Fréttablaðið - 29.06.2005, Blaðsíða 1

Fréttablaðið - 29.06.2005, Blaðsíða 1
Leitar a› 500 sta›- genglum – tveir fá a› segja átta setningar CLINT EASTWOOD: ▲ SÍÐA 30 FÓLK MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Sími: 550 5000 STARFSLOK Björn Ingi Sveinsson, sem var sagt upp störfum sem sparisjóðsstjóra Sparisjóðs Hafn- arfjarðar eftir hallarbyltingu í sjóðnum, kann að fá 50 milljónir króna í starfslokagreiðslur fyrir fjögurra mánuða starf. Björn Ingi var ráðinn til starfa um síðustu áramót af stjórninni sem þá var við völd. Þegar samið var við Björn Inga um kaup og kjör var fallist á að hann fengi ríf- legar bætur ef breytingar yrðu á yfirstjórn sparisjóðsins. Þær eru metnar á um 50 milljónir króna samkvæmt heimildum Frétta- blaðsins. Nýja stjórnin sagði Birni Inga upp þegar hún komst til valda og réði annan sparisjóðs- stjóra. Ekki hefur verið gengið frá starfslokum Björns Inga. Hvorki Páll Pálsson, stjórnarformaður Sparisjóðsins, né Björn Ingi vildu tjá sig um efni starfsloka- samningsins meðan málið er ófrágengið. Helgi Vilhjálmsson í Góu er stofnfjáreigandi í Sparisjóði Hafnarfjarðar. Hann segir það al- veg úti í mýri að reka sparisjóðs- stjóra eftir svona stuttan tíma, sérstaklega með viðlíka starfs- lokasamning. „Þessir menn voru ekki að kaupa bankann til að reka hann. Ég fer ekki svona með pen- ingana sem ég vinn mér fyrir. Svona fara menn bara með pen- inga sem þeir hafa ekki aflað sér sjálfir,“ segir Helgi um nýja stjórn Sparisjóðs Hafnarfjarðar. Sjá Markaðinn í miðju blaðsins - eþa/oá Nýtt v iðski ptabl að með Frét tablaðinu alla miðvikudaga Sögurnar • Tölurnar • Fólkið Auglýsingasími 550 5000 FER AÐ RIGNA SUÐAUSTAN TIL SÍÐDEGIS Í DAG Annars yfirleitt þurrt og skýjað með köflum víða um land, síst þó sunnan til. Hiti almennt 11-16 stig VEÐUR 4 MIÐVIKUDAGUR 29. júní 2005 - 173. tölublað – 5. árgangur BETRI NOTAÐIR BÍLAR Þrjúhundruð og fimmtíu þúsund króna afsláttur af sérvöldum bílum Spunameistarar Bandarísk stjórnvöld kæra sig kollótt um hverju lesendur virtra fjölmiðla trúa, segir Ólafur Hannibalsson. Það sem skiptir máli er hvað hægt er að fá hinn breiða fjölda til að trúa, hvaða blekk- ingum þarf að beita til þess að skapa það andrúmsloft að hægt sé að hefja stríð. UMRÆÐAN 16 Afslöppuð tónlist Tónlistarsystkinin Ellen Kristjánsdóttir og bróðir hennar Kristján, eða KK, ætla í tónleika- ferðalag um landið sem hefst í kvöld. SÍÐA 24 Tony Pulis rekinn frá Stoke Íslendingafélagið Stoke City í enska boltanum rak í gær knattspyrnustjóra sinn, Tony Pulis, aðeins tveimur mánuðum eftir að hafa gert við hann nýjan samning. Eftirmaður Pulis verður tilkynntur á blaðamanna- fundi síðar í dag. ÍÞRÓTTIR 20 Jákvætt vi›horf til stær›fræ›i mikilvægt JENNÝ SIGURÐARDÓTTIR: Í MIÐJU BLAÐSINS ● nám ● ferðir ▲ GAMLI OG NÝI TÍMINN Herskip af öllum stærðum og gerðum fylltu Solent-sund, nærri Portsmouth á Englandi, í gær í tilefni þess að í ár eru 200 ár liðin frá hinni sögufrægu orrustu við Trafalgar. 21. október 2005 gjörsigraði breski flotinn undir stjórn Nelsons sjóheri Frakka og Spánverja skammt undan Trafalgar-höfða á Spáni en orrustan leiddi að lokum til fullnaðarsigurs Breta á herjum Napóleons Bónaparte. EINKAVÆÐING Eignarhlutar þýska bankans Hauck&Aufhäuser í Búnaðarbankanum er ekki getið í ársreikningi hans eins og gefið var í skyn í tilkynningu frá bankanum á mánudag sem var send fjölmiðlum á ensku og ís- lensku. Þegar tilkynningarnar tvær eru bornar saman er í ensku til- kynningunni sagt að hlutur þýska bankans í Eglu hafi verið færður í reikningsskil bankans. Í íslensku þýðingunni er hins vegar sagt að bréfin hafi verið „bókuð í ársreikningi bankans.“. Í ársreikningi þýska bankans er hlutarins í Eglu eða Búnaðar- bankanum hins vegar ekki getið með beinum hætti hvorki fyrir árið 2003 né fyrir árið 2004. „Yfirlýsing Hauck&Afhäuser á mánudag varð til með þeim hætti að fyrirsvarsmenn Eglu áttu samtöl við fyrirsvarsmenn þýska bankans og upplýstu þá um umræðuna sem átt hefur sér stað í fjölmiðlum hérlendis á undanförnum vikum, þar sem meðal annars er dregið í efa eignarhald þeirra á hlutum í Eglu. Í kjölfar þessa ákvað þýski bankinn að senda frá sér sína yfirlýsingu,“ segir Kristinn Hallgrímsson, lögmaður Eglu. Guðmundur Hjaltason, end- urskoðandi og framkvæmda- stjóri Eglu, mun að eigin sögn hafa þýtt tilkynningu Eglu yfir á íslensku og fyrirtækið Athygli sá svo um að koma tilkynning- unum til fjölmiðla. Árni Þórður Jónsson hjá At- hygli segir að fyrirtækið hafi aðeins séð um að senda tilkynn- inguna en segist ekki vita hver skrifaði hana. „Tilkynningunni var snarað yfir á íslensku til þess að hún kæmist til fjölmiðla sem fyrst. Ef áhöld eru uppi um óná- kvæmni í þýðingunni þá er ekki við þýska bankann að sakast,“ segir Kristinn. Í tilkynningunni kemur ekk- ert fram um hvort þýski bank- inn hafi verið raunverulegur eigandi hlutarins í Búnaðar- bankanum. Kristinn segir að í samtölum við fyrirsvarsmenn þýska bank- ans hafi verið ljóst að eignir voru færðar í efnahag bankans undir veltubók og eðlilegt væri að fyrirsvarsmenn bankans myndu staðfesta það. - hb VEÐRIÐ Í DAG Samningar hafnir við fyrrverandi sparisjóðsstjóra eftir fjögurra mánaða starf: 50 milljóna starfslokasamningur M YN D /A P Búna›arbanka ekki geti› í ársreikningi Ekkert er minnst á Búna›arbankann í ársreikningi fl‡ska bankans Hauck & Aufhäuser. Engin sta›festing á eign bankans í tilkynningu hans. Misræmis gætir í fl‡›ingu framkvæmdastjóra Eglu á tilkynningu fl‡ska bankans. Fléttulisti hjá VG í Reykjavík: Kynjakvóti í prófkjöri SVEITARSTJÓRNARMÁL Vinstrihreyf- ingin grænt framboð í Reykjavík ætlar að boða til prófkjörs 1. októ- ber þar sem valið verður fólk í sex efstu sæti á lista, hvort sem hreyf- ingin býður fram ein eða með Reykjavíkurlistanum. Á félags- fundi VG í gær var samþykkt til- högun prófkjörsins og forvals á framboðslista. Reglurnar kveða á um að karl og kona skipist til skipt- is í sæti á lista. „VG hefur nú tekið afstöðu til þess hvernig valdir verða fulltrúar. Þá eru tímamót út af fyrir sig að prófkjörsleið skuli farin, en það hefur ekki verið gert áður, heldur hefur verið raðað á lista,“ segir Svandís Svavarsdóttir formaður kjördæmisráðs Vinstri grænna í Reykjavík. -óká SVANDÍS SVAVARSDÓTTIR Félagsfundur Vinstri grænna í Reykjavík samþykkti að allur framboðslisti flokksins skuli vera fléttulisti, þar sem skiptast á karl og kona. Jóhannes Páll II: Bætist í tölu helgra manna VATÍKANIÐ, AP Undirbúningur er haf- inn að því að taka Jóhannes Pál II, fyrrum páfa, í tölu dýrlinga. Nefnd sem kanna á hvort hann hafi lifað lífi að hætti helgra manna hefur tekið til starfa, og taka nú við vitnaleiðslur og önnur rannsóknar- vinna til að ganga úr skugga um það. Einnig þarf að sanna að eftir dauða hans hafi tvö kraftaverk komið til vegna Jóhannesar Páls II áður en hann verður gerður að dýr- lingi. Ljóst er að Jóhannes Páll II nýt- ur mikillar hylli meðal kaþólikka og margir líta þegar á hann sem dýr- ling. ■
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.