Fréttablaðið - 29.06.2005, Blaðsíða 32
Samskiptakerfi smáfugla virðast
í ýmsum tilfellum vera miklu há-
þróaðri og flóknari en vísinda-
menn hafa hingað til gert sér
grein fyrir.
Smáfuglinn hettumeisa gefur
frá sér viðvörunarhljóð þegar
rándýr nálgast og lætur þar með
frændsystkin sín vita. Þetta eru
ekki ný tíðindi fyrir vísindamenn
en eftir að hafa fylgst betur með
meisunni hefur komið í ljós að
kerfið er mun flóknara en fyrst
var talið.
Í rannsókninni
voru gerðar upptök-
ur á viðbrögðum
meisunnar við ná-
vist þrettán ólíkra
tegunda ránfugla og
tveggja annarra rándýra. Í
ljós kom að meisan lætur
frá sér fleiri og hærri tíst
eftir því sem meiri hætta stafar
af rándýrinu. Návist smáuglu
framkallaði því á þriðja tug tísta
en stórir ránfuglar
á borð við erni
framköl luðu
bara tvö tíst.
Þetta skýrist
af því að stóru
ránfuglarnir eiga erfiðara með
að veiða meisur heldur en þeir
smærri. - þk
MIÐVIKUDAGUR 29. JÚNÍ 2005 MARKAÐURINN8
NÝJASTA TÆKNI OG VÍSINDI
Jón Skaftason
skrifar
Microsoft tölvurisinn og raf-
tækjaframleiðandinn Toshiba
hafa skrifað undir samstarfs-
samning sem felur í sér sam-
vinnu við þróun svokallaðra
Hd-dvd-spilara og
mynddiska.
Mikil samkeppni
er í þróun næstu
kynslóðar dvd-
spilara en þar takast á
tvær gerðir; annars
vegar Hd-dvd og
hins vegar Blu
ray-tækni sem Sony styður og þróar.
Blu ray-diskar hafa meira minni,
50 gígabæta á meðan Hd-dvd hafa
30. Hd-dvd-diskarnir eru hins vegar
mun ódýrari í framleiðslu enda
framleiðsluferlið svipað og við þró-
un hefðbundinna dvd-diska.
Sony og Microsoft hafa árangurs-
laust reynt að komast að samkomu-
lagi um hvora tæknina beri að nota og því stefnir
allt í stríð á borð við það sem framleiðendur VHS
og Betamax myndbandstækja háðu við lok áttunda
áratugarins.
Komist fyrirtækin ekki
að niðurstöðu um hvora
gerðina beri að nota óttast
sérfræðingar að ringul-
reið verði á markaðnum
og að neytendur hiki við
að taka í gagnið nýjar vör-
ur.
„Herra Gates er gríðar-
lega öflugur bandamaður í
baráttunni,“ sagði Atsu-
toshi Nishida forseti Tos-
hiba en fyrirtækið er í út-
varðasveit þeirra sem
styðja Hd-dvd-tæknina.
Bill Gates sagði að
þrátt fyrir samninginn
væri Microsoft ekki að taka neina afstöðu: ,,Það að
við tökum þrátt í frekari þróun Hd-dvd tækninnar
þýðir ekki að við séum að taka afstöðu með annar-
ri hvorri fylkingunni“.
Sony sendi í kjölfar samkomulagsins frá sér til-
kynningu: ,“Microsoft ber við hlutleysi er kemur
að Blu-ray og Hd-dvd, svo við höfum ekkert yfir
samningnum að kvarta“.
Samkomulagið náði einnig til annarra þátta á
borð við samvinnu við þróun fartölva og fleira:
„Enn og aftur höfum við sýnt fram á einarðan
stuðning okkar við nýsköpun og frumkvöðlastarf-
semi“, sagði Gates ánægður með samninginn.
Microsoft og Toshiba í eina sæng
Microsoft og Toshiba hyggjast vinna saman að þróun svokallaðrar Hd-
dvd-tækni. Mikil samkeppni er í þróun næstu kynslóðar mynddiska og
stefnir allt í stríð á borð við það sem framleiðendur VHS og Betamax
myndbandstækja háðu á árum áður.
Nýr forstjóri Sony-samteypunn-
ar boðar að fyrirtækið muni
leggja áherslu á færri vörur í
framtíðinni í stað þess að taka
þátt í samkeppni á mörgum ólík-
um sviðum.
Töluvert tap hefur verið á
rekstri Sony á siðustu misserum.
Félagið hefur meðal annars verið
gagnrýnt fyrir að beina sjónum
sínum að of mörgum ólíkum vör-
um. Niðurstaðan hefur verið sú
að flestar vörurnar skila ekki
hagnaði til fyrirtækisins. Nýi
forstjórinn, Howard Stringer, vill
breyta þessu og leggja áherslu á
DVD spilara, sjónvarpstæki og
afspilunartæki fyrir stafræna
tónlist. - þk
Microsoft hefur nú hlýtt sam-
keppnisyfirvöldum í Evrópu-
sambandinu og sett á markað
nýja útgáfu af Windows XP
stýrikerfinu. Þessi útgáfa inni-
heldur ekki Windows Media
Player.
Útlit er fyrir að sala á nýju
útgáfunni verði mjög léleg og
hafa tölvuverslanir hreinlega
sleppt því að panta birgðir af
þessari útgáfu. Media Player frá
Windows hefur verið eitt helsta
umkvörtunarefni keppinauta sem
segja að með því að gefa Media
Player með stýrikerfinu sé fótunum
kippt undan rekstri þeirra sem vilja selja sína spilara. - þk
LOGNIÐ Á UNDAN STORMINUM? Bill Gates stjórnarformaður Microsoft og Atsutoshi Nishida forseti Toshiba handsala samning um
þróun næstu kynslóðar dvd-tækni. Framleiðendur skiptast í tvær fylkingar og stefnir allt í harðvítugt viðskiptastríð.
Smáfuglarnir vita sínu viti
Samskiptakerfi smáfugla er flóknara en talið var.
HD-DVD DISKUR Minni diskana er 30 gígabæt og eru
þeir talsvert ódýrari i framleiðslu en svokallaðir Blu-ray
diskar.
Talið er að farsímaframleiðand-
inn Motorola muni í haust bjóða
upp á nýja tegund af síma sem
býður upp á að notandinn geti
keypt tónlist í i-Tunes tónlistar-
búð Apple.
Samningar Apple og Motorola
við Cingular, stærsta farsímafyr-
irtæki Bandaríkjanna, munu
vera langt á veg komnir en mikil
leynd hvílir yfir samningunum.
Tæknilega stend-
ur fátt í vegi fyr-
ir því að hægt sé
að bjóða upp á
þjónustuna en
samningar um
skiptingu á
t e k j u n u m
eru flóknari
viðfangs. -
þk
Unnið er að því að hanna staðla
til þess að skilja á milli ill-
kynja og góðkynja hugbúnað-
ar sem vefsíður senda inn á
tölvur.
Mörg fyrirtæki sem setja
svokallaðar kökur (e. cookies)
inn á tölvur telja að hreinsi-
búnaður sé forritaður til þess
að taka of grimmilega á slíkum
viðbótum og flokki saklausan
hugbúnað sem hættulegan.
Forritin sem settar eru inn á síður gesta eru kölluð ýmist „spy-
ware“ eða „adware“ en þótt nafngiftirnar séu neikvæðar bjóða slík
forrit upp á ákveðin þægindi. Þau losa gestina undan því að þurfa í
sífellu að skrifa inn lykilorð auk þess sem þau gera það mögulegt að
vefsíður muni eftir notkun gestsins sem getur falið í sér þægindi.
Á hinn bóginn geta slík laumuforrit falið í sér að njósnað er um
alla netnotkun og upplýsingar sendar til baka til geymslu í gagna-
bönkum og jafnvel til þjófnaðar á verðmætum upplýsingum. Þá er
algengt að óprúttnir aðilar reyni að koma vírusum og annarri óáran
í dreifingu með slíkum laumuforritum. - þk
SLEGIST Á NETINU Fólk getur fengið ýmsar
óværur inn á tölvuna sína þegar það heim-
sækir síður á netinu.
GREINDUR SMÁFUGL Hettumeisa gef-
ur frá sér mismunandi hljóð eftir því
hversu hættuleg rándýr nálgast.
i-Tunes á Motorola
Rifist um laumuforrit
Deilt er um hvernig eigi að skilgreina hvers
kyns forrit séu æskileg og óæskileg á netinu.
Sjónvarpið hefur forskot
Ungmenni í Evrópu eru enn
hrifnari af bæði sjónvarpi og út-
varpi heldur en internetinu.
Þetta kemur fram í nýrri könn-
un þar sem mælt var hversu
miklum tíma ungmenni verja í
notkun ýmissa miðla.
Rannsóknin náði til fólks á
aldrinum 15 til 24 ára og í ljós
kom að af þeim tíma sem varið
var við notkun afþreyingar- og
fréttamiðla var 31 prósent fyrir
framan sjónvarpið, 27 prósent
við útvarpsviðtækið, 24 prósent
á Internetinu en aðeins tíu pró-
sent af tímanum fór í lestur dag-
blaða og tímarita. - þk
KÓSÍ STUND VIÐ SJÓNVARPIÐ Ung-
menni í Evrópu kjósa sjónvarpið helst
allra afþreyingarmiðla.
Sony skerpir áherslurnar
VILJA NÁ FYRRI HÆÐUM Sony sló í
gegn með Walkman snælduspilaranum og
vill nú ná forystu í framleiðslu tækja sem
spila stafræna tónlist.
Enginn áhugi á nýju
Windows