Fréttablaðið - 29.06.2005, Blaðsíða 18

Fréttablaðið - 29.06.2005, Blaðsíða 18
Bakpoki Góður bakpoki getur skipt sköpum á göngu um fjöll og firnindi. Gefðu þér góðan tíma í að finna rétta pokann og mátaðu hann áður en þú kaupir hann. [ ] Sumarbúðir fjöskyldunnar í Básum 10. – 15. júlí Í þessum sumarbúðum taka börnin foreldra eða aðra forráðamenn með. Skipulögð dagskrá alla dagana; leikir, göngur, ævintýri, varðeldur, söngur, glens og grín. Dagskrá- in miðast við aldurinn 9-12 ára og geta hinir fullorðnu tekið þátt að vild. Yngri systkini eru velkomin og þegar hægt er taka þau þátt í dagskránni. Verð: Gisting í skála 16400/18800 kr. fyrir fullorðna og 9300/10600 kr. fyrir börn, gisting í tjaldi 14400/16800 kr. fyrir fullorðna og 8000/9300 kr. fyrir börn. Systkinaaf- sláttur er 15%. Innifalið í verði: Ferðir fram og til baka, gisting, morgunverður alla daga, þátttaka í dagskrá og lokamáltíð á fimmtudagskvöldi. Leiðbeinendur: Stefán Már Guðmundsson og Stefán Magnússon sem eru af góðu kunnir fyrir störf sín með börnum. Eyrarbakki var í aldaraðir verslunarstaður Sunnlendinga. Í dag eru þar varðveitt mörg gömul hús sem bera vitni um merka fortíð og setja fallegan svip á staðinn. Hægt er komast í beina snert- ingu við fortíðina og fræðast um söguna í Byggðasafni Árnesinga í Húsinu frá 1765 og Sjóminjasafninu á Eyrarbakka.Húsið Söfnin eru opin kl. 11-17 alla daga í júní, júlí og ágúst, kl. 14-17 um helgar í apríl, maí, sept. og okt. Á öðrum tímum eftir samkomulagi. Sími 483 1504 · www.husid.com AQUIS handklæði í ferðalagið Í bakpokann, ferðatöskuna, sundið, líkamsræktina ofl. Taka lítið pláss, létt, þurrka vel, þorna fljótt, alltaf mjúk. Dreifing: Daggir s: 462-6640 www.daggir.is Riðið á slóð Brennu-Flosa Bjarni Eiríkur, skólastjóri Reiðskólans Þyrils, verður leiðsögumaður í Njáluferðunum. Reiðskólinn Þyrill býður upp á spennandi hestaferðir á Njáluslóðir. Ferðirnar henta öll- um og eru skemmtileg leið til að skoða landið og kynnast sögunni um leið. Í sumar býður Reiðskólinn Þyrill upp á skemmtileg- ar hestaferðir um Njáluslóðir á hverjum sunnudegi. Bjarni Eiríkur Sigurðsson, skólastjóri reiðskólans, segir að ferðir af þessu tagi hafi verið afar vinsælar undanfarin sumur enda góð útivist í skemmtilegu umhverfi. „Ferðirnar henta öllum og menn þurfa ekki að vera þaulreyndir hestamenn til þess að koma með. Við erum með alls konar hesta og ferðirnar eru sniðnar að þörfum hópsins. Það er líka misjafnt hvað túrinn er langur. Stundum erum við á baki í klukku- tíma og stundum í þrjá. Það fer allt eftir hópnum hverju sinni,“ segir Bjarni, sem sjálfur er leiðsögu- maður í ferðunum. Reiðskólinn Þyrill útvegar allt sem þarf fyrir ferðina og að auki er boðið upp á morgunverðarhlað- borð áður en lagt er af stað og grill að ferð lokinni. Lagt er af stað frá Torfastöðum í Fljótshlíð og riðið þaðan á slóð Brennu-Flosa. Áð er við Klitnafoss og svo haldið á Njálusetrið á Hvolsvelli þar sem hlýtt er á fyrirlestur um Njálu. „Við höfum fengið ýmsa val- inkunna menn til þess að flytja fyrirlestra sem tengjast Njálu. Í fyrra fóru þessir fyrirlestrar fram í ferðinni sjálfri en nú ætlum við að hafa þá á Njálu- setrinu. Fyrirlestrarnir eru öllum opnir og menn þurfa ekki að fara í hestaferðina til þess að hlýða á,“ segir Bjarni. Þeir sem hafa áhuga á að ríða á slóð fornkappanna geta nálgast allar nánari upplýsingar og skráð sig í ferðirnar í síma 899 4600. thorgunnur@frettabladid.is Hress hópur er að leggja af stað í fjórhjólaferð þegar blaðamaður rennir í hlað á Indriðastöðum. Ingólfur Stefánsson hjá fyrir- tækinu Eskimós er að undirbúa fólkið, kenna því á hjólin og fara vel og vandlega yfir öll öryggis- atriði. Hann brýnir fyrir því að stoppa í tíma ef einhver hræðsla geri vart við sig. Spenningurinn er mikill, allir eru komnir í galla og með hjálma á höfuð. Svo er lagt af stað eftir gömlum slóða sem liggur milli túna og farið rólega. Ilmur gróð- urs fyllir vitin og golan leikur við kinn. Ferðinni er heitið upp á fagran ás fyrir ofan bæinn en þaðan sést yfir Skorradalsvatn og vítt um byggð í Borgarfirði. Sumir tvímenna á hjólunum. Golan leikur við kinn Að ferðast um á fjórhjóli er eitt af því hægt er að gera á Ind- riðastöðum í Skorradal. útivist } Elliðaárdalurinn er skemmtilegt útivist- arsvæði. Gengið með Orku- veitunni í sumar Í SUMAR VERÐUR BOÐIÐ UPP Á FERÐIR AF ÝMSU TAGI UNDIR LEIÐ- SÖGN VÍSINDAMANNA. Göngu- og fræðsluferðir Orkuveit- unnar hafa verið vinsælar undanfarin ár og í sumar verður ýmislegt í boði fyrir þá sem vilja rölta um í náttúr- unni og fræðast um leið. Næstu þriðjudaga verður gengið um Elliðaárdalinn en viðfangsefnið er aldrei það sama. Gróðurfar, fuglalíf og skordýr eru meðal þess sem skoðað verður í ferðunum. Umsjónamenn eru Einar Gunnlaugs- son, jarðfræðingur og Kristinn H. Þorsteinsson, garðyrkjufræðingur. Allar nánari upplýsingar um ferðirn- ar, dagsetningar og tímasetningar má finna á heimasíðu Orkuveitunnar www.or.is. Svæðið á Njáluslóðum er fallegt. Hér eru reiðmenn á ferð við Klitnafoss. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /E G VA FR ÉT TA B LA Ð IÐ /G U N
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.