Fréttablaðið - 29.06.2005, Blaðsíða 44
AFMÆLISTERTA FYRIR 2.500 MANNS
Páll Samúelsson stjórnarformaður P. Sam-
úelssonar hf. og stofnandi fyrirtækisins
sker fyrstu sneiðina af afmælistertunni fyrir
konu sína, Elínu S. Jóhannesdóttur.
MIÐVIKUDAGUR 29. JÚNÍ 2005 MARKAÐURINN20
H É Ð A N O G Þ A Ð A N
Þessa dagana er haldið upp á 35
ára afmæli Toyota umboðsins P.
Samúelssonar hf. í höfuðstöðvum
fyrirtækisins við Nýbýlaveg í
Kópavogi. Afmælisveislan stend-
ur til morguns og eru allir vel-
komnir. Toyota Formúlu 1
kappakstursbíll er á staðnum,
veitingar eru í boði og margvís-
leg afmælistilboð bíða þeirra
gesta sem hafa hug á að kaupa
sér bíl.
Við upphaf afmælisveislunnar
síðastliðinn laugardag var boðið
upp á afmælistertu sem nægði
2.500 gestum og veitti ekki af því
tæplega 2.900 gestir mættu til
veislunnar. -dh
Toyota 35 ára
Afmæliskaka fyrir 2.500 manns.
Bílanaust er stofnað 1970 og er
því rótgróin verslun og lands-
mönnum að góðu kunn. Höfuð-
stöðvarnar hafa verið til húsa í
Borgartúni í tæp tuttugu ár, frá
1986. Fyrirtækið hafði áður verið
að Síðumúla sjö til níu frá stofn-
un.
Alls verður nýja húsnæðið 10
þúsund fermetrar að stærð. Her-
mann Guðmundsson segir fyrir-
tækið hafa vaxið jafnt og þétt og
að flutningarnir séu ef til vill
besta dæmið um það: ,,Þegar við
fluttum í Borgartúnið þrefölduð-
um við rýmið sem við höfðum til
umráða og nú erum við að tvö-
falda. Við segjum nú stundum í
gamni að næst flytjum við árið
2025 og þá í 20 þúsund fermetra
húsnæði“.
Verslun Bílanausta verður 3
þúsund fermetrar og segir Her-
mann hana þá stærstu sinnar teg-
undar á Norðurlöndum. Stækkun
verslunarinnar sé í takt við þá
þróun sem víðast hvar eigi sér
stað: ,,Bílar verða sífellt flóknari
fyrirbæri og ekki á hvers manns
færi að halda uppi alhliða þjón-
ustu. Menn þurfa til að mynda
þriggja milljóna króna tölvu til
að skipta um bremsuklossa í ný-
legum jeppa. Ég held að þróunin
verði sú að einingarnar verði sí-
fellt stærri og öflugri og ein-
yrkjarnir víki. Við erum mikið að
sinna bílaverkstæðunum, og rek-
um hér til að mynda 800 milljóna
króna vörulager“.
Nýju versluninni er ætlað að
vera svokölluð „one stop shop“
þar sem á að vera hægt að ganga
að öllu sem til þarf á einum og
sama staðnum. Hermann segir
Bílanaust byggja á þremur meg-
instoðum, sölu á bílavarahlutum,
iðnaðarvörum og hjólbörðum:
,,Þarna verður allt til alls. Meira
að segja kaffihús. Þetta er nátt-
úrulega stórbætt þjónusta“.
Ein stærsta breytingin er lík-
lega sú að í nýju versluninni
verður mun meiri lífsstílsáhersla
eins og Hermann kallar það: ,,Við
ætlum að vera með alvöru,
massíva grilldeild. Með því erum
við að sinna aðilum eins og Skelj-
ungi og Hagkaup. Svo verðum
með margvíslegar útivistarvör-
ur, sem er alveg nýtt hjá okkur“.
Markaðshlutdeild Bílanausta
er um fjörtíu prósent í varahlut-
um og hjólbörðum en öllu minni í
iðnaðarvörunni þar sem Byko og
Húsasmiðjan bera höfuð og herð-
ar yfir aðra.
Hluthafar í Bílanaustum eru
tveir, Hafsilfur og Straxfast, og á
hvort félag um sig helmingshlut.
Velta fyrirtækisins er áætluð á
þessu ári tveir og hálfur milljarð-
ur króna og rekstrarhagnaður tíu
prósent.
Aðspurður segir Hermann
mikla möguleika felast í framtíð-
inni: ,,Ný reglugerð frá Evrópu-
sambandinu gerir aðilum sem
ekki eru í neinum beinum eigna-
tengslum við umboðin kleift að
framlengja ábyrgð á bílum. Verk-
stæðin geta framlengt ábyrgðina
að því gefnu að þau uppfylli til-
tekin skilyrði og hafi tilskilinn
búnað. Þetta er alveg nýtt tæki-
færi fyrir okkur og verkstæðin
sem við þjónustum“.
HERMANN GUÐMUNDSSON FRAMKVÆMDASTJÓRI BÍLANAUSTA Hermann segir ekki lengur á hvers mann færi að halda uppi alhliða þjónustu við bílaeigendur og spáir því að
einyrkjar heyri brátt sögunni til: ,,Menn þurfa þriggja milljóna króna tölvu til þess eins að skipta um bremsuklossa á nýlegum jeppa“.
Stærstir á Norðurlöndum
Bílanaust flytur á næstu dögum í nýtt og glæsilegt 10 þúsund fermetra húsnæði að Bíldshöfða 9. Jón
Skaftason fór og hitti Hermann Guðmundsson framkvæmdastjóra og forvitnaðist um reksturinn.
M
ar
ka
ðu
rin
n/
Va
lg
ar
ðu
r
SPRON opnar nýtt útibú
SPRON hefur opnað nýtt útibú að Lágmúla 6, í sama húsi og
Bræðurnir Ormsson eru til húsa. Aðaláhersla nýja útibúsins er
að veita vandaða og persónulega fjármálaráðgjöf og þjónustu
sem sniðin er að þörfum einstaklinga og fyrirtækja, að því er
segir í tilkynningu frá SPRON. Að þessu nýja útibúi meðtöldu
starfrækir SPRON nú tíu afgreiðslustaði víðs vegar um höfuð-
borgarsvæðið. Útibússtjóri er Lárus Sigurðsson sem jafnframt
stýrir útibúi SPRON í Ármúla 13a. Arkitektar nýja útibúsins eru
Heiða Elín Jóhannsdóttir og Dóra Hansen hjá Innanhúsarkitekt-
um eitt A. -dh
ÚTIBÚIÐ Í LÁGMÚLA 10 afgreiðslustaðir SPRON eru á höfuðborgarsvæðinu.
M
ar
ka
ðu
rin
n/
G
VA
TEKUR VIÐ GÆÐAVOTTUN Brynj-
ar Bragason framkvæmdastjóri RTS
tekur við skjali til staðfestingar á
gæðavottun.
RTS verkfræðistofan hef-
ur fengið faggilta gæða-
vottun samkvæmt ISO
9001:2000 staðlinum fyrst
íslenskra verkfræðistofa á
rafmagnssviði. Það var
breska vottunarfyrirtækið
BSI (British Standard
Institute) sem nú hefur
opnað starfsstöð á Íslandi
sem tók út og vottaði
gæðakerfi RTS. Gæða-
kerfi RTS er ekki bundið
við einstaka starfssvið
heldur tekur það til allra
þátta í starfsemi verk-
fræðistofunnar.
„Með því að fá faggilta
vottun á gæðakerfi RTS er
langþráðum áfanga náð
sem mun styrkja fyrirtæk-
ið í þeirri útrás sem
framundan er og höfum
við einsett okkur að auka
gæði þjónustunnar enn
frekar,“ segir Brynjar
Bragason framkvæmda-
stjórni RTS.
Brynjar bendir á að ISO
9001: 2000 staðallinn geri
kröfu um að fyrirtækið
mæli reglulega árangur og
ánægju viðskiptavina með
þjónustuna en það gefi
þeim dýrmætar upplýsing-
ar um frammistöðu RTS á
hverjum tíma. -dh
RTS fær
gæðavottun