Fréttablaðið


Fréttablaðið - 20.06.2005, Qupperneq 54

Fréttablaðið - 20.06.2005, Qupperneq 54
MIÐVIKUDAGUR 15. JÚNÍ 2005 MARKAÐURINN18 H É Ð A N O G Þ A Ð A N Ásdísi Höllu Bragadóttur finnst gaman að fara úr pólitík og inn í viðskiptalífið og móta einhverja strauma og stefnur þar. Ásdís Halla Bragadóttir tók við forstjórastóln- um í Byko í lok maí og er hún upptekin þessa dagana við að kynna sér starfsemi fyrirtækis- ins. Hún hefur heimsótt starfsemi Byko víða um land. Ásdísi finnst eðlilegra að koma sér inn í starfið með því að heimsækja fólkið sem starfar hjá fyrirtækinu og ræða við það í stað þess að raða hlutum á skrifstofuna sína. Hún segir síðustu daga hafa verið mjög skemmti- lega. „Ég hef verið að þvælast um alls kyns verslanir, lagera, skrifstofur og margvíslega ranghala, hvort sem er hjá Byko, Elko, Inter- sport eða Húsgagnahöllinni. Það er búið að vera mjög gaman og lærdómsríkt.“ TRAUSTUR GRUNNUR Ásdís Halla segir Byko ganga mjög vel og hennar starf verður að leiða fyrirtækið. Yfir hverri verslanakeðju í Byko eru fram- kvæmdastjórar og eitt megin hlutverk Ásdís- ar verður að koma auga á ný tækifæri og nýta þau. Hún segir að eitt af því skemmtilegasta við Byko sé að um leið og grunnurinn sé traustur og hafi djúpar rætur sé fyrirtækið framsækið. „Byko er því mjög spennandi fyr- irtæki sem byggir á gömlum merg en er um leið tilbúið að taka áhættu og fara nýjar leiðir sem gaman verður að fást við.“ Ásdís segir mest aðkallandi hverju sinni fyrir öll fyrirtæki sé að sjá tæki- færin og halda áfram að mót- ast. „Það er í raun það sem ég verð upptekin við. Við verðum að sjálfsögðu að vera á tánum við að horfa fram á við og leita að verkefn- um og það er stærsta og mikilvægasta verkefnið. Byko verður að þróast með samfé- laginu og reyna að vera skrefi á undan til að mæta þörfum viðskiptavinanna sem best.“ Áður gengdi Ásdís Halla starfi bæjarstjóra Garðabæjar en hún hefur ekki áður rekið fyr- irtæki. Hún hefur sinnt alls kyns verkefnum og unnið við mismunandi starfsemi. „Þannig er starfið ný áskorun fyrir mig og mjög spenn- andi. Ég á eftir að læra margt og það er margt í þessari starfsemi sem ég á eftir að kynna mér betur. En á sama tíma þarf ég að gæta þess að fara ekki of mikið í daglegan rekstur og passa mig á því að hafa góða yfirsýn. GARÐABÆR LÍKUR BYKO Ásdís Halla var bæjarstjóri í Garðabæ áður en hún tók við forstjórastólnum í Byko. Þykir hún hafa staðið framarlega í skipulagsmálum og tekið þarft skref sem önnur sveitarfélög hafa ekki þorað eða viljað taka. Er framtíðarskipu- lag Garðabæjar gott dæmi um það. „Það er mjög gaman að fara úr pólitík og inn í við- skiptalífið og móta einhverja strauma og stefnur þar.“ Ásdís segist hafa tekið þátt í því með sam- starfsfólki bæði í pólitíkinni og meðal embætt- ismannanna að koma með nýjar hugmyndir um starfsemi sveitarfélagsins sem hafi fengið mjög góðar viðtökur. „Garðabær er rótgróið sveitarfélag með mikla sögu og sterka menn- ingu. En á sama tíma hefur Garðabær verið til- búinn að fara nýjar leiðir. Mér finnst spenn- andi að líta á Byko með sambærilegum hætti.“ Ásdís Halla hefur búið í Garðabæ frá 1994 með einu hléi. Þar býr hún ásamt manni sín- um, Aðalsteini Jónassyni og tveimur sonum sínum, þeim Jónasi Aðalsteini og Braga. Bragi er sex ára og stundar nám við Hjallastefnu- skólann hjá Margréti Pálu. Jónas, sem er 15 ára, er nýútskrifaður úr Garðaskóla og hyggst halda áfram námi í haust. Ásdís Halla segir hann nú standa frammi fyrir því að velja framhaldsskóla og nokkrir góðir kostir séu í boði. FLUTTI OFT SEM BARN Ásdís Halla hefur brenn- andi áhuga á pólitík og seg- ist alltaf hafa haft. „Ég alltaf haft mikinn áhuga á pólitík, alveg frá því að ég var smástelpa. Ég var ein að þvælast á pólitískum fundum þegar vinir mínir voru að gera eitthvað skemmtilegt eins og að vera í fé- lagsmiðstöðinni.“ En hvað finnst henni svona skemmtilegt við pólitík? „Ég held að það sé forvitni. Ég hef mikinn áhuga á samfélaginu og viðskipta- lífinu og hef alltaf haft gam- an að því.“ Ástæðuna fyrir þessari forvitni og áhuga á samfélög- um telur hún vera þá að hún flutti oft sem krakki og þá milli mismunandi samfélaga, allt frá sjávarþorpum til stór- borga. „Ég held að þessir flutningar hafi kveikt í mér áhuga á fólki, samfélagi, bæj- um, borgum og löndum. Af hverju hlutirnir eru öðruvísi hér en þar? Af hverju virkar eitthvað hér en virkar ekki þar? Af hverju má maður hegða sér öðruvísi hér en þar?“ GAMAN AÐ LÆRA Ásdís segist vera sveita- stelpa. Á framhaldsskólaár- unum bjó hún á Akranesi og stundaði því nám við Fjölbraut- arskóla Vesturlands á Akranesi. Seinna flutti hún til Reykjavíkur til að læra stjórnmála- fræði í Háskólanum. Eftir það starfaði hún sem blaðamaður á viðskiptablaði Morgun- blaðsins en fékk svo leyfi þaðan til að gegna stöðu framkvæmdastjóra þingflokks Sjálf- stæðismanna. Eftir það varð Ásdís Halla að- stoðarmaður menntamálaráðherra og svo lá leið hennar til Boston, nú til að læra MPA. Hún var svo komin í vinnu fyrir Háskólann í Reykjavík þegar bæjarstjórastaðan í Garða- bæ losnaði. Ásdís er mjög heilluð af námi og finns gaman að læra eitthvað nýtt. „Það er kannski hluti af því að skipta um starf og snúa svona við blaðinu eins og ég er að gera. Mér finnst mikil forréttindi að vera á fullu kaupi við að læra eitthvað nýtt og fá tækifæri til verja tíma með fullt af áhugaverðu fólki til að hella mér á kaf í starfsemi Byko.“ OPNA Í LETTLANDI En hvað er svo á döfinni hjá Ásdísi Höllu á næstunni annað en að koma sér inn í starfið í Byko? Hún segir að í sjálfu sér fari mesta orkan í það næstu mánuðina að kynna sér starf- ið og því fari hún varlega í allar yfirlýsingar um nýjung- ar eða breytingar í rekstrin- um. Nefnir þó að eitt af því sem sé spennandi sé opnun verslana í Lettlandi undir heitinu Depo. „Fyrsta versl- unin opnar seinna í sumar en í Lettlandi eru þrjár verslan- ir í undirbúningi á þessu ári.“ Opnun verslana eru ekki fyrstu skref Byko í Lettlandi því fyrir er timburfram- leiðsla sem heyrir undir eign- arhaldsfélagið Norvik, sem Byko er hluti af. Ásdís Halla segir opnun verslananna ekki upphafið að neinni útrás. Jón Helgi Guðmundsson, eigandi Byko, hafi um langt skeið verið mikið í alþjóðasam- skiptum og náð þar góðum ár- angri í fjölþættum verkefnum. Opnun verslan- anna sé eðlilegt framhald af því starfi. Óhætt er að fullyrða að mörg krefjandi verkefni bíða Ásdísar Höllu og hún á eflaust margt eftir ólært. Hún lítur á það mjög já- kvæðum augum, uppfull af orku til að takast á við námið. Hádegisverður fyrir tvo á Kaffihorninuí BYKO Saltfiskréttur Kaffihornsins ásamt salati og ávöxtum Drykkir: Pepsi Vatn Kaffi með mjólk Maturinn var í boði Ásdísar Höllu ▲ H Á D E G I S V E R Ð U R I N N Með Ásdísi Höllu Bragadóttur forstjóra BYKO Nútíðin er lykill framtíðar Þá er þetta komið af stað. Aura- sálin er lögð af stað í leiðangur- inn sem mun skila henni á leið- arenda – í ríkidæmi og fjárhags- legt öryggi til æviloka. Aurasál- in er búin að stofna sitt eigið fyrirtæki. Aurasálin er orðin gúrú og er búin að stofna ráðgjafafyrirtæk- ið: „Samhæfðar heildarlausnir Group ehf.“ Fyrirtækið fer lík- lega á markað í haust og í tilefni af því verður haldin umfangs- mikil kynning fyrir fagfjárfesta í vor og í kjölfarið á því verður haldið svalasta partí sem sögur fara af á Íslandi. Aurasálin hef- ur þegar sett sig í samband við David Beckham og Sylvester Stallone um að mæta á svæðið. Hugmyndin er í sem fæstum orð- um sú að ráðgjafafyrirtækið muni einbeita sér að framtíðinni en þó með hliðsjón bæði af þró- un í fortíð og stöðu í nútíð. For- tíðin er grunnur framtíðarinnar og nútíðin er brú á milli fortíðar og framtíðar. Til þess að rata á leiðarenda þurfa bæði markmið og stefnumið að liggja fyrir, ásamt kostgæfnisathugun og næmnigreiningu. Aurasálin telur að margir í við- skiptalífinu vanmeti nútíðina, of- meti framtíðina og líti algjörlega framhjá fortíðinni. Þetta getur haft mjög alvarlegar afleiðingar og getur komið í veg fyrir að heildrænar alþjóðlegar og hlið- rænar lausnir nái fram að ganga með tilheyrandi samþættingu, hagræðingu og EBITDA fram- legð. Með því að binda fortíð og framtíð saman með nútíðina að leiðarljósi skapast möguleiki til samlegðaráhrifa milli hins liðna, þess ókomna og hins framliðna. Aurasálin spáir því að fyrirtæki morgundagsins séu þau fyrir- tæki dagsins í dag sem ekki hafa gleymt gærdeginum. Með sam- þættingu verður frumkvæði og með frumkvæði verður fram- sækni. Með framsækni verða framfarir og með framförum verður samþætting og úr sam- þættingu skapast heildrænt al- hliða umhverfi sem er í senn klassískt, nútímalegt og framtíð- arhneigt. Með þessum áherslum hyggst Aurasálin brúa bilið milli fortíðar og framtíðar með nútíð- inni. En Aurasálin veit að þekking á at- vinnulífinu er ekki nóg til að ná árangri sem framsækinn og nú- tímalegur ráðgjafi. Allar lausnir þurfa að vera í senn viðmótsþýð- ar og bjóða upp á alhliða heildar- innleiðingu sem tryggja bæði einsleita og fjölbreytta sýn á upplýsingar og verkferla. Hver verkaðili mun innan kerfis Aura- sálarinnar geta þjónustað hvern þjónustuaðila og eiga greiðan að- gang að þeim ráðgjafaraðilum sem eru aðilar að hverju máli. Nútíð og framtíð Aurasálarinnar eru tryggðar. A U R A S Á L I N Ásdís Halla Bragadóttir Fæðingardagur: 6. júlí 1968 Maki:Aðalsteinn Jónasson Börn:Jónas Aðalsteinn 15 ára og Breki 6 ára ÁSDÍS HALLA BRAGADÓTTIR „Það er mjög gaman að fara úr pólitík og inn í viðskiptalífið og móta einhverja strauma og stefnur þar.“ Nýtir tækifærin Fr ét ta bl að ið /H ar i
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.