Fréttablaðið - 29.06.2005, Blaðsíða 60

Fréttablaðið - 29.06.2005, Blaðsíða 60
29. júní 2004 MIÐVIKUDAGUR > Við samgleðjumst ... ... Þórði Guðjónssyni, eina íslenska leikmanninum í herbúðum Stoke, sem væntanlega horfir fram á nýja tíma með liðinu á næstu leiktíð. Þórður, sem var sveltur af tækifærum með Stoke í fyrra, starfaði með Johan Boscamp, væntanlegum stjóra félagsins, hjá Genk fyrir nokkrum árum og kom þeim mjög vel saman. Heyrst hefur ... ... að hinir íslensku eigendur Stoke hafi hafnað tilboði frá Peter Coates, einum af meðeigendum sínum, um að kaupa meirihlutann í félaginu. Þess í stað ætla fjárfestarnir að snúa vörn í sókn og undir forystu nýs knattspyrnustjóra ætlar félagið að gera eina tilraun enn til að koma liðinu í deild hinna bestu á Englandi. sport@frettabladid.is 20 > Við skiljum ekki ... .... vinnubrögðin sem eru í hávegum höfð hjá forráðamönnum Stoke. Að gera samning við knattspyrnustjóra og reka hann tveimur mánuðum síðar er ekki aðeins furðulegt heldur einnig vandræðalegt fyrir alla þá sem eiga hlut að máli. Í kjölfarið hefur Stoke tvo stjóra á launaskrá næsta árið með tilheyrandi kostnaði. Hin íslenska stjórn knattspyrnufélagsins Stoke City rak í gær fljálfara sinn til sí›ustu flriggja ára, Tony Pulis, a›eins tveimur mánu›um eftir a› hafa skrifa› undir n‡jan samning vi› hann. Tony Pulis rekinn frá Stoke City FÓTBOLTI „Hann stóð sig ágætlega en hann virtist einhverja hluta vegna ekki geta fylgt þeirri stefnu okkar að leita á erlenda markaði eftir liðsstyrk. Því fórum við þá leið að láta hann fara,“ sagði Gunnar Þór Gíslason, stjórnarformaður Stoke, við Fréttablaðið í gær spurður um ástæðu þeirrar ákvörðunar að reka Pulis. Fréttir af brottvikningu Pulis vöktu mikla athygli í knattspyrnu- heiminum í Bretlandi í gær, sér- staklega í ljósi þess að ekki eru liðnir nema rétt um tveir mánuðir síðan stjórnin framlengdi samn- ing sinn við Pulis og lýsti yfir mikilli ánægju með hans störf. „Þegar hann skrifaði undir samninginn fyrr á árinu stóð til að hann myndi leita meira til Evrópu að nýjum leikmönnum en hugur hans virðist ekki fylgja máli í þeim efnum,“ segir Gunnar Þór. Fréttablaðið hefur heimildir fyrir því að brottvikning Pulis eigi sér töluverðan aðdraganda og að ákvörðun um að reka hann hafi legið fyrir í upphafi mánaðarins. Er það helst fyrir tilstuðlan Magn- úsar Kristinssonar, stjórnarfor- manns Stoke Holding, sem Pulis er látinn fara, en Stoke Holding er fjárfestingarfyrirtækið sem stóð á bak við yfirtöku íslensku fjár- festanna á félaginu árið 1999. Magnús hefur ekki farið leynt með mislíkan sína á starfsaðferð- um Pulis í gegnum tíðina en honum virðist vera fyrirmunað að nota ís- lenska leikmenn í sínu liði. Skemmst er að minnast orða Magnúsar í samtali við Fréttablað- ið 29. apríl sl. „Ég mun ekki eyða meiri pening í þetta félag á meðan Tony Pulis er við stjórn.“ Gunnar Þór vildi ekkert segja til um hvort brotthvarf Pulis yrði til þess að Magnús myndi setja pening í félagið á nýjan leik og vís- aði á Magnús sjálfan til að svara því. Ekki náðist í Magnús vegna málsins í gær þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir. Gunnar Þór hefur boðað til blaðamannafundar í dag þar sem búist er við að arftaki Pulis verði kynntur til sögunar. Gunnar Þór vildi ekkert segja um hver sá maður væri en samkvæmt heimildum Fréttablaðsins mun það vera Hollendingurinn Johan Boscamp, sem meðal annars hefur þjálfað belgísku liðin Anderlecht og Genk. vignir@frettabladid.is Valsarinn Sigþór Júlíusson komst í hann krappan í leik gegn KR í fyrra- kvöld er hann braut bein í handar- baki í fyrri hálfleik. „Ég datt illa á höndina eftir návígi í lok fyrri hálfleiks og braut bein. Ég fór í skoðun í dag og fékk spelku sem ég vonast til að geta leikið með. En ég lét lækninn skoða þetta í hálf- leiknum og hann batt fast um höndina þannig að ég gat klárað leikinn. Það er vissulega erfitt að spila með aðra höndina brotna en það er samt ekkert sem maður hugsar um meðan á leiknum stendur. Ég hefði látið Willum vita ef ég hefði ekki treyst mér áfram en það gekk allt vel og ég þurfti aldrei að biðja um skiptingu,“ segir Sigþór, sem ætlar að láta það ráðast á morgun hvort hann treysti sér til að leika gegn Þrótti annað kvöld. Sigþór segir að hann hefði örugglega haldið áfram sama hver andstæðingur- inn var. „En það skemmdi ekkert fyrir að það var KR. Ég vildi alls ekki fara út af í svona leik. Leikir þessara liða eru líka alltaf stórir og maður vill ekki missa af þeim,“ segir Sigþór sem lék í sjö ár með KR áður en hann skipti yfir í Val fyrir núverandi tímabil. Hann reyndar lék með Val í tvö ár áður en hann gekk til liðs við KR. En hann segir að það hafi verið gott að vinna sigur á gömlu félögunum. „En það er auðvitað gott að vinna alla leiki. Við urðum líka að fá sigurleik nú eftir að hafa tapað síðustu tveimur leikjum til að koma okkur aftur af stað.“ Forysta FH í Landsbankadeildinni er því enn sex stig en hefði verið níu ef Valur hefði ekki unnið KR í gær. „Jú, það var auðvitað gott að forskot þeirra skyldi ekki aukast en við þurfum fyrst og fremst að hugsa um okkar leik. Ef við höldum áfram að hala inn stigin verð- um við ánægðir og það væri ekki verra ef FH-ingar misstíga sig. Það segir sig sjálft að mótið er ónýtt ef þeir fá að komast upp með að vinna alla leiki.“ SIGÞÓR JÚLÍUSSON HARKAÐI AF SÉR: LÉK SÍÐARI HÁLFLEIK GEGN KR HANDARBROTINN Ætla›i ekki a› missa af flessum leik MasterCard Open 2. - 3. júlí, Jaðarsvelli, Akureyri Leikfyrirkomulag Leikinn verður punktaleikur, 7/8 forgjöf. Glæsileg verðlaun Verðlaun fyrir 1.-3. sæti, bæði með og án forgjafar. Einnig lengsta teighögg, nándarverðlaun og dregið úr skorkortum. 100.000 kr. MasterCard ferðaávísun fyrir holu í höggi. Mótsgjald Mótsgjald kr. 3.500. 50% afsláttur ef greitt er með MasterCard. Skráning Skráning á www.golf.is og í síma 462 2974 til kl. 18, föstudaginn 1. júlí. Mótið hefst laugardaginn 2. júlí kl. 9. Frekari upplýsingar á www.kreditkort.is/klubbar og www.golf.is. HVAÐ? HVENÆR? HVAR? 26 27 28 29 30 31 1 Miðvikudagur MAÍ ■ ■ LEIKIR  19.15 ÍA fær ÍBV í heimsókn í Landsbankadeild Karla. ■ ■ SJÓNVARP  17.15 Olíssport á Sýn.  18.30 Álfukeppnin – úrslitaleikur á Sýn.  21.00 Sterkasti maður heims á Sýn.  22.00 Olíssport á Sýn.  22.20 Formúlukvöld á RÚV.  23.15 Álfukeppnin – úrslitaleikur á Sýn. TONY PULIS Náði góðum árangri hjá Stoke þrátt fyrir að hafa verið með lítið fjármagn á milli handanna á þeim tæplega þremur árum sem hann var hjá félaginu. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTYIMAGES Vill a› Max Mosley segi upp FORMÚLA Uppákoman í Formúlu 1 kappakstrinum í Indianapolis um þar síðustu helgi ætlar heldur bet- ur að draga dilk á eftir sér og nú hefur Jackie Stewart, fyrrum heimsmeistari í greininni, lagt til að Max Mosley, forseti alþjóða akstursambandsins, segi af sér vegna málsins. „Ég hef aldrei orðið vitni að öðru eins klúðri og því sem varð á brautinni í Indianapolis síðan ég hóf að fylgjast með akstursíþrótt- um,“ segir Stewart. „Mosley hefur misst allt traust og hann verður að átta sig á stöðunni sem hann er kominn í. Þeir sem stjórna liðun- um verða að bera trausts til yfir- manns íþróttarinnar. Svo er ekki nú.“ -vig Jackie Stewart, þrefaldur heimsmeistari í formúlu 1: Toppslagurinn í Landsbankadeild kvenna: FÓTBOLTI Ótrúlegt mark Rakelar Logadóttur beint úr hornspyrnu þremur mínútum fyrir leikslok tryggði Valsstúlkum þrjú dýr- mæt stig í toppslagnum gegn KR í Landsbankadeild kvenna. Valur sýndi gríðarlegan karakter með því að koma til baka eftir að Hrefna Jóhannes- dóttir hafði komið KR-ingum yfir í upphafi síðari hálfleiks. Laufey Ólafsdóttir jafnaði metin skömmu síðar og eins og áður segir var það Rakel sem reyndist hetja liðsins á lokamínútunum. -vig Rakel trygg›i Val öll stigin HETJAN Rakel skoraði ótrúlegt mark undir lok leiksins í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.