Fréttablaðið - 29.06.2005, Blaðsíða 14
14 29. júní 2005 MIÐVIKUDAGUR
Mikil umræða hefur skapast um það undan-
farna daga hvort umfjöllun tímaritsins Hér &
nú um einkahagi og skilnað tónlistarmanns-
ins Bubba Morthens hafi verið siðleg og eðli-
leg eða yfir höfuð lögleg. Í íslenskum lögum
eru ákvæði um ákveðnar takmarkanir á tján-
ingarfrelsi sem hér verður bent á en les-
endum látið eftir að dæma um hvað
á við.
Stjórnarskráin
Samkvæmt 73. grein stjórnarskrár
lýðveldisins eru allir frjálsir skoðanna
sinna og sannfæringar og hefur hver
maður rétt á að láta þær skoðanir sínar
í ljós en verður þó að ábyrgjast
þær fyrir dómi. Tjáningar-
frelsi má þó setja skorð-
ur til að verja siðgæði
manna, réttindi og
mannorð. Í 71. grein stjórnarskrárinnar er það
svo tekið fram að allir skuli njóta friðhelgi
einkalífs, heimilis og fjölskyldu. Einu takmark-
anirnar þar á lúta að sérheimildum svo sem
eins og um húsleitir ef grunur leikur á lög-
broti.
Mannréttindasáttmáli Evrópu
Í Mannréttindasáttmála Evrópu sem er orð-
inn að lögum hér á Íslandi segir í 8.
grein um friðhelgi einkalífsins að sérhver
maður eigi rétt á friðhelgi einkalífs síns,
fjölskyldu, heimilis og bréfaskipta. Í sama
sáttmála er kveðið á um tjáningarfrelsi
sem skuli vera réttur sérhvers manns.
Svipaðar takmarkanir gilda þó þar og í
stjórnarskránni, því tjáningar-
frelsi takmarkast við að það
má ekki ganga á siðgæði
manna, mannorð eða réttindi.
Hegningarlög og viðurlög
Í almennum hegningarlögum eru tvö ákvæði
sem vissulega hljóta að skerða tjáningarfrelsi
hvers og eins. Það eru 234. grein og 235.
grein en í þeim segir að
hver sem meiðir æru
annars með orðum
eða athöfnum eða
ber slíkt út skuli sæta
sektum eða allt að eins
árs fangelsi og að sá sem
dróttar að öðrum
manni einhverju því
sem verða myndi
virðingu hans til
hnekkis eða þá
ber slíka aðdrótt-
un út skuli sæta
sömu viðurlög-
um.
Takmörk fyrir flví hva› má segja
FBL-GREINING: TJÁNINGARFRELSI OG FRIÐHELGI EINKALÍFSINS
fréttir og fró›leikur
SVONA ERUM VIÐ
GISTINÆTUR Í APRÍL
Heimild: HAGSTOFAN
-6,6%
REYKJAVÍK NORÐUR
KOSNINGAR 11,6% NÚ 5,0%
-2 ÞINGMENN
-7,1%
REYKJAVÍK SUÐUR
KOSNINGAR 11,3% NÚ 4,2%
-1 ÞINGMAÐUR
-9,8%
NORÐVESTURKJÖRDÆMI
KOSNINGAR 21,7% NÚ 11,9%
-1 ÞINGMAÐUR
-20,5%
NORÐAUSTURKJÖRDÆMI
KOSNINGAR 32,8% NÚ 12,3%
-2 ÞINGMENN
-9,1%
SUÐURKJÖRDÆMI
KOSNINGAR 23,7% NÚ 14,6%
-7,0%
SUÐVESTURKJÖRDÆMI
KOSNINGAR 14,9% NÚ 7,9%
MISSA EKKI ÞINGMANN
MISSA EKKI ÞINGMANN
2
0
0
1
6
1
.9
5
5
2
0
0
2
5
8
.3
7
4
2
0
0
3
6
5
.7
1
9
2
0
0
4
7
1
.4
2
2
2
0
0
5
7
7.
5
5
8
Framsókn getur misst
helming flingmanna
Framsóknarflokkurinn gæti tapað
allt að helmingi þingmanna sinna ef
kosið væri nú samkvæmt könnun
Gallup frá því í byrjun mánaðarins.
Könnunin var hluti af þjóðarpúlsi
Gallup þar sem mæld var afstaða
kjósenda til einstakra stjórnmála-
flokka. Í könnuninni mældist Fram-
sóknarflokkurinn með 8,5 prósenta
fylgi á landsvísu sem er lægsta
fylgi sem flokkurinn hefur nokkurn
tímann mælst í þjóðarpúlsi Gallup
en flokkurinn hlaut 17,7 prósent at-
kvæða í kosningunum 2003 og 12
þingmenn kjörna.
Þetta er sami fjöldi og flokkur-
inn fékk í kosningunum 1999 en
flokkurinn tapaði 0,7 prósent at-
kvæða á milli þeirra kosninga. Úr-
takið í könnun Gallup var 2.344
manns á aldrinum 18 til 75 ára.
Svarhlutfall var 61 af hundraði en
hafa ber í huga að mjög lítið úrtak
er í hverju kjördæmi fyrir sig eins
og áður hefur komið fram í Frétta-
blaðinu. Slíkt getur skekkt áreiðan-
leika könnunarinnar.
Hrun í norðausturkjördæmi
Eins og fram kom í Fréttablaðinu í
gær tapar flokkurinn rúmlega 20
prósentustigum í könnun Gallup í
norðausturkjördæmi og tapar hann
hvergi jafn miklu fylgi á landinu.
Þar fékk hann fjóra þingmenn
kjörna í síðustu kosningum en sam-
kvæmt könnun Gallup fengi hann
einn kjördæmakjörinn þingmann í
kjördæminu og hugsanlega uppbót-
arþingmann.
Fréttablaðið hefur stuðst við út-
reikninga sérfræðings við forsend-
ur á reiknuðum þingmannafjölda
hvers kjördæmis en þar sem úrtak
Gallup í hverju kjördæmi var mjög
lítið getur verið um óáreiðanlegar
tölur að ræða auk þess sem ekki eru
bein áhrif á milli fylgis flokkanna
og þingmannafjölda í hverju kjör-
dæmi. Fylgi í öðrum kjördæmum
getur haft þar mikil áhrif og hefur
haft það, til að mynda í síðustu þing-
kosningum.
Forsætisráðherra af þingi
Samkvæmt könnuninni myndi
flokkurinn einnig missa tvo þing-
menn í Reykjavíkurkjördæmi norð-
ur en þar eru fyrir Halldór Ás-
grímsson, formaður flokksins, og
Árni Magnússon félagsmálaráð-
herra. Sama á við um Reykjavíkur-
kjördæmi suður en Fréttablaðið
sagði frá því um síðustu helgi að
fylgi flokksins í kjördæminu væri
langt fyrir neðan kjörfylgi og dygði
líklega ekki til að flokkurinn fengi
þar kjördæmakjörinn þingmann.
Eina kjördæmið þar sem öruggt
er að flokkurinn myndi halda sínum
þingmanni væri suðvesturkjör-
dæmi þar sem flokkurinn héldi sín-
um eina þingmanni. Það kjördæmi
þar sem flokkurinn tapar hvað
minnstu fylgi hlutfallslega er hins
vegar suðurkjördæmi þar sem
Guðni Ágústsson hefur leitt lista
framsóknarmanna. Mögulegt er þó
að flokkurinn myndi tapa einum
þingmanni þar þótt það sé ólíklegt
og hann myndi að öllum líkindum fá
uppbótarþingmann.
Geta tapað helmingi þingmanna
Mögulegt er að Framsóknarflokk-
urinn geti tapað helmingi þing-
manna sinna miðað við könnun
Gallup. Hér hafa þó aðrir þættir
einnig áhrif svo sem fylgi annarra
flokka og sérstaklega Frjálslynda
flokksins en flokkurinn hefur nú
þrjá þingmenn en fékk fjóra kjörna
og mældist með tiltölulega lítið
fylgi í könnuninni og aðeins 10,4
prósent í norðvesturkjördæmi. Það
kjördæmi hefur verið sterkasta
kjördæmi flokksins og hefur verið
eina kjördæmið þar sem flokkurinn
hefur fengið kjördæmakjörinn
þingmann.
Auk þess er ljóst að ákveðnar
kjördæmabreytingar munu eiga sér
stað með tilfærslu þingmanna milli
kjördæma og er ekki tekið tillit til
þess við útreikninga sem þessi sam-
anburður nær til. Ekkert breytir þó
því að Framsóknarflokkurinn er í
sögulegri lægð og þarf mikið að
breytast hjá flokknum til að hann
nái kjörfylgi. Næsti þjóðarpúls
Gallup verður birtur í byrjun júlí.
hb@frettabladid.is
Árni
Magnússon
Birkir Jón
Jónsson
Dagný
Jónsdóttir
Halldór
Ásgrímsson
Jónína
Bjartmarz
Kristinn H.
Gunnarsson
ÞESSIR ÞINGMENN EIGA Á HÆTTU AÐ MISSA SÆTI SITT
ÞINGFLOKKUR FRAMSÓKNARFLOKKSINS Aðeins helmingur þingmanna flokksins
munu verða þingmenn áfram ef marka má niðurstöðu þjóðarpúls Gallup.
Framsóknarflokkurinn
er í mikilli kreppu sam-
kvæmt sko›anakönnun
Gallup. Flokkurinn
tapar alls sta›ar fylgi.