Fréttablaðið - 29.06.2005, Blaðsíða 57
17MIÐVIKUDAGUR 29. júní 2005
MESTA HÆKKUN
ICEX-15 4.154
KAUPHÖLL ÍSLANDS [ HLUTABRÉF ]
Fjöldi viðskipta: 314
Velta: 11.891 milljónir
+0,67%
MESTA LÆKKUN
Actavis 40,70 -0,49% ... Atorka 5,87
+0,34% ... Bakkavör 39,50 +1,54% ... Burðarás 15,30 – ... FL Group
15,50 – ... Flaga 4,08 +4,62% ... Íslandsbanki 13,35 – ... KB banki
538,00 +1,13% ... Kögun 60,00 +0,67% ... Landsbankinn 17,40 +1,16%
... Marel 57,30 -1,21% ... Og fjarskipti 4,05 – ... Samherji 12,10 – ...
Straumur 12,45 +1,22% ... Össur 80,00 +0,63%
Flaga 4,62%
Grandi 1,80%
Bakkavör 1,54%
Jarðboranir -1,43%
Marel -1,21%
Atlantic Petroleum -0,83%
HLUTABRÉF Í ÚRVALSVÍSITÖLU:
Umsjón: nánar á visir.is
ENGAR SÖLUBEIÐNIR Stjórn SPH hafði
ekki fengið beiðni um framsal stofnfjár-
hluta í gær. Hún hittist á fundi í dag.
Sparisjóður Hafnarfjarðar:
Engar bei›nir
borist
Engar beiðnir höfðu borist í gær
frá stofnfjáreigendum til stjórnar
Sparisjóðs Hafnarfjarðar um
framsal á stofnfjárhlutum. Stjórn
sparisjóðsins hittist í dag og tekur
fyrir óskir um framsal á bréfum
hafi þær borist.
Víst þykir að á fimmtudaginn
komi í ljós hver standi á bak við
hugsanleg kaup á stofnfjárbréf-
um í SPH en þá rennur út sá frest-
ur sem stofnfjáreigendur hafa til
þess að skila inn svörum til Fjár-
málaeftirlitsins um hvort við-
skipti hafi átt sér stað með stofn-
fjárbréf eða tilboð borist í hlutina.
- eþa
HJÖRLEIFUR JAKOBSSON Tekur sæti í
stjórn Eglu.
Tekur sæti Peter Gatti.
N‡ stjórn Eglu
Hjörleifur Jakobsson hefur tekið
sæti í stjórn Eglu í stað Peter
Gatti. Þetta var ákveðið á stjórn-
arfundi í Eglu í gær. Peter Gatti
sat í stjórn Eglu fyrir þýska bank-
ann Hauck & Aufhaeuser sem hef-
ur selt sinn hlut til Kjalar. Aðrir í
stjórn Eglu eru Ólafur Ólafsson
og Kristján Loftsson. Hluthafar í
Eglu eru Ker, Kjalar og Grettir.
-dh
Velta Mosaic eykst
Sala Karen Millen
dregst saman en hún
eykst hjá Oasis, Whist-
les og Coast.
Hagnaður Mosaic fashion eft-
ir skatta á fyrsta ársfjórðungi
var 0,6 milljónir punda eða 71
milljón króna. Hagnaður fyr-
irtækisins eftir skatta á sama
tíma í fyrra var 0,9 milljónir
punda eða 107 milljónir króna.
Velta Mosaic jókst um 13
prósent milli ára og á árinu í
heild er gert ráð fyrir að 18
prósenta aukning verði á sölu
ársins.
Mosaic fashion sam-
anstendur af fjórum mismun-
andi keðjum, Oasis, Whistles,
Coast og Oasis. Salan jókst
um meira en tíu prósent hjá
Oasis, Whistles og Coast. Sala
Karen Millen dróst aftur á
móti saman.
Í lok tímabilsins, 30 apríl
2005 voru skuldir félagins 300
milljónir punda eða tæpa 36
milljarða króna. Eiginfjárhlut-
fall félagsins var tæp níu pró-
sent á sama tíma.
Efnahagsreikningur Mosa-
ic hefur tekið breytingum síð-
an í apríl, bæði vegna hluta-
fjárútboðs og skuldabréfaút-
boðs.
-dh HAGNAST UM 71 MILLJÓN Hlutafjárútboði Mosaic lauk með
glæsilegri tískusýningu í Skautahöllinni.
Meira fé milli
handa
Meðalráðstöfunartekjur heimilis
á Íslandi hafa hækkað um 71 pró-
sent á milli áranna 1995 og 2003
samkvæmt rannsókn Hagstofunn-
ar, sem birt var í gær. Á sama
tíma hækkaði launavísitalan um
72 prósent og vísitala neysluverðs
um rúmt 31 prósent.
Í hálffimm fréttum KB banka
segir að þar sem fjöldi heimilis-
manna hafi dregist saman jafngildi
þessi hækkun ráðstöfunartekna
heimilanna 82 prósent hækkun ráð-
stöfunartekna á mann. Ráðstöfunar-
tekjur á mann, sem teljast allar
tekjur einstaklings að frádregnum
álögðum sköttum, hafi því hækkað
meira en launavísitalan og atvinnu-
tekjur á mann. ■