Fréttablaðið - 29.06.2005, Blaðsíða 30
MIÐVIKUDAGUR 29. JÚNÍ 2005 MARKAÐURINN6
Ú T L Ö N D
Sextán yfirmenn fallna ítalska matvæla-
risans Parmalat hafa verið ákærðir fyrir
skjalafals og fjársvik. Meðal ákærðu er
Calisto Tanzi stofnandi fyrirtækisins.
Þá eru þrjú þekkt fjármálafyrirtæki;
Bank of America, Deloitte et Touche og
Grant Thornton, sökuð um að hafa hylmt
yfir með Parmalat. Fyrirtækin þrjú segjast
saklaus af öllum ásökunum.
Ellefu sakborninganna hafa játað sekt
sína og fengu flestir skilorðsbundna dóma;
frá tíu mánuðum til tveggja og hálfs árs,
fyrir fjársvik og að hafa hindrað framgang
réttvísinnar. Meðal þeirra sem dóma hlutu
var Stefano Tanzi sonur eigandans, Calisto.
Fausto Tonna fyrrum fjármálastjóri og
Giampaolo Zini lögmaður voru einu sak-
borningarnir sem ekki fengu skilorðs-
bundinn dóm og hyggjast þeir áfrýja.
Ljóst varð að ekki var allt með felldu hjá
Parmalat árið 2003 þegar í ljós kom að
engin innistæða var á bankareikningi fyrir-
tækisins sem sagður var innihalda 250
milljarða króna og að skuldir fyrirtækisins
voru átta sinnum meiri en gefið hafði verið
upp. Parmalat var í kjölfarið tekið til gjald-
þrotaskipta.
Rannsókn hefur staðið yfir í átta mánuði
og leitt ýmislegt vafasamt í ljós. Saksókn-
arar segja Parmalat hafa spunnið mikinn
blekkingarvef og að allt hafi verið gert til
þess að hylja slóð yfirmanna fyrirtækisins.
Calisto Tanzi var árið 1998 sakaður um
fjársvik en kærunni var að loknum réttar-
höldum vísað frá. Fundist hafa gögn sem
sýna að dómarinn í málinu, Adriano Padula,
fór í boðsferðir á vegum ferðaskrifstofu í
eigu Tanzis.
Parmalat var upphaflega lítið matvæla-
fyrirtæki í eigu Tanzi-fjölskyldunnar og
hafði höfuðstöðvar í ítölsku borginni
Parma. Á tímabili störfuðu 37 þúsund
manns hjá fyrirtækinu í meira en þrjátíu
löndum.
Réttarhöldin yfir þeim sem ekki hafa
játað sekt sína hefjast 28. september næst-
komandi og fara fram í Mílan.
- jsk
! " " "#
$ %"&'#!#( %!!#"")$")
( %# #%" %# %*+#&,#"#
")-(.# (/(./ %( "# 0/")-#
%# #$ &,- #1)#% #-/"%"*$ #
" 1# -.1./ %( "2 %) ##3"
#))4) - " 0#)30(#
%%%#%" %#%"*$ & "35
-###-##*$ 1 6 &7+"
# )-#03 0$")$ % #&
7+)%## *+#$ 6'89*#%5
-(%% / 89- #1%# ##% /" %#45
" !2 /
:-) #%);:-) #./"
!+##"%- # !+# / "4# % ")
-#4" -1#- .2) "%) -1/ "")
##+" "!!-" <=1 " )# #&
7+ "")%)) # 3 #$ &'#(5
/ ""<
>>-# # 3 #)/%""$)#)2$*$ 5
(41 #-/" %*+#&?+"
)2 ."!%<>-# #< $# 3
)*+#1"&@ )"$:)* &
# ")A')*$ 1>=
* 2" "%#
)&#&*$ 11B #&C(
+D"& " E
@ )"$:)* &!""/ "1.## 1B #")
&")03 * ")# "
(#) #*$ &
! "
CALISTO TANZI STOFNANDI PARMALAT Hefur verið ákærður fyrir stórfelld skattsvik og
skjalafals. Alls eru 16 starfsmenn fyrirtækisins ákærðir, auk þriggja fjármálafyrirtækja.
Yfirmenn Parmalat
dregnir fyrir rétt
Sextán yfirmenn Parmalat ákærðir fyrir skjalafals og fjársvik. Ellefu játuðu sekt sína
og hafa þegar hlotið dóm. Hinir fimm bíða réttarhalda sem haldin verða i haust.
Fyrirtæki Land Gengi Gjald- (Gengi Breyting
miðill gjaldmiðils)
BTC Búlgaría 395,45 Lev 40,46 -0,46%
Carnegie Svíþjóð 84,75 SEK 8,40 -0,08%
deCode Bandaríkin 8,45 USD 64,64 1,16%
EasyJet Bretland 2,37 Pund 118,24 -3,27%
Finnair Finnland 7,00 EUR 78,72 -3,11%
French Connection Bretland 2,67 Pund 118,24 -1,82%
Intrum Justitia Svíþjóð 53,00 SEK 8,40 -2,73%
Low & Bonar Bretland 1,06 Pund 118,24 8,47%
NWF Bretland 5,35 Pund 118,24 -1,12%
Scribona Svíþjóð 14,60 SEK 8,40 -3,40%
Singer & Friedlander Bretland 3,14 Pund 118,24 -0,95%
Skandia Svíþjóð 42,60 SEK 8,40 -1,11%
Somerfield Bretland 1,90 Pund 118,24 -3,51%
Miðað við gengi bréfa og gjaldmiða 27. júní 2005
Ú T R Á S A R V Í S I T A L A 1 0 8 , 6 7 - 1 , 5 3 %
Fr
ét
ta
bl
að
ið
/A
P
Storkar Bandaríkjamönnum
Wen Jiabao forsætisráðherra
Kína segir enga þörf á því að
endurskoða gengi gjaldmiðils
landsins, yuansins. Wen sagði
stöðugt yuan þjóna hagsmunum
Kína og umheimsins. Ummælin
lét forsætisráðherrann falla á
fundi evrópskra og asískra fjár-
málaráðherra, sem nú stendur
yfir í Kína.
Bandaríkjastjórn hefur lengi
þrýst á Kínverja að endurskoða
gengið en þeir segja yuanið of
lágt metið miðað við dal sem
geri það að verkum að kín-
verskar vörur verða ódýrari en
ella í Bandaríkjunum.
Bandaríkjamenn hafa miklar
áhyggjur af því að þetta komi
niður á innlendri framleiðslu og
segja lágt gengi yuansins ógn við
stöðugleika alþjóðamarkaða.
„Við endurmetum ekki gjald-
miðil okkar vegna utanaðkom-
andi þrýsings“, sagði Wen og
bætti við: „Verði yuanið endur-
metið verður það að eigin frum-
kvæði en ekki vegna skipana frá
Washington“. -jsk
WEN JIABAO FORSÆTISRÁÐHERRA
KÍNA Wen segir Kínverjum ekkert liggja á
að láta endurmeta gjaldmiðil sinn og segir
Kínverja ekki láta undan þrýstingi frá
Bandaríkjamönnum.