Fréttablaðið - 20.06.2005, Qupperneq 72
15. júní 2005 MIÐVIKUDAGUR28
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
12 13 14 15 16 17 18
Miðvikudagur
JÚNÍ
■ ■ LEIKIR
19.15 ÍA og Keflavík mætast á
Akranesvelli í Landsbankadeild karla
í knattspyrnu.
20.00 Valur og FH mætast á
Hlíðarenda í Landsbankadeild karla í
knattspyrnu.
20.00 HK og Fjölnir mætast á
Kópavogsvelli í 1. deild karla í
knattspyrnu.
■ ■ SJÓNVARP
07.00 Olíssport á Sýn. Endursýndur
þáttur.
07.30 Olíssport á Sýn. Endursýndur
þáttur.
08.00 Olíssport á Sýn.
Endursýndur þáttur.
08.30 Olíssport á Sýn.
Endursýndur þáttur.
17.30 Olíssport á Sýn. Endursýndur
þáttur.
14.00 Olíssport á Sýn.
Endursýndur þáttur.
15.15 Kraftasport á Sýn. Sterkasti
maður Íslands 2004.
15.45 Álfukeppnin á Sýn. Leikur
Argentínu og Túnis.
17.55 NBA á Sýn. Spurs gegn
Pistons.
19.40 Landsbankadeildin á Sýn.
Stórleikur Vals og FH í beinni
útsendingu.
22.00 Olíssport á Sýn. Bein
útsending.
22.20 Formúlukvöld á Rúv.
23.15 Álfukeppnin á Sýn. Leikur
Argentínu og Túnis.
HNEFALEIKAR Mike Tyson hnefa-
leikakappi steig í síðasta sinn í
hringinn um helgina er hann
mætti írska risanum Kevin
McBride. Sá síðarnefndi sá um að
Tyson hóf aldrei í keppni í 7. lotu
og gaf þar með bardagann. Fram
að því hafði McBride hamrað á
Tyson sem reyndi þó allt sem
hann gat til að klekkja á andstæð-
ingnum.
Það er löngu orðið frægt er
Tyson beit hluta af eyra Evander
Holyfield í bardaga þeirra árið
1997 og virðist sem svo að hann
hafi lítið lært af því. Í sjöttu lotu
bardagans gegn McBride mun
hann hafa beitt tönnunum á nýjan
leik, í þetta sinn beit hann í geir-
vörtu andstæðings síns. Tyson
hafði einnig stangað McBride
með þeim afleiðingum að hann
hlaut skurð við vinstra augað. Tók
dómarinn í hringnum tvö stig af
Tyson fyrir. Þá segir McBride
einnig að Tyson hafi reynt að
handleggsbrjóta sig. „Hann var
orðinn örvæntingafullur. Að lok-
um hætti hann einfaldlega vegna
þess að hann hafði fengið nóg,“
sagði McBride í samtali við enska
fjölmiðla. - esá
MYNDARLEGUR SKURÐUR Mike Tyson veitti Kevin McBride höfuðáverka í bardaganum á
laugardagskvöld. FRÉTTABLAÐIÐ/NORDIC PHOTOS/AFP
Mike Tyson reynir enn að éta andstæðinga sína:
Beit í geirvörtu McBride
Lítil not fyrir Bretana í Vestmannaeyjum:
Bá›ir lána›ir í 2. deildina
FÓTBOLTI Bresku knattspyrnu-
mennirnir Lewis Dodds og Jack
Wanless hafa verið lánaðir til
Selfoss en þeir voru fengnir til
ÍBV fyrir tímabilið.
Eftir því sem kemur fram á
heimasíðu ÍBV mun tilhögun
þessa fyrirkomulags vera sú að
Eyjamenn geti kallað á leik-
mennina aftur til Eyja ef þeirra
telst vera þörf. Annars er ekki
loku fyrir það skotið að þeir
dvelji hjá Selfyssingum út tíma-
bilið. Selfyssingar eru sem
stendur í 2. sæti annarar deildar
með 9 stig eftir fimm leiki.
Dodds hefur leikið þrjá leiki fyr-
ir Eyjamenn í sumar og hefur
unnið sér það helst til frægðar að
vera rekinn af velli í 2. umferð
gegn Keflavík eftir að hafa kom-
ið inn á sem varamaður.
Handboltarisinn a› vakna
HANDBOLTI Kvennalið FH hefur
styrkst verulega síðustu vikur
með komu örvhentu skyttunnar
Ásdísar Sigurðardóttur frá
Stjörnunni og hinnar stórefnilegu
Örnu Gunnarsdóttur sem kom frá
Gróttu/KR. FH er þar að auki með
tvær sterkar erlendar stúlkur til
reynslu, annars vegar landsliðs-
markvörð Litháa og svo norskan
leikmann sem lék undir stjórn
þjálfara FH, Kristjáns Halldórs-
sonar, í Noregi en hún getur leikið
bæði sem línumaður og skytta.
„Við ætlum okkur stóra hluti,
bæði í karla- og kvennaflokki. Við
erum fjölmörg sem komum að
þessu og erum orðin þreytt á með-
almennskunni og getum ekki
horft upp á þetta ástand öllu leng-
ur,“ sagði Örn Magnússon, for-
maður handknattleiksdeildar FH.
Mikill metnaður
„FH er félag sem er í fremstu
röð í fótbolta og frjálsum, en hef-
ur samt hingað til verið þekktast
fyrir að vera handboltarisi. Það er
kominn tími til þess að vekja
þennan handboltarisa. Metnaður
okkar er einfaldur: Það er að tefla
fram tveimur liðum sem eru sam-
keppnishæf eða eiga raunhæfan
möguleika á titilbaráttu.“
Fyrir utan þessa fínu viðbót
hefur landsliðskonan Guðrún
Drífa Hólmgeirsdóttir skrifað
undir nýjan samning og skyttan
Dröfn Sæmundsdóttir mun vænt-
anlega gera nýjan samning við fé-
lagið þar sem ekki er útlit fyrir að
framhald verði á Spánardvöl
hennar.
Karlaliðið hefur einnig styrkst
mikið síðustu vikur, en FH er búið
að gera samning við litháíska
skyttu og svo hefur félagið fengið
Andra Berg Haraldsson og Daníel
Berg Grétarsson. Örn segir að þar
verði ekki látið staðar numið held-
ur ætli félagið sér einn til tvo
sterka leikmenn til viðbótar.
henry@frettabladid.is
Handknattleiksdeild FH er stórhuga fyrir næsta tímabil og safnar li›i í
kvenna- og karlaflokki. Forma›urinn deildarinnar er búinn a› fá nóg af me›-
almennskunni og segir kominn tíma á a› vekja handboltarisann.
KRISTJÁN SAFNAR LIÐI Það er ljóst að Kristján Halldórsson sættir sig ekki við miðlungs-
mennsku næsta vetur með kvennalið FH. Hann hefur fengið verulegan liðsstyrk og er enn
að safna liði. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
SAMAN Á NÝ? Phil Jackson og Kobe Bryant
gætu unnið saman á nýjan leik næsta
vetur. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY IMAGES
Lakers komið með þjálfara:
Phil Jackson
sn‡r aftur
KÖRFUBOLTI Phil Jackson var í gær
ráðinn á ný sem þjálfari Los Ang-
eles Lakers en hann var rekinn
frá félaginu fyrir ári síðan. Hann
skrifaði undir þriggja ára samn-
ing við félagið og er talinn fá um
10 milljónir dollara á ári í laun.
Það er óhætt að segja að
Lakers-liðið hafi hrunið eftir fjar-
veru Jacksons en það missti
Shaquille O’Neal til Miami og
Kobe Bryant var ólíkur sjálfum
sér. Til að undirstrika hrunið
komst Lakers ekki einu sinni í úr-
slitakeppninna í ár og það aðeins í
annað skipti síðan 1976.. Lakers
tapaði 19 af síðustu 21 leik sínum
í NBA-deildinni.
Jackson hefur níu sinnum stýrt
liði til sigurs í NBA-deildinni – sex
titla vann hann með Chicago og
þrjá með Lakers. Hann er jafn
Red Auerbach, fyrrum þjálfara
Boston, yfir flesta sigra í sögu
NBA-deildarinnar. - hbg