Fréttablaðið - 20.06.2005, Qupperneq 75
31MIÐVIKUDAGUR 15. júní 2005
FRÉTTIR AF FÓLKI
DSC-T7 & 512 MB minniskort
Stafræn myndavél
• 3x optical Carl Zeiss linsa
• 5,1 milljón pixlar
• 2,5" skjár
4.995 krónur á
mánuði vaxtalaust*
59.940 krónur staðgreitt
Sumartilboð í Sony Center
512 MB minniskort fylgir!
*Miðað við 12 vaxtalausar jafnar greiðslur á Visa eða Mastercard skuldabréf. 0,5% stimpilgjald bætist við samningsfjárhæðina og greiðist með jöfnum greiðslum yfir samningstímann.
512 MB minniskort
að verðmæti 10.995,-
fylgir með!
DSC-S90 & 512 MB minniskort
Stafræn myndavél
• 3x optical Carl Zeiss linsa
• 4,1 milljón pixlar
• 2,5" skjár
3.495 krónur á
mánuði vaxtalaust*
41.940 krónur staðgreitt
DSC-P200 & 512MB minniskort
Stafræn myndavél
• 3x optical Carl Zeiss linsa
• 7,2 milljón pixlar
• 2" skjár
4.495 krónur á
mánuði vaxtalaust*
53.940 krónur staðgreitt
Eftir að popparinn Michael Jackson
var sýknaður af ákæru um kynferð-
islega misnotkun velta menn fyrir
sér hvað verði um kappann.
Mun hann snúa sér aftur að tón-
listinni eða mun hann loka sig al-
gjörlega af og slíta öll samskipti við
umheiminn? Málið virðist aðallega
snúast um traust. Getur almenning-
ur treyst Jackson á nýjan leik eftir
allar þær ásakanir sem hafa verið
bornar á hendur honum og þær ítar-
legu upplýsingar um einkalíf hans
sem voru dregnar fram í dagsljósið
í réttarhöldunum? Ekki er heldur
víst að Jackson eigi sjálfur auðvelt
með að treysta nokkrum manni eft-
ir allan fjölmiðlasirkusinn undan-
farin ár og það fólk sem hefur reynt
að notfæra sér frægð hans. Því er
alveg óvíst hvort hann hefði á annað
borð áhuga á að vera áberandi í tón-
listinni í framtíðinni.
Sérfræðingar í Bandaríkjunum
virðast vera á öndverðum meiði um
það hvort Jackson eigi sér viðreisn-
ar von. „Jackson þarf ná einbeitingu
á nýjan leik og búa til frábæra
plötu,“ segir Anthony DeCurtis, hjá
tímaritinu Rolling Stone, í viðtali
við CNN. Bætir hann því við að
Jackson þyrfti að nota tækifærið og
létta þeirri byrði af sér að þurfa að
endurtaka vinsældir sínar frá ní-
unda áratugnum. Þá gaf hann meðal
annars út Thriller sem er ein mest
selda plata allra tíma. „Slíkar vin-
sældir koma ekki tvisvar,“ segir
hann. „Ég held að þetta hafi hamlað
sköpunargáfu Jackson.“
Forstjóri plötuframleiðandans
Island/Def Jam Records, Antonio
„LA“ Reid er á því að Jackson eigi
góða möguleika á að spjara sig.
„Hann þarf ekki að vera á flótta. Þú
ert Michael Jackson og þarft að
skilja hvað það þýðir. Þú ert stór-
stjarna, þú ert goðsögn,“ segir Reid,
sem hvetur Jackson til að hætta að
einangra sig. „Þú ættir að flytjast til
New York og kynnast malbikinu.
Farðu á veitingastaði, slappaðu af,
farðu á klúbba og hlustaðu á tónlist.
Þá fer fólk að hugsa: „Michael er að
bara nokkuð eðilegur náungi.“
Prófessor Robert Thompson,
sérfræðingur í poppmenningu, er
óviss um hvort eitthvað sé fyrir
hendi sem hægt er að bjarga varð-
andi feril Jackson. „Það er næstum
áratugur liðinn síðan fólk hlakkaði
meira til að heyra nýja plötu frá
Jackson heldur en að fylgjast með
nýjasta hneykslismáli hans.
Hann hefur gert hvern
skandalinn á fætur öðrum
sem við höfum notið þess að
fylgjast með.“
Michael Jackson er um
þessar mundir staddur á
búgarði sínum Neverland
þar sem hann er að jafna
sig eftir hin erfiðu réttar-
höld sem hafa tekið sinn toll
hjá honum, bæði andlega og
líkamlega. Á meðan ætti
hann að hafa tíma til að liggja
undir feldi og íhuga næsta leik
sinn. freyr@frettabladid.is
MICHAEL JACKSON Hinn sjálfskipaði
konungur poppsins er fyrir löngu
fallinn af þeim stalli. Margir bíða
spenntir eftir því að sjá hvað
hann tekur til bragðs núna.
Hva› ver›ur um Michael Jackson?
Kærastisöngspírunnar
Charlotte Church,
Gavin Henson, er
greinilega mjög
latur. Charlotte
flaug yfir hálfan
hnöttinn til að
hitta gæjann í
þrjá daga en
þegar skvísan
lenti á flug-
vellinum
hafði hann ekki
nennt að koma að sækja hana og
sendi í staðinn fulltrúa. Charlotte
leit út fyrir að vera leið þegar hún
steig upp í leigubíl og keyrði á hót-
elið sem hann gisti á, en það var
aðeins í korters fjarlægð. Gavin, sem
er ruðningskappi, var þar staddur að
spila á móti í Nýja-Sjálandi.
MichaelJackson
hefur borið
sýknudóm sinn
saman við það
þegar Nelson
Mandela var sleppt
úr fangelsi. Á vefsíðu
hans var orðið „sak-
laus“ birt stórum
stöfum við sigurtón-
list og sagt að dag-
setning sýknunar-
innar muni verða
jafn eftirminnileg í
sögubókum og dag-
setning falls Berlínar-
múrsins og fæðingar-
dagur Martins Lúther King.
Kabbalahtrú Madonnuhefur enn á
ný fært hana á
nýjar slóðir. Nú er hún
orðin hóteleigandi. Popp-
söngkonan eyddi um
200 milljónum í að
kaupa hús í Regen Park
hverfinu í London og ætlar
að gera það að hóteli
og athvarfi fyrir fylg-
ismenn Kabbalah.
Rod Stewart sem er þessa dag-ana að skilja við aðra eiginkonu
sína, Rachel Hunter, fékk frekar
óskemmtilegar fréttir
nýlega. Dóttir hans
úr fyrsta hjóna-
bandi, Kimberley
Stewart, hefur
eignast nýjan
kærasta sem heitir
Wes Scantlin.
Það slæma er
að hann er
fyrrverandi
kærasti
Rachelar,
en hún var
stjúp-
mamma
Kimberley í
allmörg ár.
Christian Bale seg-ist hafa skrifað
undir samning um að
leika í annarri Batman
mynd. „Ég veit ekki
hvort einhver hinna
leikaranna ætlar
að vera með,
en svo lengi
sem fólk verður
ánægt með mig
í myndinni þá
ætla ég að koma
aftur,“ sagði
breski leikarinn.