Fréttablaðið - 27.06.2005, Blaðsíða 12
12 27. júní 2005 MÁNUDAGUR
Keppni allra landsmanna
Frítt á leiki og happdrættispottur
Sextán ára og yngri fá frítt á leiki í Landsbankadeildinni í sumar og lenda
í happdrættispotti þar sem dregnir verða út 100 glæsilegir vinningar.
Miðar eru afhentir í útibúum bankans.
1. vinningur: 4 flugmiðar og 4 miðar á leik í Meistaradeild Evrópu.
Aðrir vinningar: Áritaðar landsliðstreyjur og vandaðir fótboltar.
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
L
BI
2
88
30
06
/0
5
410 4000 | www.landsbanki.is
VIÐ STYÐJUM ÍSLENSKA
KNATTSPYRNU MEÐ STOLTI
|7. UMFERÐ LANDSBANKADEILDAR KVENNA
mán. 27. júní 19:00 Stjarnan - ÍBV
mán. 27. júní 20:00 ÍA - Keflavík
þri. 28. júní 20:00 FH - Breiðablik
þri. 28. júní 20:00 KR - Valur
Þreyttir en ánægðir göngumenn komu
til Víkur í Mýrdal í gær og lögðu að baki
lengstu dagleiðina í ferðinni til þessa, 29,7
kílómetra. Bjarki kenndi sér meins í
fótum á laugardag og hvíldi sig í Vík í gær
og tók á móti Guðbrandi og Tómasi föru-
neytisstjóra. Á laugardag komum við að
Skógum og heilsuðum vitaskuld upp á
Þórð Tómasson safnstjóra. Honum leist
vel á það uppátæki okkar að ganga hring-
inn í kringum landið og fullyrti að við
hefðum nú þegar hjálpað mörgum með því
að vekja athygli á málefnum fatlaðra.
Þórður er frændi Tómasar föruneytis-
stjóra og var því nokkuð inni í málum.
Okkur hefur verið einstaklega vel tekið
hvar sem við komum og allir vilja eitthvað
fyrir okkur gera. Sunnlenskir bændur
hafa verið iðnir við að bjóða okkur heim og
bera jafnan fram alls konar kræsingar sem
fylla okkur orku. Magnús Sigurjónsson í
Hvammi færði okkur flatkökur og skonsur
og Kristín Jónsdóttir í Skarðshlíð bar á borð
pönnukökur með rjóma, kleinur og flatkökur.
Kunnum við þeim og öllum öðrum bestu
þakkir fyrir.
Umferðin um helgina var talsvert minni
en við bjuggumst við og gerir það gönguna
vitaskuld þægilegri. Annars eru allir afar
tillitsamir og draga úr hraðanum þegar þeir
aka framhjá okkur.
Í dag, mánudag, er langur leggur
framundan, við göngum frá Vík að Lauf-
skálavörðu sem er rúmlega 37 kílómetra
leið. Bestu kveðjur, göngugarparnir.
Bjarki hvílist og gestrisni sunnlenskra bænda
HALTUR LEIÐIR BLINDAN: PÓSTKORT FRÁ BJARKA OG GUÐBRANDI
nær og fjær
„Ingibjörg Sólrún er full-
trúi og fló Dagur B. Egg-
ertsson sé ekki skrá›ur í
Samfylkinguna sty›ur
hann Ingibjörgu opinber-
lega. fia› er ekki hægt a›
vera óhá›ur og fylgja
formanni stjórnmála-
flokks á sama tíma.“
ANNA KRISTINSDÓTTIR
BORGARFULLTRÚI Í FRÉTTABLAÐINU
„Ég vísa flví alger-
lega út í hafsauga
a› kjördæmasjónar-
mi› séu eingöngu
höf› a› lei›arljósi.“
STURLA BÖÐVARSSON SAM-
GÖNGURÁÐHERRA Í MORGUN-
BLAÐINU.
OR‹RÉTT„ “
Í sögufrægu húsi í Hrísey
er rekinn fyrsta flokks
veitingastaður, sá eini í
eyjunni. Árni Tryggvason
leikari ólst upp í húsinu
en á fjórða áratug síðustu
aldar var það notað sem
sjúkrahús og á níunda
áratugnum var þar ver-
búð.
Veitingastaðurinn Brekka í
Hrísey er ein af mörgum skraut-
fjöðrum eyjunnar en þar er
boðið upp á fjölbreyttan og
metnaðarfullan matseðil í sögu-
frægu húsi. Brekka er í eigu
Austfirðingsins og athafna-
mannsins Elís Árnasonar og fé-
laga hans, Þórhalls Arnórssonar,
en þeir reka einnig Sjallann á
Akureyri og Café Adesso í
Smáralindinni í Kópavogi.
Elís, sem er menntaður mat-
reiðslu- og kjötiðnaðarmaður, er
ættaður frá Reyðarfirði en kom
fyrst til Hríseyjar fyrir hálfum
öðrum áratug til að vinna sem
kokkur á Brekku. „Ég vann á
Brekku fjögur sumur í röð og
mér leið svo vel hér í eyjunni að
síðan þá hef ég haft sterkar
taugar til hennar. Í fyrra bauðst
okkur að eignast veitinga-
staðinn og nú hef ég, og konan
mín, keypt íbúðarhús hér í Hrís-
ey og búum því bæði í eyjunni
og í Reykjavík. Reksturinn á
Brekku gengur ágætlega en við
fórum fyrst og fremst út þetta
af hugsjón en ekki til að verða
rík af,“ segir Elís.
Í Brekku er boðið upp á kökur
og kaffi, pítsur og skyndirétti en
einnig eðal steikur og margvís-
lega fiskrétti. Staðurinn rúmar
um 100 manns í mat og tíu til tólf
manns í gistingu en Elís segir að
gistiaðstaðan verði hugsanlega
stækkuð í framtíðinni. Frá 1.
júní til 1. september er opið alla
daga en aðallega um helgar yfir
vetrarmánuðina. „Hingað koma
meðal annars hópar frá Akur-
eyri og víðar auk þess sem
flestir ferðamenn sem koma til
eyjunnar líta við hjá okkur. Um
Greifahöllin í
GREIFINN Í HRÍSEY Veitinga- og athafnamanninum Elís Árnasyni líður vel í Hrísey en
hann og fjölskylda hans halda þar sitt annað heimili.
VEITINGASTAÐURINN BREKKA Húsið þótti mikil bygging á sínum tíma og kölluðu Hríseyingar
Gunnlaugur A. Júlíus-
son hagfræðingur lauk
Western States 2005,
100 mílna ofurmara-
þonhlaupinu, klukkan
14:14 í gær. Hann hafði
þá verið á hlaupum í 26
klukkustundir, fjórtán
mínútur og fjórtán
sekúndur.
Maður að nafni Scott
Jurek kom fyrstur í
mark í hlaupinu en
hljóp kílómetrana 160 á
16 klukkustundum, 43
mínútum og fjórum
sekúndum.
Gunnlaugur undir-
bjó sig vel og vandlega
fyrir hlaupið langa og
hóf formlegan og reglu-
legan undirbúning í
janúar.
Western States
hlaupið þykir afskap-
lega erfitt og yfir marg-
ar erfiðar hindranir að
fara. Hlauparar geta
meðal annars átt á
hættu að mæta
skröltormi og í viðtali í
Fréttablaðinu í maí var
Gunnlaugur spurður
hvað hann myndi gera
ef hann mætti slíkri
skepnu. „Reyna að
hoppa yfir helvítið,“
svaraði hann að bragði.
Ekki fengust upplýs-
ingar um hvort Gunn-
laugur þurfti að hoppa
yfir skröltorm. - bþs
ÁSTKÆRA YLHÝRA
Endurtekin
klifun, aftur
og aftur
Endurtekningar í málinu geta tekið á
sig ýmiss konar myndir. Klifun getur
verið stílbragð sem neglir hugtak í
minni lesanda eða hlustanda, en
stundum klifum við á sama hlutnum
án þess að taka eftir því sjálf. Í við-
skiptalífinu er gjarnan talað um „árs-
fjórðung ársins“, eins og það kæmi
til greina að skipta árinu niður í
landsfjórðunga eða flatbökusneiðar.
Svipuðu gegnir um „landsliðsþjálfara
landsliðsins“, ef maðurinn þjálfar
landsliðið liggur ljóst fyrir að maður-
inn þjálfar landsliðið. Sem pistlahöf-
undur þessa pistils vil ég hvetja les-
endur til umhugsunar og að pæla í
þessu. magnus@frettabladid.is
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/H
EI
Ð
A
Gunnlaugur Júlíusson hljóp í Bandaríkjunum:
Hljóp 160 kílómetra á
26 klukkustundum