Fréttablaðið - 29.06.2005, Blaðsíða 61
MIÐVIKUDAGUR 29. júní 2004 21
Ronaldinho lofar
mögnu›um úrslitaleik
FÓTBOLTI Brasilíumenn mæta
Argentínumönnum í úrslitaleik
Álfukeppninnar í Þýskalandi í
dag.
Búast má við fjörugum leik, en
landslið beggja þjóða hafa ávallt
spilað skemmtilega knattspyrnu.
Ronaldinho, leikstjórnandinn frá-
bæri í liði Brasilíumanna, lofaði
skemmtilegum leik þegar hann
ræddi við fréttamenn í gær.
„Þetta verður magnaður leikur.
Argentínumenn eru með marga
góða leikmenn sem við verðum að
passa vel. Við eigum þó að hugsa
um að hafa gaman af leiknum, því
svona leikir fara ekki fram á
hverjum degi. Ef við náum að
spila fótbolta eins og við viljum
spila hann þá eigum við að vinna
þennan leik.“
Leikurinn fer fram í Frankfurt
og hefst bein útsending frá leikn-
um klukkan hálfsjö á Sýn.
-mh
LEIKIR GÆRDAGSINS
Landsbankadeild kvenna:
STJARNAN–ÍBV 2–3
FH–BREIÐABLIK 0–7
KR–VALUR 1–2
STAÐAN:
BREIÐABLIK 7 7 0 0 28–5 21
VALUR 7 6 0 1 33–9 18
KR 7 4 0 3 23–13 12
ÍBV 7 4 0 3 25–17 12
KEFLAVÍK 7 3 0 4 16–23 9
STJARNAN 7 2 0 5 8–20 6
FH 7 2 0 5 6–21 6
ÍA 7 0 0 7 6–37 0
1. deild karla:
VÍKINGUR Ó.–KA 0–3
LAUGARNAR Í REYKJAVÍK itr.is
SUN MÁN ÞRI MIÐ FIM FÖS LAU
ÁRBÆJARLAUG BREIÐHOLTSLAUG GRAFARVOGSLAUG KLÉBERGSLAUG LAUGARDALSLAUG SUNDHÖLLIN VESTURBÆJARLAUG
ÍS
LE
N
S
K
A
A
U
G
LÝ
S
IN
G
A
S
T
O
FA
N
/S
IA
.I
S
I
T
R
2
8
8
5
6
/0
6
.0
5
FJÖLSKYLDUUPPSKRIFT Í POTTINUM
Mateja Kezman, serbneski sókn-armaðurinn sem eyddi stærst-
um hluta síðustu leiktíðar sitjandi á
varamannabekk
Chelsea, er geng-
inn til liðs við Atlet-
ico Madrid á Spáni.
Hinn 26 ára gamli
Kezman skoraði að-
eins fjögur deildar-
mörk í 24 leikjum
fyrir Chelsea á síð-
ustu leiktíð eftir að hafa komið frá
PSV fyrir fimm milljónir punda síð-
asta sumar.
Með brotthvarfi Kezman er ekkihægt að segja annað en að
sóknarlína Chelsea sé afar þunn-
skipuð. Í dag skipa hana aðeins
tveir leikmenn, Eiður Smári
Guðjohnsen og Didier Drogba, en
forráðamenn félagsins eru í leit að
nýjum sóknarmanni. Nafn Fernando
Torres hjá Atletico hefur helst verið
nefnt í því samhengi en forseti fé-
lagsins, Enrique Cerezo, var fljótur
að binda enda á þær vangaveltur.
„Roman Abramovich getur gleymt
því að fá Torres,“ sagði hann í gær.
Rætt hefur verið um að Chelseagæti farið þá leið að selja Hern-
an Crespo ekki til AC Milan eins og
til stóð, en þar var hann á láni allt
síðasta tímabil og sló í gegn á Ítalíu.
Að sögn Ariedo Braida, stjórnarfor-
manns AC Milan, hafa félögin náð
samkomulagi um framlengingu
lánssamningsins en það sé ekki
komið á hreint hvort skrifað verði
undir þá samninga. „Chelsea er að
reyna að sannfæra Crespo um að
koma aftur til London,“ segir Braida.
Jóhann Hreiðarsson, miðjumaður-inn sem hefur verið í láni hjá Vík-
ing frá Val síðasta mánuðinn, hefur
náð munnlegu samkomulagi um að
verða áfram í láni hjá félaginu út
sumarið. Eru þetta mjög góð tíðindi
fyrir Víking þar sem Jóhann hefur
verið fastamaður í liðinu frá því að
hann kom og spilað mjög vel.
Newcastle hefur sektað franskavængmanninn Lauren Robert
um tveggja vikna laun, jafnvel þó að
sala hans til Portsmouth sé nánast
frágengin. Robert
fær sektina fyrir að
láta ærumeiðandi
orð falla um stjóra
Newcastle, Graeme
Souness. „Við hefð-
um orðið Evrópu-
meistarar á síðustu
leiktíð hefði hann
haft vit á að átta sig á hvað var í
gangi. Hann er bara barn. Ef hann
heldur svona áfram verður hann
rekinn og það á hann skilið,“ sagði
Robert um Souness, sem var í kjöl-
farið ekki lengi að losa sig við
franska ólátabelginn.
Aðstoðarþjálfari Man.Utd, CarlosQueiroz, lýsti því yfir í gær að
portúgalski miðjumaðurinn Cristi-
ano Ronaldo sé fjarri því að vera á
leið burt frá félaginu. Barcelona og
Real Madrid eru
sögð mjög áhuga-
söm um það að fá
Ronaldo í sínar
raðir fyrir næstu
leiktíð en hann hef-
ur áður lýst því yfir
að hann vilji fá
nýjan og bættan
samning hjá Man. Utd. „Ronaldo er
einn af leikmönnum sem liðið mun
verða byggt í kringum á næsta ári
og það væri fráleitt af okkur að láta
hann fara. Hann er leikmaður í
þeim gæðaflokki sem við verðum
að hafa í liðinu, svo einfalt er það,“
segir Queiroz.
ÚR SPORTINU
Intersport-deildin:
Jón aftur á
heimasló›ir
KÖRFUBOLTI Miðherjinn Jón Ólafur
Jónsson hefur snúið aftur á kunn-
uglegar slóðir í úrvalsdeildinni í
körfubolta, en í gær var staðfest
að hann færi frá KR og gengi til
liðs við sitt gamla félag Snæfell í
Stykkishólmi. Jón fékk lítið að
spreyta sig með Vesturbæjarlið-
inu í fyrra, en hefur nú lokið námi
sem hann stundaði í Reykjavík að
mestu og ákvað því að snúa aftur.
„Þar er líka mun meiri spila-
tími í boði eftir að Fannar kom í
KR, þannig að beinast lá við að
fara í Hólminn aftur,“ sagði Jón
Ólafur í samtali við Fréttablaðið í
gær.
-bb
Úrslitaleikur Álfukeppninnar fer fram í kvöld:
RONALDINHO Í LEIK MEÐ BARCELONA.
Ronaldinho verður í eldlínunni með
landsliði Brasilíu, sem þykir sigur-
stranglegra í úrslitum Álfukeppninnar
gegn Argentínu í dag.