Fréttablaðið - 20.06.2005, Page 42
15. júní 2005 MIÐVIKUDAGUR2
ARGENTÍNA
1. Leonardo Francko, Atletico 28 ára
2. Walter Samuel, Real Madrid 27 ára
3. Juan Sorin, Villareal 29 ára
4. Javier Zanetti, Inter Milan 31 árs
5. Esteban Cambiasso, Inter 24 ára
6. Gabriel Heinze, Man. Utd. 27 ára
7. Carlos Tevez, Corinthians 21 árs
8. Juan Riquelme, Villareal 27 ára
9. Javier Saviola, Monaco 23 ára
10. Pablo Aimar, Valencia 26 ára
11. Cesar Delagado, Crus Azal 23 ára
12. Lux German, River Plate 23 ára
13. Gonzalo Rodriguez, Villareal 21 árs
14. Gabriel Milito, Real Zaragosa 24 ára
15. Diego Placente, Leverkusen 28 ára
16. Fabricio Coloccini, Deportivo 25 ára
17. Lucas Bernardi, Monaco 27 ára
18. Mario Santana, Palermo 21 árs
19. M. Rodriguez, Espanayol 24 ára
20. M. Demichelis, B. Munchen 24 ára
21. Luciano Figuero, Villareal 24 ára
22. Luciano Galletti, Zaragosa 25 ára
23. Caballero Wilfredo, Elche 23 ára
ÁSTRALÍA
1. Mark Schwarzer, Middlesb. 33 ára
2. Kevin Muscat, Milwall 32 ára
3. Craig Moore, Möncheng. 29 ára
4. Lucas Neill, Blackburn 27 ára
5. Tony Vidmar, Cardiff 35 ára
6. Tony Popovic, Crystal Palace 32 ára
7. Brett Emerton, Blackburn 33 ára
8. Josip Skoko, Genclerbirligi 29 ára
9. Mark Viduka, Middlesbrough 29 ára
10. Tim Cahill, Everton 26 ára
11. Scott Chipperfield, Basel 29 ára
12. M. Petkovic, Trabzonspor 29 ára
13. Luke Wilkshire, Bristol City 23 ára
14. Simon Colosimo, Perth Glory 26 ára
15. John Aloisi, Osasuna 29 ára
16. David Zdrilic, Sydney FC 31 árs
17. Jon Mc Kain, N. Bucharest 22 ára
18. Zelkjo Kalac, Perugia 32 ára
19. Jason Culina, Twente 23 ára
20. Ljubo Milicevic, Thun 24 ára
21. Ahmad Elrich, Án félags 24 ára
22. Archie Thompson, Lierse 26 ára
23. Mile Sterjovski, Basel 26 ára
ÞÝSKALAND
1. Oliver Kahn, Bayern Munchen 36 ára
2. Andreas Hinkel, Stuttgart 23 ára
3. Arne Friedrich, Hertha Berlin 26 ára
4. Robert Huth, Chelsea 21 árs
5. Patrick Owomoyela, Bielefield 26 ára
6. M. Engelhardt, Kaiserslautern 25 ára
7. B. Schweinsteiger, Bayern 21 árs
8. Torsten Frings, Munchen 29 ára
9. Mike Hanke, Wolfsburg 22 ára
10. Sebastian Deisler, Bayern 25 ára
11. Thomas Brdaric, Wolfsburg 30 ára
12. Jens Lehmann, Arsenal 36 ára
13. Michael Ballack, Bayern 29 ára
14. Gerald Asamoah, Schalke 27 ára
15. Fabian Ernst, Werder 26 ára
16. Thomas Hitzlsperger, A. Villa 23 ára
17. Per Mertesacker, Hannover 21 árs
18. Tim Borowski, Werder 25 ára
19. Bernd Schneider, Leverkusen 32 ára
20. Lukas Podolski, Köln 20 ára
21. Christian Schulz, Werder 25 ára
22. Kevin Kuranyi, Stuttgart 23 ára
23. Timo Hildebrand, Stuttgart 26 ára
TÚNIS
1. Ali Boumnijel, Club Africain 39 ára
2. Alaeddine Yahia, Etienne 24 ára
3. Karim Essediri, Tromso 26 ára
4. Wissem Abdi, Sfaxien CS 26 ára
5. Ziad Jaziri, Gaziantepspor 27 ára
6. Hatem Trabelsi, Ajax 28 ára
7. Imed Mhadebi 29 ára
8. Mehdi Nafti, Birmingham 27 ára
9. Haykel Guemamdia, Sfaxien 24 ára
10. Kaies Ghodbane, Samsunsp. 29 ára
11. Santos, Toulouse 26 ára
12. Jawhar Mnari, Esperance 29 ára
13. Hamed Namouchi, Rangers 21 ára
14. Adel Chadli, Istres 29 ára
15. Radhi Jaidi, Bolton 30 ára
16. K. Fadhel, Diyarbakirspor 29 ára
17. Chouki Ben Saad,Bastia 21 árs
18. Slim Benachour, PSG 24 ára
19. Anis Ayari, Samsunspor 23 ára
20. Clayton, Esperance 31 árs
21. Issam Jomaa,Esperance 21 árs
22. Hamdi Kasraoui, Esperance 22 ára
23. Amir Massaoud, Sfaxien 24 ára
Argentínumenn líklegir til
afreka í Álfukeppninni
ÁLFUKEPPNIN Argentínumenn hafa
á að skipa gríðarlega sterku liði
sem talið er líklegt til afreka í
álfukeppninni. Ólympíumeistar-
arnir frá því í Aþenu í fyrra hafa
verið að endurnýja liðið eftir ófar-
irnar á HM 2002 í Japan og Suður-
Kóreu, og eru nú með hóp sem
miklar væntingar eru gerðar til.
Lykilmaður liðsins er miðju-
maðurinn Juan Roman Riquelme
sem spilað hefur frábærlega með
Villareal síðustu tvö ár.
Hann kom fyrst fram á sjónar-
sviðið árið 1996, þá 18 ára gamall,
og varð strax helsta stjarna í
suður-amerísku knattspyrnunni.
Lið hans, Boca Juniors, vann allt
sem hægt var að vinna með
Riquelme sem lykilmann. Hann
var kjörinn leikmaður ársins í
Suður-Ameríku árið 1999, þá tutt-
ugu og eins árs gamall. Öll helstu
stórlið Evrópu voru á eftir honum
en Riquelme ákvað að ganga til
liðs við Barcelona, þar sem hann
átti erfitt uppdráttar. Hann var
lánaður til Villareal og þar hefur
hann blómstrað, og komið liðinu í
fremstu röð á Spáni.
Argentínumenn hafa alltaf átt
stóran hóp góðra leikmanna, en
staðan nú þykir sögulega góð.
Aldrei hafa Argentínumenn verið
jafnvel settir með varnamenn,
með þá Gabriel Heinze hjá
Manchester United og hinn eftir-
sótta Gabriel Milito hjá Real Zara-
goza sem helstu stoðir. Miðju-
menn og sóknarmenn liðsins eru
hver öðrum betri. Javier Saviola,
Hernan Crespo, Carlos Tevez,
Pablo Aimar og títtnefndur
Riquelme eiga örugglega eftir að
sýna sjónvarpsáhorfendum sókn-
arbolta af bestu gerð.
Mikil kynslóðaskipti hafa orðið
hjá Argentínumönnum og eru lyk-
ilmenn úr gullaldarkynslóð yngri
landsliða nú orðnir kjarninn í að-
alliðinu. Aimar, Saviola,
Riquelme, Heinze og Tevez slóu
allir í gegn með yngri landsliðun-
um áður en þeir komust í A-liðið
og settu strax mikla pressu á þá
eldri sem fyrir voru í landsliðinu.
Eftir frábæran árangur ungu leik-
mannanna á Ólympíuleikunum
var landsliðsþjálfaranum José
Nestor Pekerman, sem þjálfaði
ungmennaliðin áður en hann tók
við aðalliðinu, ekki stætt á öðru en
að setja eldri menn eins og Diego
Simone og Juan Veron út úr liðinu.
Það verður því spennandi að
sjá hvort gullaldarkynslóð yngri
leikmanna Argentínu nær að
koma liðinu í hæstu hæðir. Getan
er svo sannarlega fyrir hendi, en
spurningin er hvort liðið er nógu
reynt til þess að takast á við það
andlega og líkamlega álag sem
fylgir stórmótum.
Ólympíumeistarar Argentínumanna mæta til leiks í álfukeppnina me› miki›
breytt li› frá HM 2002, flar sem li›i› ná›i ekki a› standa undir væntingum.
Ungir og ferskir leikmenn mynda nú léttleikandi li› sem tali› er líklegt til af-
reka á heimsvi›i fótboltans á næstu árum.
Margir þekktir leikmenn í ástralska landsliðinu í Þýskalandi:
Ástralir gefast aldrei upp
ÁLFUKEPPNIN Ástralir hafa verið
að eflast mikið í knattspyrnunni
síðastliðinn áratug og eru nú
með sterkt lið, sem líklegt er til
þess að stríða stórþjóðunum.
Margir leikmanna liðsins leika á
Englandi þar sem þeir hafa getið
sér gott orð.
Sérstaklega eru það Tim
Cahill hjá Everton, Harry
Kewell sem leikur með Liver-
pool, Mark Viduka hjá Middles-
brough og Brett Emerton hjá
Blackburn Rovers sem hafa
slegið í gegn, en auk þeirra má
nefna markvörðinn Mark
Schwarzer sem líkt og Viduka
leikur hjá Middlesbrough og
varnarmanninn Lucas Neill, liðs-
félaga Emerton hjá Blackburn,
sem þykir harður í horn að taka.
Þessir leikmenn mynda
kjarnann í sterku liði sem hefur
náð athyglisverðum úrslitum
gegn stórþjóðum síðustu miss-
eri.
Þótt Þjóðverjar og Argentínu-
menn séu sigurstranglegastir í
A-riðli skal enginn afskrifa bar-
áttuglatt lið Ástrala.
BARÁTTUGLAÐUR Ástralinn Tim Cahill stimplaði sig rækilega inn í ensku knattspyrnuna í
vetur og verður gaman að fylgjast með honum í Álfukeppninni.
FRÉTTABLAÐIÐ/NORDIC PHOTOS / GETTY IMAGES
JUAN ROMAN RIQUELME Þessi stórkostlegi miðjumaður fór á kostum með spútnikliði
Villarreal í spænska boltanum í vetur og hann mætir í toppformi til Þýskalands.
FRÉTTABLAÐIÐ/NORDIC PHOTOS / GETTY IMAGES
JAVIER ZANETTI Algjör lykilmaður hjá
Argentínu.
FRÉTTABLAÐIÐ/NORDIC PHOTOS / GETTY IMAGES
ÞJÁLFARINN Jurgen Klinsmann ætlar sér
að koma þýska landsliðinu í fremstu röð á
nýjan leik en þeir hafa ekki átt góðu gengi
að fagna að undanförnu. Klinsmann ætti
að geta kennt framherjum liðsins að finna
netmöskvana en hann var á sínum tíma
einn allra besti framherji heims.
FYLGSTU MEÐ... Michael Ballack hefur sýnt
það og sannað að hann er einn besti
miðjumaður Evrópu. Hann verður að eiga
góða keppni svo Þjóðverjar eigi möguleika
á sigri.
ÞJÁLFARINN José Nestor Pekerman náði
frábærum árangri með yngra landslið
Argentínu. Hann er nú að leiða nýja kyn-
slóð leikmanna í landsliðið, sem miklar
væntingar eru gerðar til.
FYLGSTU MEÐ... Argentínumaðurinn
Riquelme er frábær leikstjórnandi. Hann
hefur farið fyrir spútnikliði Villareal á Spáni
í vetur.
ÞJÁLFARINN Frank Farina hefur búið til
gott lið hjá Áströlum. Liðið er þaulreynt og
ætti að geta komið á óvart í keppninni.
FYLGSTU MEÐ... Tim Cahill sem er mark-
sækinn miðjumaður sem gefst aldrei upp
FYLGSTU MEÐ... Hatem Trabelsi leikmaður
Ajax er lykilmaður í liði Afríkumeistaranna
frá Túnis. Það mun mikið mæða á honum
í keppninni, enda reyndur leikmaður mið-
að við flesta í liðinu.
ÞJÁLFARINN Roger Lemerre hefur náð
góðum árangri með landslið Túnis. Ekki
var búist við sigri þeirra í Afríkukeppninni,
en annað kom nú á daginn.