Fréttablaðið - 29.06.2005, Blaðsíða 39
MARKAÐURINN MIÐVIKUDAGUR 29. JÚNÍ 2005 15
H É Ð A N O G Þ A Ð A N
Hagnaður Nike íþróttavöruframleiðandans var á
fyrsta ársfjórðungi tæpir 25 milljarðar króna
sem er mun meira en sérfræðingar gerðu ráð
fyrir.
Forsvarsmenn fyrirtækisins þakka aukinni
eftirspurn eftir íþróttaskóm af dýrustu gerð og
hagstæðu gengi lykilgjaldmiðla: ,,Skórnir sem
þeir hafa sett í hillurnar hafa selst. Svo einfalt er
það“, sagði Jim Wright hjá Delaware Mana-
gement, sem á stóran hlut í Nike, og bætti við:
,,Converse var gríðarlegur fengur og keypt á hár-
réttum tíma“.
Nike keypti fyrir skömmu Converse skófyrir-
tækið sem framleiðir klassísku Chuck Taylor
skóna sem slá reglulega í gegn. Skórnir eru í dag
geysiútbreiddir og vinsælir jafnt meðal rokk-
hljómsveita og íþróttamanna.
Nike var stofnað árið 1972 af Phil Knight og
seldi hann upphaflega íþróttaskó út um skottið á
skutbifreið sinni. Nike er í dag stærsti íþrótta-
vöruframleiðandi veraldar. Knight hefur að
mestu hætt afskiptum af rekstrinum en er þó enn
titlaður stjórnarformaður. -jsk
Nike græðir og græðir
Methagnaður hjá Nike. Aukin eftirspurn eftir skóm af dýrustu gerð og
hagstætt gengi lykilgjaldmiðla skiptu sköpum.
SKÓRNIR SEM LEBRON JAMES KLÆDDIST Í
STJÖRNULEIKNUM Nike hefur aldrei vegnað betur. Mikil
aukning hefur orðið á sölu dýrari gerða af skóm og er það
ekki síst að þakka mönnum á borð við Lebron sem þykja
góðir fulltrúar fyrirtækisins út á við.
stöðugt á toppnum
Ferðaboxin frá Mont Blanc eru hönnuð með það í huga að hafa sem minnsta
vindmótstöðu en jafnframt mikið rými.
Þrjú handtök og ferðaboxið er komið á toppinn
Margar þægilegar aðferðir eru til að geyma ferðaboxin frá MONT BLANC
Í ferðaboxunum frá
Mont Blanc er tjakkur
sem auðveldar lestun
og losun
19
49
/
T
A
K
T
ÍK
/
1
6.
6’
05
VLADIMÍR PÚTÍN
Rússneski forsetinn hefur sett það markmið
að tvöfalda landsframleiðsluna fyrir árið
2010. Viðskiptaráðherrann segir það hins
vegar ekki raunhæft.
Ráðherra
andmælir
Viðskiptaráðherra Rússlands,
German Gref, segir með öllu
ómögulegt að tvöfalda lands-
framleiðslu fyrir árið 2010 en
það er yfirlýst markmið Vla-
dimírs Pútín forseta.
Hagvöxtur hefur minnkað í
Rússlandi undanfarið og verður
samkvæmt spám 5,5 prósent á
þessu ári, en var 7,1 prósent í
fyrra. Gref segir hins vegar að
ómögulegt sé að gera þær endur-
bætur á iðnaði í landinu sem
þurfi til að ná markmiðinu:
„Þetta er ekki raunhæft mark-
mið,“ sagði Gref á ríkisstjórnar-
fundi og bætti við: „Olíuvinnslan
hefur drifið hagvöxtinn áfram of
lengi til að hægt sé að innleiða
breytingar á einni nóttu“.
Ekki er vitað hvernig
Vladimír Pútín bregast við þess-
um ummælum Grefs en hann er
ekki beinlínis þekktur fyrir að
taka á málum með silkihönskum.
- jsk
Hennes & Mau-
ritz vex áfram
Sérfræðingar fullir efa-
semda á áframhaldandi
velgengni.
Tekjur Hennes & Mauritz sem og
hagnaður hafa vaxið hratt á und-
anförnum árum. Sérfræðingar
telja að velgengni félagsins eigi
eftir að minnka með tímanum.
Reiknað er með því að tekjur fé-
lagsins hafi aukist um 13 prósent
og hagnaður á hlut um 30 pró-
sent. Sérfræðingar eru farnir að
mæla með því að fjárfestar haldi
eða selji bréf í Hennes &
Mauritz. Hlutabréf í fyrirtækinu
kosta nú 29 evrur og hafa hækk-
að um rúm 60 prósent frá ára-
mótum. -dh