýlega
var seldur til Burðaráss. Með Karli á fundin-
um voru Einar Sveinsson og Jón Snorrason.
Var óskað eftir trúnaði um efni fundarins.
Álykta má sem svo, þegar hér var komið
við sögu, að Karl hafi varla gengið svo langt
að kynna þessi áform nema vegna þess að
hann taldi að samkomulag væri um að
Straumur seldi hlut sinn í Íslandsbanka til
hins nýja félags. Þó skal áréttað að Straums-
menn hafa neitað að slíkt samkomulag hafi
nokkurn tíma verið gert. Hér stendur því orð
gegn orði.
STEINUNN SELUR ÓVÆNT
Samkvæmt heimildum Markaðarins urðu við-
brögð Jóns Helga við þessum fyrirætlunum,
þegar hann frétti af þeim daginn eftir, harka-
leg. Ekki liggur ljóst fyrir hvers vegna. Þó er
ekki hægt að horfa fram hjá því, sem fram
kom í máli viðmælenda Markaðarins, að
ástæðan gæti legið í því að Hannes Smárason
forstjóri FL Group, var nefndur sem aðili að
nýja félaginu. Hannes er fyrrverandi eigin-
maður Steinunnar og tengdasonur Jóns
Helga. Eins og áður kom fram hefur eftirá
verið gert lítið úr afskiptum Hannesar af
þessu máli og haft var eftir honum í fréttum
RÚV að hann hefði ekki komið nálægt þessu.
Vitað er að þau feðgin voru ekki alls kost-
ar sátt við það hvernig staðið var að sölu Sjó-
vár í stjórn Íslandsbanka til Karls Werners-
sonar í apríl á þessu ári. Einn viðmælandi
Markaðarins segir það algjörlega óskylt mál.
Jón Helgi á að hafa rætt um sölu á hlut sínum
í Íslandsbanka í kjölfarið. Hann hafi svo rætt
það við Bjarna Ármannsson og boðið honum
og stjórnendum bankans að kaupa tæp tvö
prósent af sínum hlut ásamt formanni banka-
ráðs. Sýnir það að Jón Helgi var fylgjandi því
að þessir aðilar styrktu sig innan bankans á
þessum tíma en ekki aðilar tengdir Lands-
bankanum.
Föstudaginn 3. júní er ljóst að Steinunn vill
losa sig við fjögurra prósenta hlut sinn í Ís-
landsbanka eftir fundinn þar sem Karl kynnti
henni áform sín. Hún býður ekki Burðarási
fyrst að kaupa hlutinn heldur Straumi fjár-
festingarbanka og Einari Sveinssyni, stjórn-
arfomanni. Sunnudaginn 5. júní er tekin
ákvörðun í þröngum hópi manna, sem hafði
komið nálægt fyrrnefndri áætlun, að kaupa
ekki hlutinn á yfirverði. Hann myndi ekki
skipta sköpum fyrir valdahlutföllin í bankan-
um að þeirra mati. Úr verður að Burðarás,
sem lýtur yfirráðum Björgólfs Thors Björg-
ólfssonar stjórnarformanns og tengist
Straumi, kaupir hlutinn fyrir um 7,3 milljarða
króna miðvikudaginn 8. júní. Friðrik Jó-
hannsson, forstjóri Burðaráss, segir í viðtali
við Fréttablaðið að þeim hafi boðist þessi
hlutur samdægurs.
Það sem gerist samhliða því að Steinunn
ákveður að selja hlut sinn í Íslandsbanka er
að áform um að setja hlut Straums í bankan-
um inn í nýtt eignarhaldsfélag eru stöðvuð.
Þegar leitað er eftir skýringum á því, að því
gefnu að það hafi staðið til innan Straums, er
fátt um svör. Líkleg skýring er sögð er að
Landsbankamenn hafi stöðvað þetta ferli inn-
an Straums, þar sem þeir ráða yfir miklu
hlutafé, enda muni áhrif innan Íslandsbanka
tapast með því. Þegar spurt er hvort þeir
vissu ekki af þessum áformum allan tíman er
því svarað játandi.
NÆSTU SKREF ÓLJÓS
Hluthafar í Íslandsbanka segja stöðuna sem
komin er upp óþolandi fyrir alla aðila. Enginn
nái fram markmiðum sínum. Úr hópi þeirra
sem styðja meirihluta stjórnar heyrist það
sjónarmið að aðkoma Landsbankamanna sé
óviðunandi því það trufli stjórn og rekstur Ís-
landsbanka. Telja þeir ekki farsælt að Bjögg-
arnir – feðgarnir Björgólfur Guðmundsson
og Björgólfur Thor Björgólfsson – hafi ítök í
fjórum fjármálastofnunum; Landsbankanum,
Burðarási, Straumi og svo Íslandsbanka.
Landsbankamenn segja hins vegar að leit-
að sé leiða til að hagræða í bankakerfinu. Með
samvinnu við önnur fjármálafyrirtæki sé
hægt að bæta eiginfjárhlutfall Straums, láns-
hæfi og styrk til frekari verkefna erlendis.
Allt frá því að félög tengd Björgólfsfeðg-
um fóru inn í Straum síðsumars 2003 og réðu
yfir tæplega 12 prósentum í Íslandsbanka,
hafa sameiningarraddirnar verið háværar. Þó
kom hlé á þeirri umræðu þegar uppstokkun
varð í íslensku viðskiptalífi í september 2003
og Landsbankamenn fóru út úr Straumi og Ís-
landsbanka. Það var svo í byrjun árs 2004 að
Landsbankinn fór aftur að fjárfesta í Íslands-
banka með það fyrir augum að sameina starf-
semi bankanna með einhverjum hætti. Í lok
september sama ár eignuðust eigendur
Landsbankans á ný kjölfestuhlut í Straumi
fjárfestingabanka eftir eins árs hlé.
TILGANGUR LANDSBANKANS ÓLJÓS
Engum virðist vera fyllilega ljóst hvað
Landsbankamenn ætli sér með hlutinn í Ís-
landsbanka. Ljóst er að stórir eigendur Ís-
landsbanka berjast gegn frekari ítökum þeir-
ra í bankanum. Sumir segja að það muni
takast, aðrir segja Landsbankamenn með pál-
mann í höndunum hvað varðar styrk innan
bankans. Það er enn óljóst. Karl Wernersson,
stjórnarmaður og næststærsti hluthafinn,
hefur verið nefndur sá aðili sem getur unnið
að sáttum innan hluthafahópsins. Hann mun
að öllum líkindum reyna að styrkja stöðu sína
á næstunni til að ná betri stöðu í þeim mála-
leitunum.
Staðan í hluthafahópnum er spennustaða.
Hún er sögð óviðundandi fyrir alla hluthafa.
Stóra spurningin er hvenær það losnar um
spennuna og ný staða myndast. Samkvæmt
heimildum Markaðarins gæti það alveg eins
gerst í þessari viku eins og næsta haust.
Ómögulegt sé að spá um það nákvæmlega.
Umdeilt samkomulag við Straum
Hluthafar í Íslandsbanka segja að samkomulag hafi verið um að setja hlut Straums í bankanum inn í
nýtt eignarhaldsfélag. Ekkert slíkt samkomulag var gert, segja Straumsmenn. Björgvin Guðmunds-
son segir yfirráð í Íslandsbanka enn óljós.
STEINUNN JÓNSDÓTTIR FARIN OG
ÓVISSA Í ÍSLANDSBANKA Straumi fjár-
festingarbanka og Einari Sveinssyni, stjórn-
arformanni Íslandsbanka, bauðst að kaupa
fjögurra prósenta hlut Steinunnar Jónsdótt-
ur (lengst til vinstri) í Íslandsbanka áður en
hún seldi hann til Burðaráss. Áform Karls
Wernerssonar (annar frá vinstri), um að
mynda sterkan kjölfestuhóp í Íslandsbanka,
fóru út um þúfur eftir að hann óskaði eftir
að upplýsa samstarfsmenn sína um það
sem framundan var. Á myndinni eru einnig
Einar Sveinsson og Bjarni Ármannsson.
Tíu þúsund
hluthafar
Um tíu þúsund hluthafar eru í Ís-
landsbanka. Þeir tuttugu stærstu
eiga rúm 65 prósent, sé miðað við
upplýsingar frá Kauphöllinni. Miðað
við gengi bankans undanfarna daga
er verðmæti litlu hluthafanna, sem
eiga um 45 prósent hlutafjár, um
áttatíu milljarðar.
Þessi dreifða eignaraðild hefur gert
það að verkum að lítill hlutur í Ís-
landsbanka getur tryggt mikil völd.
Því skipta kaup og sala stærstu hlut-
hafanna í bankanum máli. Karl
Wernersson og systkini hans eru
næststærstu hluthafarnir á eftir
Straumi, sem ræður yfir átján pró-
sentum. Karl er í stjórn og hefur
unnið með meirihluta bankastjórnar.
Þessi hópur telur sig hafa yfirráðin í
bankanum og ætlar að verja hana.
Landsbankamenn, sem lengi hafa
seilst til áhrifa í Íslandsbanka, ráða
sjálfir ekki yfir miklu hlutafé, eða
innan við tíu prósent. Ef þeir geta
beitt atkvæðum Straums í Íslands-
banka verður staða þeirra sterkari.
Straumur hefur verið að bæta við
sig hlutum undanfarnar vikur. Einnig
hefur Burðarás, sem stjórnað er af
Björgólfi Thor Björgólfssyni, bætti
við sig hlutum. Þeir telja því stöðu
sína vænlega.
▲
Fr
ét
ta
bl
að
ið
/P
je
tu
r