Fréttablaðið - 29.06.2005, Blaðsíða 8
29. júní 2005 MIÐVIKUDAGUR
Sauma þurfti níu spor fyrir ofan leggangaop:
Dæmt fyrir hrottafengna nau›gun
DÓMSTÓLAR 42 ára gamall maður
var dæmdur í þriggja ára fang-
elsi í gær fyrir hrottafengna
nauðgun á fyrrum sambýliskonu
sinni. Verknaðurinn stóð í um
klukkustund í fjölbýlishúsi á
höfuðborgarsvæðinu að kvöldi
mánudagsins 12. júlí í fyrra.
Hann þarf að auki að greiða
henni eina milljón króna í skaða-
bætur.
Maðurinn reif konuna úr föt-
unum, ógnaði henni og þvingaði
til samræðis bæði í svefnher-
bergi og inni á baði, en þar tróð
hann einnig salernispappír í
leggöng hennar. Konan hlaut af
marbletti og hrufl, auk þess sem
sauma þurfti með níu sporum
sprungu fyrir ofan leggangaop
hennar. Dómurinn tók ekki til
greina neitun mannsins á verkn-
aðinum, en hann kvaðst hafa
komið ölvaður á heimili konunn-
ar umrætt kvöld til að kvarta
undan símaónæði. Dómurinn
segir fjarstæðukennda skýringu
mannsins, að konan hafi sjálf
veitt sér áverka á kynfærum.
Þá var maðurinn einnig
dæmdur fyrir margvísleg um-
ferðarlagabrot og fyrir að hafa í
nokkur skipti haft í fórum sín-
um fíkniefni af ýmsum toga, en
þau brot játaði maðurinn. Gerð
voru upptæk 19,17 grömm af
maríhúana, 3,84 grömm af hassi
og 15,84 grömm af amfetamíni
sem lögregla lagði hald á. -óká
Erlendir fjársvikarar
hóta fólki öllu illu
Rukkarar erlendra fjársvikafyrirtækja hringja hiklaust í fólk heim a›
kvöldlagi og hóta flví öllu illu ef fla› grei›i ekki tiltekna „skuld.“ Fjölmargir
forrá›amenn íslenskra fyrirtækja hafa or›i› fyrir slíkum hótunum.
FJÁRSVIK Þess eru dæmi að erlend
auglýsingasvikafyrirtæki hringi
í forsvarsmenn íslenskra fyrir-
tækja heim að kvöldlagi og hóti
þeim öllu illu ef þeir greiði ekki
fyrir veitta „þjónustu.“ Starf-
semi erlendu fjárplógsfyrirtækj-
anna snýst um að fá fyrirtæki til
að samþykkja skráningu í gagna-
banka, að því er virðist án endur-
gjalds. Í smáu letri sem fylgir
skilmálum er hins vegar kveðið á
um að greiða þurfi háar fjárhæð-
ir fyrir skráninguna. Reikningar
upp á 70 þúsund krónur, sem er
algeng upphæð, koma því for-
ráðamönnum fyrirtækja í opna
skjöldu.
Þetta segir Sigurður Jónsson
framkvæmdastjóri Samtaka
verslunar og þjónustu. SVÞ hafa
nú varað sérstaklega við þessum
svikafyrirtækjum, sem einkum
láta til sín taka á vorin og sumrin.
Sigurður segir, að svo virðist sem
þeir sem stunda þessa iðju telji
að auðveldara sé að villa um fyr-
ir sumarafleysingafólki heldur
en starfsmönnum sem hafa meiri
reynslu. Svikararnir beiti sífellt
nýjum aðferðum svo erfitt er að
varst þá.
„Við höfum fengið fjölmargar
ábendingar og beiðnir um aðstoð
undanfarnar vikur frá Íslending-
um sem hafa lent í klóm fyrir-
tækja sem stunda fjárplógsstarf-
semi,“ segir Sigurður og bætir
við að mest sé kvartað undan
skráningarfyrirtækinu European
City Guide.
„Ef reikningar frá þessu fyrir-
tæki eru ekki greiddir er skuld-
urum hótað hörðum innheimtuað-
gerðum og ærnum viðbótar-
kostnaði. SVÞ ráðleggja fyrir-
tækjum að greiða ekki slíka
reikninga nema þau telji sig hafa
efnt til skuldanna,“ bætir hann
við.
European City Guide er skráð
á Spáni. Það er fyrirtækið Silver
Stone Management einnig, sem
sérhæfir sig í því að svíkja út
fjármuni með því að bjóða mikla
ávöxtun peninga með lítilli fyrir-
höfn og telja Íslendingum trú um
að nú sé tækifærið til að hagnast
á sterkri stöðu krónunnar. SVÞ
hafa fengið kvörtun frá aðila sem
lagði inn þúsundir bandaríkja-
dala á bankareikning fyrirtækis-
ins í von um skjótfenginn gróða
en peningarnir hurfu fljótt og
ekki hefur enn náðst í fulltrúa
fyrirtækisins, sem áður var svo
vinsamlegur og hjálpfús í símtöl-
um og bréfasendingum, að sögn
Sigurðar. jss@frettabladid.is
www.btnet.is.
• • Frelsaðu
félagann!
www.btnet.is
Kynntu þér málið...
aðeins á
• • Frelsaðu félagann!
• • Átt þú félaga með allt of lítinn hraða og takmarkað niðurhal?
• • Átt þú félaga sem þráir að hafa óheftann aðgang að netinu?
• • Eða viltu bara fá þér góða ADSL tenginu á frábæru verði?
Ef þú ert með BTnet getur þú bent félaga þínum á BTnet og þú færð
einn mánuð frían í staðinn og félagi þinn líka. Ef þú frelsar fleiri
félaga færðu frían mánuð fyrir hvern þann félaga sem skráir sig á
btnet.is.
Ef þú þekkir ekki neinn sem er með ADSL hjá BTnet þá getur þú
samt skráð þig á netinu og fengið frían mánuð.
Flottustu leikjaþjónar
landsins!
www.btnet.is >>
• • þú og
félagar
þínir fá
fría áskrift!
extra light
V16
• • Ótakmark
að
niðurhal
!
3.890 kr.
á mánuði allt innifalið m.v. 12 mánaða samning!
Sakaður um fíkniefnasölu og samræði við barn:
Neitar sök og vill ekki tjá sig
DÓMSTÓLAR Hæstiréttur staðfesti í
gær gæsluvarðhaldsúrskurð Hér-
aðsdóms Suðurlands yfir manni á
þrítugsaldri sem grunaður er um
fíkniefnasölu og kynferðismök
við stúlku undir 14 ára aldri. Mað-
urinn var handtekinn á miðviku-
daginn fyrir viku og úrskurðaður
í gæsluvarðhald á fimmtudag, en
það rennur út á morgun.
Í dómskjölum kemur fram að
lögreglan á Selfossi hafi frá 20.
maí hlerað síma mannsins og hafi
sú hlerun margsinnis leitt til
handtöku fólks með talsvert magn
fíkniefna. Sjálfur er maðurinn
sagður hafa verið varkár í sölu-
starfsemi og við afhendingu efna.
Við handtöku fundust í fórum
mannsins tveir hassmolar og
meintur skuldalisti vegna fíkni-
efnaviðskipta. Alls segist lög-
regla hafa hlerað um 1.900 símtöl
í síma mannsins og fengið upp-
lýsingar um fjölda kaupenda, auk
stærri dreifingaraðila. Þá vakn-
aði grunur um að maðurinn hefði
haft samræði við stúlku undir
lögaldri og telur lögregla nauð-
syn á skýrslutöku í Barnahúsi
vegna þess. Maðurinn harðneitar
sök og neitar að mestu að tjá sig
um sakarefni. Brot hans eru sögð
geta varðað allt að 12 ára fang-
elsi.
-óká
HÉRAÐSDÓMUR REYKJAVÍKUR Fjölskipaður
dómur kvað upp þriggja ára fangelsisdóm
yfir rúmlega fertugum manni í gær fyrir
nauðgun og fleiri brot. Dóminn kváðu upp
héraðsdómararnir Símon Sigvaldason, Arn-
grímur Ísberg og Sigríður Ingvarsdóttir.
HJÁLPARBEIÐNIR Sigurður Jónsson framkvæmdastjóri SVÞ hefur fengið fjölmörg símtöl
frá forráðamönnum íslenskra fyrirtækja sem lent hafa í klóm svikafyrirtækja. Hann varar
íslenska lögfræðinga við að taka að sér innheimtustarfsemi fyrir þau. Upplýsingar um
þessi fyrirtæki eru á vefsíðu SVÞ.
ÖLFUSÁRBRÚ Á SELFOSSI Lögregla á Sel-
fossi hleraði tæplega tvö þúsund símtöl í
síma manns sem situr í gæsluvarðhaldi
grunaður um umfangsmikla fíkniefnasölu
á Suðurlandi. Maðurinn er einnig grunaður
um samræði við stúlku undir lögaldri.