Fréttablaðið - 29.06.2005, Blaðsíða 58

Fréttablaðið - 29.06.2005, Blaðsíða 58
JAR‹ARFARIR 13.00 Guðmundur Ottesen Gunnars- son, Skólabraut 5, Seltjarnarnesi, verður jarðsunginn frá Seltjarnar- neskirkju. 13.00 Páll Marel Jónsson, Lækjasmára 4, verður jarðsunginn frá Digra- neskirkju. 15.00 Guðrún Ingibjörg Jónsdóttir frá Ytri-Veðrará verður jarðsungin frá Dómkirkjunni. 15.00 Ólína Jörundsdóttir, Eikjuvogi 17, Reykjavík, verður jarðsungin frá Grafarvogskirkju. 15.00 Pála Elínborg Michelsen verður jarðsungin frá Fossvogskirkju. ANDLÁT Ingólfur Jóhannsson, Iðu, Biskupstung- um, andaðist mánudaginn 20. júní. Konráð Gíslason frá Frostastöðum, Furulundi 4, Varmahlíð, lést á Fjórðungs- sjúkrahúsinu á Akureyri föstudaginn 24. júní. Rakel Sæmundsdóttir hárgreiðslu- meistari, Stangarholti 28, Reykjavík, lést á heimili sínu að morgni föstudagsins 24. júní. Ásta Laufey Haraldsdóttir frá Reyni, Krókatúni 18, Akranesi, lést á Sjúkrahúsi Akraness laugardaginn 25. júní. Bergþóra G. Jónsdóttir, Hjálmholti 9, Reykjavík, lést á Landspítala Fossvogi laugardaginn 25. júní. Geirmundur Guðmundsson, Bexhill on Sea, Englandi, áður á Laugarnesvegi 51, Reykjavík, lést á sjúkrahúsi í Englandi laugardaginn 25. júní. Guðmundur Skagfjörð Friðþjófsson frá Siglufirði andaðist á Sjúkrahúsi Siglu- fjarðar 26. júní. AFMÆLI Hákon Waage leikari er 59 ára. Ágúst Guðmundsson leik- stjóri er 58 ára. Sigurjón Þórðarson alþing- ismaður er 41 árs. Sesselja Magn- úsdóttir (Sessý) söngkona er 28 ára. Það var aldrei ætlun Páls Samú- elssonar, stofnanda Toyota um- boðsins, að gera bílaviðskipti að ævistarfi. Hann setti stefnuna á nám í fiskiðnaði enda fæddur og uppalinn á Siglufirði. Síðan bauðst honum að kaupa umboð sem hafði reynt innflutn- ing á Toyotabílum en merkið var lítið þekkt á þeim tíma. „Ég ákvað að slá til og sjá hvað væri hægt að gera,“ segir Páll sem telur að hann hafi rennt blint í sjóinn. Hann segir samfélagið á þessum tíma hafa verið mun einfaldara en nú og bifreiða- markaðurinn var smár. „Mest voru Ford, Volvo og Fiat seldir á þessum árum og eins bílar frá Ameríku en það fór dvínandi,“ segir Páll en markaðssetning japanskra bíla hafði ekki gengið sem skyldi. „Hugarfarið gagnvart japönsk- um vörum var neikvætt,“ segir Páll og því hafi margir tekið bíl- unum með varúð. Á þessum tíma voru að koma á markað ýmsar vörur frá Japan sem voru oft á tíðum eftirlíkingar og mun ódýr- ari en hinar upprunalegu vörur. Páll varð því að berjast við al- menningsálitið en viðkvæðið var oft að fólk vildi ekki kaupa jap- anskt drasl þegar það gat fengið annars konar bíl ódýrari. Þegar reynsla fór að komast á bílana jókst hróður Toyota. „Auglýsingar höfðu ekki svo mikið að segja á þessum tíma. Það virkaði bara hvað náunginn sagði,“ segir Páll sem telur helstu breytinguna á þessum 35 árum vera aukið frjálsræði. Til dæmis hafi álagning verið skömmtuð árið 1970 og ekki var hægt að vera með bíla til sýnis vegna hárra tollagjalda. Síðar var hægt að fá leyfi til að taka nokkra bíla úr tollinum í eina viku en síðan þurfti að skila þeim og endurnýja svokallað sýningarleyfi. „Manni finnst þetta grátbroslegt í dag,“ segir Páll sem telur hina gífurlegu tæknilegu þróun á síðustu tíu árum af hinu góða. Páll hefur sjálfur lengst af átt Land Cruiser jeppa. Hann reynir þó einnig að kynna aðra bíla og hefur því keyrt um á Yaris í einhvern tíma. Hann seg- ist vera töluverður bíladellukarl en sé þó sáttur við að hafa bíl sem kemst frá a til b. 18 29. júní 2004 MIÐVIKUDAGUR ELISABETH BARRETT BROWNING (1806-1861) lést þennan dag. „Kona er ávallt yngri en maður á sama aldri.“ Elisabeth Barrett Browning var mikilsvirt skáld- kona á Viktoríutímanum. Hún gaf út fyrsta ljóð sitt undir dulnefni fjórtán ára gömul. timamot@frettabladid.is PÁLL SAMÚELSSON Stofnandi og núverandi stjórnarformaður Toyota umboðsins P. Samúelsson hf. Hann segir mestu breytinguna á 35 árum vera aukið frjálsfæði í viðskiptaháttum. Þennan dag árið 1974 var Maria Estela Isabel Martinez de Peron svarin í embætti sem leiðtogi Argentínu. Þar með varð frú Per- on, sem var fyrrverandi kabarett- dansari, fyrsti kvenforseti lands- ins. Eiginmaður hennar, forsetinn Juan Peron, hafði afsalað sér völdum vegna alvarlegra veikinda en hinn 78 ára gamli Peron hafði þá ekki sést opinberlega í tvær vikur. Frú Peron, sem almenningur kall- aði ávallt Isabelitu, var þriðja eig- inkona Juan Peron og varð vara- forseti þegar hann snéri aftur til valda í september 1973 en hann hafði verið í útlegð frá árinu 1955 eftir valdarán í landinu. Þau kynntust á næturklúbbi í Panama meðan Peron var í útlegð. Eftir að Juan Peron snéri úr útlegðinni árið 1973 vann hann stórsigur í kosningum og kom á næstu mánuðum á nokkrum stöðug- leika í Argentínu. Hann dó 1. júní árið 1974 en Isabel varð forseti til ársins 1976. Þá var henni steypt af stóli af herforingjastjórn Jorge Rafael Videla. Isabelitu tókst aldrei að vinna hjörtu argentínsku þjóðarinnar. Hún lifði ætíð í skugga Evu Peron sem var önnur eiginkona Juan Peron. Evita var dáð af stórum hluta þjóðarinnar en varð aldrei forseti og dó úr krabbameini árið 1952. 29. JÚNÍ 1974 ÞETTA GERÐIST MERKISATBURÐIR 1941 Þýski kafbáturinn U 564 sökkvir flutningaskipinu Heklu suður af Grænlandi. Þrettán farast en sjö er bjargað af fleka eftir rúma tíu sólarhringa. 1951 Ríkharður Jónsson skorar fjögur mörk í landsleik gegn Svíum, þar sem Ís- lendingar unnu með fjór- um mörkum gegn þremur. 1952 Ásgeir Ásgeirsson er kjör- inn forseti Íslands. 1980 Vigdís Finnbogadóttir er kjörin forseti Íslands. Hún var fyrsta konan í heimin- um sem kosin var þjóð- höfðingi í lýðræðislegum kosningum. 1995 Bandaríska geimskutlan Atlantis kemur til geim- stöðvarinnar MIR. 1996 Ólafur Ragnar Grímsson er kjörinn fimmti forseti Ís- lands. Isabelita ver›ur forseti Argentínu www.steinsmidjan.is Áskær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi Þórarinn Sigurgeirsson pípulagningarmeistari, Árskógum 6, Reykjavík, sem lést 17. júní á Borgarspítalnum verður jarðsunginn frá Foss- vogskirkju fimmtudaginn 30. júní kl. 13.00. Júlíus Már Þórarinsson Jóna Kristrún Sigurðardóttir María Þórarinsdóttir Örn Þorsteinsson Sigurgeir Þórarinsson Charlotta Ingadóttir Barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, Jóhann Páll Ingólfsson Uppsölum, Eyjafjarðarsveit, lést á Fjórðungssjúkrahúsinu Akureyri föstudaginn 17. júní. Jarðsungið verður frá Munkaþverárkirkju föstudaginn 1. júlí kl. 13.30. Lilja Jóhannsdóttir Örn Tryggvason Ásdís Jóhannsdóttir Örn Arason Inga Jóhannsdóttir Rúnar Arason Jóhann Jóhannsson Hjördís Henriksen Halla Jóhannsdóttir Ragnar Torfi Geirsson Ingólfur Jóhannsson Matthildur Ásta Hauksdóttir barnabörn og barnabarnabörn. Okkar innilegustu þakkir til allra þeirra er auð- sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför, ástkærar systur okkar, mágkonu og frænku, Öldu Steinunnar Jensdóttir, Faxabraut 36. a. Keflavík Sérstakar þakkir til starfsfólksins á St. Jósefsspítalanum í Hafn- arfirði, Heilbrigðisstofnun Suðurnesja, Fjölbrautarskóla Suður- nesja og Soroptimistaklúbbi Keflavíkur. Guð blessi ykkur öll. Halldór Á. Jensson María Valdimarsdóttir Kristinn Þ. Jensson Sævar Þorkell Jensson Julie Price og frændsystkyni. TOYOTAUMBOÐIÐ P. SAMÚELSSON ER 35 ÁRA Barðist við almenningsálitið FR ÉT TA B LA Ð IÐ /E .Ó L. Okkar innilegustu þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför elskulegs eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður, sonar, bróður og afa, Hjálmars Rúnar Hjálmarssonar Vélastjóra, Lóulandi 2, Garði. Sérstakar þakkir til Slysavarnarfélagsins Landsbjargar, Björgunarsveit- anna Ægis í Garði og Sigurvonar Sandgerði, áhafnar á B.B. Hannesi Þ. Hafstein og Kvennfélagsins Gefnar í Garði, guð blessi ykkur og störf ykkar. Guðrún Eyvindsdóttir Helga Hjálmarsdóttir Óliwer Keller Herbjörg Hjálmarsdóttir Sveinn Ólafur Jónasson Dóra Sigrún Hjálmarsdóttir Sigrún Oddsdóttir systkini og barnabörn.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.