Fréttablaðið - 27.06.2005, Blaðsíða 80
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 550 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 550 5005, fax: 550 5006, ritstjorn@frettabladid.is
DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 550 5000
555 7500
Gerum þök og
svalagólf vatnsheld
Nánari upplýsingar á www.pace.is
Málarameistari sér um þakið
Síðan 1991
Opel Astra er frábær, alhli›a heimilisbíll. Hann er sterkur, rúmgó›ur, lipur, vanda›ur, öruggur og skemmtilegur.
Ef flú trúir okkur ekki, komdu flá og fá›u hann lána›an í heila 3 daga. Far›u hvert sem flér s‡nist. S‡ndu vinum
flínum hann, og ekki gleyma fjölskyldunni. Snertu hann, snú›u honum, klappa›u honum og vertu me› honum
flanga› til flú flekkir hann út og inn. Svo skaltu skila honum – ef flú getur.
Opel. fi‡ski gæ›ingurinn.
Sævarhöf›a 2 Sími 525 8000 www.ih.is Opi›: Mánudaga - föstudaga kl. 9:00 - 18:00
e›a á millionmiles@ih.is
www.opel. is
Nánari uppl‡singar um Opel hjá Ingvari Helgasyni fær›u á www.opel.is
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
F
I
1
2
6
4
5
Vit e›a strit?
Áinnan við 100 árum hafa Íslend-ingar brotist til allsnægta úr
sárustu fátækt. Við sem fyrir
nokkrum áratugum vorum í hópi
snauðustu íbúa jarðarinnar og
lifðum við hungur, skort og barna-
dauða, búum nú við meiri auðsæld
en flestar aðrar þjóðir í veröldinni.
Þjóðfélagið leggur áherslu á að
skapa svigrúm fyrir hina sterku til
að nota kraftana, en um leið ríkir
hér nægileg samstaða til að halda
úti öryggisneti til að forða þeim
pastursminni frá því að hrapa
stjórnlaust niður í hyldýpið undir
þegar atgangur hinna sterku verður
hvað harðastur.
SÉÐ út um dyrnar á moldarkofa
hlýtur þetta þjóðfélag okkar að telj-
ast eftirsóknarvert. Það er ekki fyrr
en fólk hefur náð að seðja hungur
sitt að í ljós kemur að það hefur
margar og mismunandi skoðanir.
SÉÐ út um stofuglugga úr hýbýlum
þess sem býr við allsnægtir má sjá
marga agnúa á þjóðfélagsgerðinni
og auðvelt að gagnrýna einstaka
hluti og spyrja: Af hverju er þetta
svona og hitt ekki hinsegin?
GREINILEGA hlýtur að hafa búið
mikill kraftur í ömmum okkar og
öfum og þeim formæðrum og for-
feðrum sem tóku sig til og brutust á
innan við 100 árum úr örbirgð til
þeirra allsnægta sem við höfum átt
svo auðvelt með að venjast og lítum
á sem sjálfsagðan hlut. Vonandi er
eitthvað eftir af þeim krafti, og von-
andi hefur velsældin ekki komið
okkur til að gleyma því að því
Grettistaki sem þjóðin hefur náð að
lyfta var lyft með samtakamætti
þjóðarinnar, ekki með ómennsku afli
einstakra kraftakarla.
SÖMULEIÐIS er gott að muna að
meira vinnur vit en strit. Það er
menntun sem auðsæld okkar byggist
á.
EF við viljum halda áfram að stefna
í framfaraátt ættum við að gefa
gaum að orðum Páls Skúlasonar sem
nú er að láta af störfum eftir ein-
staklega farsælan feril sem rektor
Háskóla Íslands. Við útskriftar-
athöfn nú um helgina lét hann þess
getið að sér sárnaði að Háskóla Ís-
lands skyldi ekki vera gert það
kleift fjárhagslega að standa undir
því hlutverki sem lög gera ráð fyrir.
Þar vantar milljarð upp á. Er vit í
þessu?
BAKÞANKAR
ÞRÁINS BERTELSSONAR