Fréttablaðið - 27.06.2005, Blaðsíða 43
Lýsing: Á efri hæð er forstofa með flísum, gestasal-
erni, hol, rúmgóð stofa og fatahengi. Hálfopið eldhús
og borðstofa. Parkett er á öllu rýminu og er loftið upp-
lyft. Eldhúsið er með eikarinnréttingu með eyju, borð-
krók, innbyggðum ísskáp, keramikhelluborði og tveim-
ur gluggum. Stofan er með mjög stórum gluggum og
mikilli glerrennihurð. Borðstofan er sömuleiðis með
stórum gluggum. Á neðri hæð er flísalagt hol og gang-
ur. Stórt rými sem notað er sem tómstundaherbergi
og flísalagt þvottahús, sturtuaðstaða og geymslurými.
Annars er hæðin að mestu klædd með fallegum kirsu-
berjaviði. Þrjú svefnherbergi eru á hæðinni, tvö með
yatoba-parketti og eitt er panelklætt með korkflísum.
Baðherbergið er með marmaraflísum á gólfi, steyptu
baðkeri, panelklæddum veggjum og eikarinnréttingu.
Sjónvarpsstofa og stór sólskáli með nuddpotti.
Úti: Húsið stendur næst auðu svæði neðan við götuna
og garðurinn er fallegur og gróinn. Í garðinum er tré-
pallur og hellulögð verönd.
Annað: Fallegt útsýni yfir Laugardalinn er af efri hæð
hússins. Bílskúr er innbyggður.
104 REYKJAVÍK Parhús á eftirsóttum stað
Laugarásvegur 30: Parhús á tveimur hæðum með innbyggðum bílskúr.
Verð: 60 milljónir. Fermetrar: 230,5. Fasteignasala: Draumahús.
Um er að ræða glæsilegt einbýlishús á þessum eftirsótta stað í Garðabæ, alls um 260
fm. Húsið er að mestu á einni hæð, en þó er rými í kjallara með sér inngangi þ.e. tvö
herbergi sem nýta mætti með ýmsu móti. Húsið skiptist að öðru leyti í fjögur herb.,
stofur, og sólstofu, auk eldhúss og baðherbergis. Þvottahús er innaf eldhúsi og stór
innb. bílskúr. Lóðin er stór og gróin og garðurinn í mikilli rækt og einstaklega skjólsæll
og fallegur. Þetta er hús sem hentar mörgum og því vert að skoða strax. Ásett verð
52,5 millj.
Sölumaður frá Höfða verður á staðnum milli kl. 18 og 20 í dag. Allir velkomnir.
SÍMI 565 8000
SÍMI 533 6050
Bæjarhraun 22
Suðurlandsbraut 20
Runólfur Gunnlaugsson, viðskiptafræðingur, löggiltur fasteigna- og skipasali
Markarflöt 20 Garðabæ
Opið hús í dag milli kl. 18 og 20