Fréttablaðið - 20.06.2005, Síða 53
MARKAÐURINN MIÐVIKUDAGUR 15. JÚNÍ 2005 23
F Y R S T O G S Í Ð A S T
!!" # "
$
%
&
'
!
"!# $%%
&
' (
!#) $%%***+ Breski sjónvarpsrisinn
BSkyB, sem er í eigu
Ástralans Ruperts Mur-
doch og hefur árum
saman ráðið útsend-
ingarétti frá ensku úr-
valsdeildinni í knatt-
spyrnu, gæti nú tapað
réttinum.
Írska sjónvarpsfyrir-
tækið Setanta hyggst
bjóða í útsendingarétt-
inn og hefur einnig boð-
ið einum yfirmanna Sky
Sports-sjónvarpsstöðv-
arinnar, Trevor East, að
sjá um íþróttasvið fyrir-
tækisins. East hefur
enn ekki ákveðið hvort
hann taki boðinu.
Erfitt gæti reynst
fyrir BSkyB að fylla
skarð Easts enda þykir
hann snjall samninga-
maður.
BSkyB hóf útsend-
ingar frá úrvalsdeild-
inni árið 1992 og hefur
haldið réttinum síðan.
Síðast borgaði BSkyB
120 milljarða króna
fyrir þriggja ára samn-
ing sem rennur út vor-
ið 2006. - jsk
Microsoft
ritskoðar
Microsoft-tölvufyrirtækið vinn-
ur nú að því í samvinnu við yfir-
völd í Kína að ritskoða allt efni
sem fer í gegnum kínverskan
vefþjón fyrirtækisins.
Hönnuð hefur verið sérstök
sía sem á að stöðva allt óæskilegt
efni sem fer í gegnum vefþjón-
inn. Talsmenn Microsoft þegja
þunnu hljóði en franska frétta-
stofan France-Presse hefur
greint frá því að orð á borð við
lýðræði og mannréttindi séu á
bannlista. Einnig er algerlega
bannað að nefna sjálfstæði og
Taívan í sömu andrá. -jsk
KÍNVERSKIR NETVAFRARAR Mega ekki
nefna Taívan og sjálfstæði í sömu andrá.
Yfirmenn dýragarðsins í Tulsa í Bandaríkjunum hafa ákveðið að
setja upp sýningu sem fjallar um sköpunarsögu Biblíunnar og
tengsl hennar við dýralífið.
Mikið hafði verið kvartað yfir þeirri sýningu sem nú stendur
yfir en þar er fjallað um tengsl trúarlegra tákna við dýralífið og
má meðal annars sjá hindúska helgistyttu af fíl.
Fílsstyttan fór mikið fyrir brjóstið á sköpunarsinnum í Tulsa og
kröfðust þeir þess að kristnin fengi sinn stall í dýragarðinum.
Stjórn dýragarðsins ákvað að gera gott betur og skipulagði sýn-
ingu sem eingöngu verður tileinkuð sköpunarsögunni.
Sýningarstjóri dýragarðsins, Kathleen Buck-Miser, er ekki
ánægð með þessa þróun: „Við stefnum í ranga átt. Þetta er dýra-
garður en ekki kirkja.“
Samkvæmt Biblíunni skapaði Guð jörðina á sex dögum fyrir
um 6.000 árum. - jsk
Trúardeilur í dýragarði
GEIT Í DÝRAGARÐI Sköpunarsinnar í Banda-
ríkjunum vilja að dýragarður í Tulsa setji upp
sýningu um sköpunarsögu Biblíunnar. Forsvars-
menn dýragarðsins hyggjast verða við þeirri
beiðni.
Sky að tapa boltanum
RUPERT MURDOCH,
EIGANDI BSKYB-FJÖL-
MIÐLAVELDISINS
BSkyB gæti nú tapað
gimsteininum í krúnu
sinni: útsendingaréttin-
um frá ensku úrvalsdeild-
inni í knattspyrnu.
Apple breytir um
örgjörvaBOLTINN Á NÝJAN STAÐ? Sjónvarpsstöðin BSkyB hefur átt réttinn af útsendingum fráhinni sívinsælu ensku Úrvalsdeild undanfarin ár en allt er í heiminum hverfult og hugsan-
lega nær írska sjónvarpsfyrirtækið Setanta að stela boltanum frá Rupert Murdoch og
félögum.
Tölvufyrirtækið Apple hyggst
breyta um örgjörva í tölvum sín-
um. Apple hefur frá árinu 1994
notast við örgjörva frá IBM en
hyggst nú skipta við Intel.
Árum saman hafa gengið
sögusagnir um að Apple hygðist
skipta um örgjörva og hækkuðu
hlutabréf í fyrirtækinu um 5
prósent þegar Wall Street Jo-
urnal birti frétt um að Apple og
Intel hefðu hafið samningavið-
ræður.
Intel hefur árum saman verið
ráðandi á örgjörvamarkaðnum
þótt IBM hafi undanfarið sótt í
sig veðrið. Ekki eru þó allir á
eitt sáttir við breytinguna enda
aðdáendur Apple með eindæm-
um hrifnir af gamla IBM-ör-
gjörvanum. Þeir telja að breyt-
ingin muni koma niður á gæðum
afurða fyrirtækisins. - jsk
STEVE JOBS FORSTJÓRI APPLE Jobs
heldur hér á nýjustu afurð fyrirtækisins,
Mac Mini-tölvunni sem brátt mun innihalda
Intel-örgjörva.