Fréttablaðið - 27.06.2005, Síða 80

Fréttablaðið - 27.06.2005, Síða 80
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 550 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 550 5005, fax: 550 5006, ritstjorn@frettabladid.is DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 550 5000 555 7500 Gerum þök og svalagólf vatnsheld Nánari upplýsingar á www.pace.is Málarameistari sér um þakið Síðan 1991 Opel Astra er frábær, alhli›a heimilisbíll. Hann er sterkur, rúmgó›ur, lipur, vanda›ur, öruggur og skemmtilegur. Ef flú trúir okkur ekki, komdu flá og fá›u hann lána›an í heila 3 daga. Far›u hvert sem flér s‡nist. S‡ndu vinum flínum hann, og ekki gleyma fjölskyldunni. Snertu hann, snú›u honum, klappa›u honum og vertu me› honum flanga› til flú flekkir hann út og inn. Svo skaltu skila honum – ef flú getur. Opel. fi‡ski gæ›ingurinn. Sævarhöf›a 2 Sími 525 8000 www.ih.is Opi›: Mánudaga - föstudaga kl. 9:00 - 18:00 e›a á millionmiles@ih.is www.opel. is Nánari uppl‡singar um Opel hjá Ingvari Helgasyni fær›u á www.opel.is F í t o n / S Í A F I 1 2 6 4 5 Vit e›a strit? Áinnan við 100 árum hafa Íslend-ingar brotist til allsnægta úr sárustu fátækt. Við sem fyrir nokkrum áratugum vorum í hópi snauðustu íbúa jarðarinnar og lifðum við hungur, skort og barna- dauða, búum nú við meiri auðsæld en flestar aðrar þjóðir í veröldinni. Þjóðfélagið leggur áherslu á að skapa svigrúm fyrir hina sterku til að nota kraftana, en um leið ríkir hér nægileg samstaða til að halda úti öryggisneti til að forða þeim pastursminni frá því að hrapa stjórnlaust niður í hyldýpið undir þegar atgangur hinna sterku verður hvað harðastur. SÉÐ út um dyrnar á moldarkofa hlýtur þetta þjóðfélag okkar að telj- ast eftirsóknarvert. Það er ekki fyrr en fólk hefur náð að seðja hungur sitt að í ljós kemur að það hefur margar og mismunandi skoðanir. SÉÐ út um stofuglugga úr hýbýlum þess sem býr við allsnægtir má sjá marga agnúa á þjóðfélagsgerðinni og auðvelt að gagnrýna einstaka hluti og spyrja: Af hverju er þetta svona og hitt ekki hinsegin? GREINILEGA hlýtur að hafa búið mikill kraftur í ömmum okkar og öfum og þeim formæðrum og for- feðrum sem tóku sig til og brutust á innan við 100 árum úr örbirgð til þeirra allsnægta sem við höfum átt svo auðvelt með að venjast og lítum á sem sjálfsagðan hlut. Vonandi er eitthvað eftir af þeim krafti, og von- andi hefur velsældin ekki komið okkur til að gleyma því að því Grettistaki sem þjóðin hefur náð að lyfta var lyft með samtakamætti þjóðarinnar, ekki með ómennsku afli einstakra kraftakarla. SÖMULEIÐIS er gott að muna að meira vinnur vit en strit. Það er menntun sem auðsæld okkar byggist á. EF við viljum halda áfram að stefna í framfaraátt ættum við að gefa gaum að orðum Páls Skúlasonar sem nú er að láta af störfum eftir ein- staklega farsælan feril sem rektor Háskóla Íslands. Við útskriftar- athöfn nú um helgina lét hann þess getið að sér sárnaði að Háskóla Ís- lands skyldi ekki vera gert það kleift fjárhagslega að standa undir því hlutverki sem lög gera ráð fyrir. Þar vantar milljarð upp á. Er vit í þessu? BAKÞANKAR ÞRÁINS BERTELSSONAR

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.