Fréttablaðið - 29.06.2005, Blaðsíða 63
23MIÐVIKUDAGUR 29. júní 2005
,,Við ætlum fjórar vinkonur
saman aftur og aftur!
Diskarnir eru æðislegir hjá okkur!“
S á k ið f i k di bö
Hvað segja börnin
um námskeið í
Keramik fyrir alla?
saman aftur og aftur!
Diskarnir eru æðislegir hjá okkur!“
Sumarnámskeið fyrir skapandi börn,
eldri og yngri, keramik, teikning,
málun - allt innifalið - litlir hópar.
Aðeins 8500 kr. vikan!
Skráning í Keramik fyrir alla,
sími 552 2882, Laugavegi 48b.
Sjá lýsingu: www.keramik.is
Sumarnámskeið
Keramik fyrir alla
Ennþá laust á vinsælu
barna ámskeiðin.
Ein vika, allt innifalið kr. 8900.-
Bókið núna.
IFE TOLENTINO OG FÉLAGAR Brasilíski
gítarleikarinn og söngvarinn Ife Tolentino
heldur tvenna tónleika í Reykjavík í ásamt
þekktum íslenskum jassistum.
Heit brasil-
ísk tónlist
Brasilíski söngvarinn og gítar-
leikarinn, Ife Tolentino er staddur
á Íslandi og heldur tvenna tón-
leika í vikunni ásamt nokkrum
þekktum íslenskum jassistum.
Þeir fyrri verða á Grand Rokk á
miðvikudagskvöldið 29. júní kl
22:00 og þeir seinni í Iðnó, föstu-
dagskvöldið 1. júlí, kl 21:30. Með
Ife spila þeir Óskar Guðjónsson á
saxófón, Ómar Guðjónsson á gítar
og Matthías Hemstock og Þor-
valdur Þór Þorvaldsson á slag-
verk.
„Þetta er ósvikin samba-og
bossanova-tónlist. Brasilíumaður-
inn er að kenna okkur nýja takta
því þetta er efni sem heyrist ekki
oft hér á landi. Þetta er efni í anda
gömlu meistaranna, Carlos Jobim,
Stan Getz og Joao Gilberto og við
erum að reyna að flytja þessa tón-
list eins og þetta á að vera gert,“
segir Þorvaldur Þorvaldsson slag-
verksleikari og bætir því við að
mikið verði á efnisskránni af
brasilískum þjóðlögum sem Ife
Tolentino hefur spilað alla sína
tíð, allt frá því að hann var barn á
götunum í Sao Paulo en Ife býr
núna í London þar sem hann mat-
reiðir sjóðheitt samba ofan í Eng-
lendinga. ■
Einleikir á Ísafirði
Leiklistarhátí› ver›ur haldin á Ísafir›i dagana 30. júní til 3. júlí flar sem settar
ver›a upp tíu s‡ningar me› einungis einum leikara. fiekktir leikarar munu
halda á Vestfir›i og taka flátt í hátí›inni, sem er bæ›i fljó›leg og alfljó›leg.
„Hátíðin er dálítið sérstæð því á
henni verða eingöngu sýndir ein-
leikir. Sýndir verða tíu einleikir
sem allir eru atvinnusýningar og
kemur einn þeirra alla leið frá
Króatíu en sá sem stendur fyrir
honum flúði Júgóslavíu þegar
stríðið geisaði þar og bjó hér á
Flateyri um tveggja ára skeið,“
segir Elfar Logi Hannesson leik-
ari, sem stendur fyrir leiklistar-
hátíðinni Act Alone á Ísafirði frá
30. júní til 3. júlí. Auk þess að
skipuleggja hátíðina sýnir Elfar
Logi einleik sinn um Gísla Súrs-
son sem hann frumsýndi fyrr á
árinu.
„Ég hef verið að fást við
þetta leikhúsform síðustu fjög-
ur árin, mér fannst það við
hæfi að slík hátíð væri haldin
hér á Ísafirði þar sem
Komedíuleikhúsið, sem er eina
atvinnuleikhúsið hér á Vest-
fjörðum, hefur eingöngu sett
upp slíka einleiki frá árinu
2001. Einleiksformið hefur
smátt og smátt verið að hasla
sér völl hér á Íslandi og
sum hafa gengið af-
skaplega vel svo
sem eins og
H e l l i s b ú -
inn.
Ég held að við séum rétt að byrja
að snerta á þessu merkilega leik-
húsformi og við eigum eftir að
kanna margar leiðir hvað það
varðar. Það er ofboðslega mikil
ögrun fyrir leikara að standa einn
á sviðinu,“ segir Elfar.
Elfar segir að líkja megi ein-
leikhúsforminu við það þegar
menn á Íslandi flökkuðu á milli
bæja fyrr á öldum, sögðu sögur
og léku og fengu að éta í staðinn.
„Fæstir þessara manna hafa
auðgast af fé en flestir hafa þeir
auðgast á sálinni fyrir vikið,“
segir Elfar um þessa ís-
lensku einleikara
fortíðarinnar.
„Þetta er erfitt,
en þetta er besta
tilfinning í heimi
eins og einhver
sagði og verðlaun-
in eru góð því
m a ð u r
þroskast mikið á því að fást við
þetta,“ segir Elfar um einleiks-
formið.
Þekktir leikarar munu leggja
leið sína vestur á hátíðina. Ilmur
Kristjánsdóttir mun setja upp
einleik sinn Ausa sem sýndur var
í Borgarleikhúsinu, Hörður
Torfason mun sýna einleik sem
hann kallar Sögur og söngvar frá
eyjunni æ og Hallveig Thorlacius
setur upp Egilssögu. Á hátíðinni
verður frumflutt nýtt útvarps-
leikrit eftir Guðmund Oddsson
sem heitir Síðasta segulband
Hrapps og svo rekur hver ein-
leikurinn annan á hátíðinni.
Ókeypis er inn á dagskrárliði
hátíðarinnar. ■
ELFAR LOGI HANNESSON Í hlutverki sínu í
einleiknum um Gísla Súrsson sem hann frum-
sýndi 18. febrúar í félagsheimilinu á Þingeyri.
Elfar mun sýna einleikinn á hátíðinni sem fram
fer á Ísafirði dagana 30. júní til 3. júlí.