Fréttablaðið - 20.06.2005, Qupperneq 82
Vörubílstjóri ræðst
á 12 ára
dreng
Árásin náðist
á myndband
Leðurblökumaðurinn var afskrifað-
ur árið 1997 þegar Joel Schumacher
misbauð aðdáendum grímuklædda
bófabanans sem og almennum bíó-
gestum með myndinni Batman og
Robin sem var svo slæm að líkam-
leg óþægindi voru meðal þeirra
aukaverkana sem fylgdu því að
sitja undir ósköpunum þar sem Ge-
orge Clooney og Arnold
Schwarzenegger gerðu sig að fífl-
um í einni verstu bíómynd sögunn-
ar.
Það var almennt talið að með
þessari mynd hefði Schumacher
tekist að drepa Leðurblökumann-
inn. Eitthvað sem Jókernum, Mör-
gæsinni og öðrum erkióvinum Bat-
mans hafði aldrei auðnast. Það er
því óhætt að segja að leikstjórinn
Christopher Nolan hafi unnið dálítið
kraftaverk með nýjustu mynd sinni,
Batman Begins, þar sem hann reis-
ir þennan skuggalega riddara göt-
unnar upp frá dauðum og það besta
er að hann hefur aldrei verið öfl-
ugri.
Það er deginum ljósara að Nolan,
handritshöfundurinn og aðalleikar-
inn Christian Bale bera virðingu
fyrir Batman og það eru því engin
fíflalæti í gangi hérna. Miklum tíma
og púðri er eytt í persónusköpun
hetjunnar og að því leyti má segja
að Nolan feti svipaða slóð og Tim
Burton í tímamótamyndinni Bat-
man frá árinu 1989. Þar var sett
spurningarmerki við andlega heilsu
hetjunnar og það sama er uppi á
teningunum hér. Milljarðaerfinginn
Bruce Wayne glímir við fortíðar-
drauga og reynir að vinna bug á
sorginni sem heltók hann þegar for-
eldrar hans voru myrtir með því að
berjast gegn glæpum í Gotham
borg.
Fyrsti hluti Batman Begins segir
þessa sköpunarsögu Batmans og
hér sækir handritshöfundurinn
markvisst í myndasögubók Franks
Miller Batman: Year One og það er
varla hægt að hugsa sér traustari
grunn fyrir öfluga Batman mynd en
einmitt þessa snilldarbók.
Efniviðurinn er líka svo safarík-
ur að það er töluvert liðið á myndina
áður en Batman birtist í allri sinni
dýrð en það er nógu mikið í gangi til
að maður finni ekkert fyrir fjarveru
búningsins og bílsins. Christian
Bale smellpassar í hlutverkið og
búninginn loksins þegar hann kem-
ur sér í hann og hér er loksins kom-
inn fram leikari sem ræður við báð-
ar hliðar klofinnar persónu Bruce
Wayne/Batmans. Bale toppar Mich-
ael Keaton, Val Kilmer og George
Clooney án þess að reyna á sig og
gerir Batman algerlega að sínum.
Hann er dyggilega studdur frábær-
um aukaleikurum en þar fer Mich-
ael Caine fremstur sem hinn hund-
tryggi Alfred, einkaþjónn Batmans.
Þá er Gary Oldman traustur að
vanda sem Gordon, tilvonandi lög-
reglustjóri, og eini óspillti banda-
maður Blaka innan lögreglunnar í
Gotham. Morgan Freeman og Liam
Neeson klikka ekki frekar en fyrri
daginn og Rutger Hauer setur sinn
svip á myndina í litlu hlutverki.
Nolan og samstarfsfólki hans
hefur hér tekist með samstilltu
átaki að bjarga einni flottustu
myndasögupersónu allra tíma úr
því víti sem Joel Schumacer skóp
henni fyrir átta árum og þetta er
svo sannarlega ný byrjum. Svona á
að gera Batman-myndir og okkar
maður hefur aldrei verið betri og
maður getur varla beðið eftir að fá
að sjá meira af Bale í gervi svalasta
myndasögutöffara allra tíma.
Þórarinn Þórarinsson
Mögnu› upprisa Le›urblökumannsins
BATMAN BEGINS
LEIKSTJÓRI: CHRISTOPHER NOLAN
AÐALHLUTVERK: CHRISTIAN BALE, MICHAEL
CAINE, LIAM NEESON, GARY OLDMAN
NIÐURSTAÐA: Svona á að gera Batman-myndir og
okkar maður hefur aldrei verið betri og maður get-
ur varla beðið eftir að sjá meira af Bale í gervi
svalasta myndasögutöffara allra tíma.
[ KVIKMYNDIR ]
UMFJÖLLUN
HUGSAÐU STÓRT
SÍMI 564 0000
Sýnd kl. 3.50 m/ísl. taliSýnd kl. 5.45, 8 og 10.15
Sýnd kl. 4, 5, 7, 8 og 10
Sýnd í Lúxus kl. 5 B.i. 10 ára
★★★★★ Fréttablaðið
★★★★1/2 kvikmyndir.is
★★★★ MBL
★★★★ X-FM
★★★1/2 SJ Blaðið 1/2
★★★1/2 Kvikmyndir.com
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.40
Sýnd í Lúxus kl. 8 og 10.40 B.i. 14 ára
Yfir 12.000 gestir á aðeins 4 dögum!
Yfir 35.000 gestirAðsóknarmestamynd ársins„Skotheld frá A-Ö“
„Afþreying í
hæsta klassa“
★★★ 1⁄2 K&F- XFM
★★★ Blaðið
„Þrælgóð
skemmtun“
★★★ Ó.Ö.H. DV
★★★★ Þ.Þ. FBL
SÍMI 551 9000
400 kr. í bíó! Gildir á allar sýningar merktar með rauðu
Sýnd kl. 6, og 9 B.i. 10 ára
★★★★
O.H.T. Rás 2Downfall
Sýnd kl. 5.20
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30 B.i. 14 ára
★★★ HL MBL
Sýnd kl. 8 og 10.45 Bi. 16 ára
Breskur glæpatryllir eins og þeir gerast bestir.
Svartur húmor, ofbeldi og cool tónlist með
Cult, Starsailor, FC Kahuna og Duran Duran.
Frá framleiðendum Lock Stock & Snatch
★★★
ÓÖH DV
Yfir 35.000 gestirAðsóknarmestamynd ársins
★★★★★ Fréttablaðið
★★★★1/2 kvikmyndir.is
★★★★ MBL
★★★★ X-FM
★★★1/2 SJ Blaðið 1/2
★★★1/2 Kvikmyndir.com
Sýnd kl. 5,40, 8 og 10.20 B.i. 16 ára
„Skotheld frá A-Ö“
„Afþreying í
hæsta klassa“
★★★ 1⁄2 K&F- XFM
★★★ Blaðið
„Þrælgóð
skemmtun“
★★★ Ó.Ö.H. DV
★★★★ Þ.Þ. FBL
Yfir 12.000 gestir á aðeins 4 dögum!
Kerry Katona,sem brátt
verður fyrrver-
andi eiginkona
Brians McFa-
dden úr Westli-
fe, er svo djúpt
sokkin í eitur-
lyfjaneyslu að vinir hennar óttast
um líf hennar. Þegar Brian fór frá
henni fyrir söngkonuna Deltu
Goodrem í september 2004 sökk
Kerry í djúpt þunglyndi. „Hún reyndi
að flýja þunglyndið með neyslunni,“
sagði besta vinkona hennar, Joanne
Goodier. „Hún er farin að fá of-
skynjanir og sagði mér að glugga-
tjöldin töluðu við sig,“ sagði Joanne.
Pamela Anderson hefur ekki ver-ið mikið fyrir skjólgóð föt og hér
er ástæðan: „Mér finnst föt alltaf
gera mann svo
feitan, þannig að
mér finnst best að
vera bara nakin,“
sagði þokkadísin.
Þegar hún getur
ekki verið nakin
reynir hún að vera
í sem fæstum fötum til að sýna lín-
urnar. Pamela hefur þó aldrei þótt
þurfa að hafa áhyggjur af aukakíló-
unum því fyrir utan gríðarstór brjóst-
in eru hún þvengmjó.
Vinningar verða afhentir hjá BT Smáralind. Kópavogi.
Með því að taka þátt ertu kominn í SMS klúbb. 199 kr/skeytið
God og War
Kippur af Coca Cola
DVD myndir
Aðra tölvuleiki
Og margt fleira.
BTL GAME
á númerið 1900
og þú gætir unnið.
D3
Þú gætir unnið:
Sendu SMS skeytið
12. hver vinnur.
NÚ
í bíó!
Misstu ekki af umtöluðustu og
svölustu mynd sumarsins.