Fréttablaðið - 29.06.2005, Blaðsíða 25
Í
SL
EN
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
L
BI
28
63
6
06
/2
00
5
Í
SL
EN
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
L
BI
28
63
6
06
/2
00
5
Góð og örugg ávöxtun á lausafé fyrir einstaklinga, fyrirtæki, sveitarfélög og aðra fjárfesta.
Kynntu þér ótvíræða kosti Peningabréfa hjá ráðgjöfum Landsbankans.
* Nafnávöxtun frá 02.05.2005–01.06.2005 á ársgrundvelli.
Peningabréf Landsbankans
410 4000 | landsbanki.is Banki allra landsmanna
Peningabréf eru fjárfestingarsjóður í skilningi laga nr. 30/2003, um verðbréfasjóði og fjárfestingarsjóði. Athygli fjárfesta er vakin á því að fjárfestingar-
sjóðir hafa rýmri fjárfestingarheimildir skv. lögunum heldur en verðbréfasjóðir. Um frekari upplýsingar um sjóðinn, m.a. hvað varðar muninn á verð-
bréfasjóðum og fjárfestingarsjóðum og fjárfestingarheimildir sjóðsins, vísast til útboðslýsingar og úrdráttar úr útboðslýsingu sem nálgast má í
afgreiðslum Landsbanka Íslands hf. auk upplýsinga á heimasíðu bankans www.li.is
Flókin samskipti
Smáfuglarnir
vita sínu viti
Vínmarkaðurinn
Léttvín best í hófi
Heilarannsóknir
Stjörnur
eiga taugar
Sögurnar... tölurnar... fólkið...
Miðvikudagur 29. júní 2005 – 7. tölublað – 1. árgangur Veffang: visir.is – Sími: 550 5000
Valdabarátta | Átök standa um
völd í Sparisjóði Hafnarfjarðar.
Fjölmargir stofnfjáraðilar hafa
fengið tilboð í hluti sína. Fjár-
málaeftirlitið óskar eftir skýringu
frá stofnfjáreigendum.
Mikil viðskipti | 14 milljarða
króna viðskipti hafa verið með
bréf í Íslandsbanka undanfarna
daga. Engar tilkynningar hafa
borist frá Kauphöllinni um hverj-
ir standa á bak við kaupin.
Engin blaðra | Sérfræðingar
segja ekki hættu á verðfalli á fast-
eignamarkaði hér á landi á næst-
unni þrátt fyrir miklar hækkanir
að undanförnu. Haldi verð áfram
að hækka er þó ekki loku fyrir það
skotið að verðfall verði síðar.
Olíuæði | Verð á olíu fór í vikunni
yfir 60 dali á fat. Er það einsdæmi
í sögunni. Sérfræðingar sjá ekk-
ert lát á hækkunum og óstöðug-
leikinn á markaðnum er slíkur að
smávægilegustu atvik geta valdið
verðhækkunum.
Allt á að fara | Sumarútsölur
fara nú að hefjast og standa fram
yfir verslunarmannahelgi. Kaup-
menn segja útsölur standa yfir of
lengi og draga úr sölu á nýjum
sumarvörum.
Innistæðulausir | Sextán yfir-
menn ítalska matvælarisans
Parmalat hafa verið ákærðir fyrir
fjársvik og skjalafals. Ellefu ját-
uðu sekt og hlutu strax dóm. Eng-
in innistæða var á reikningi fyrir-
tækisins sem sagður var innihalda
250 milljarða króna.
Bláa Hreyfing | Bláa lónið hefur
fest kaup á líkamsræktarstöðinni
Hreyfingu. Velta sameinaðs fé-
lags verður á annan milljarð
króna og starfsmenn 150.
Enn stórviðskipti með
hlutabréf Íslandsbanka:
Baugsmenn
líklegastir
Hlutabréf í Íslandsbanka fyrir
9,5 milljarða króna skiptu um
hendur í gær. Engar tilkynningar
voru sendar Kauphöllinni og ekk-
ert fékkst uppgefið hverjir
stæðu á bak við þessi viðskipti.
Fyrir helgi voru seld bréf í
bankanum fyrir tæpa fjóra millj-
arða og var hluti þeirra bréfa
samkvæmt heimildum í eigu
Jóns Helga Guðmundssonar. Um-
fang viðskiptanna frá því á föstu-
dag var orðið svo mikið að þau
væru tilkynningaskyld ef einn
aðili væri að kaupa.
Karl Wernersson hefur reynt í
samstarfi við Jón Ásgeir Jóhann-
esson og fleiri fjárfesta að kom-
ast að samkomulagi við Straum
um kaup á þeirra eignarhlut í Ís-
landsbanka. Straumur er ekki á
þeim buxunum að selja sín bréf
nú sem stendur.
Seljandi í þessum viðskiptum
var ekki tilkynningaskyldur og
beinast því böndin að bankanum
sjálfum og að hann hafi safnað
eigin bréfum til þess að selja til
samstarfsmanna núverandi
stjórnarmeirihluta. Líklegastir
til þess að vera kaupendur eru
Baugur og tengdir aðilar. Enginn
var fáanlegur í gær til að stað-
festa neitt um viðskiptin.
Björgvin Guðmundsson
skrifar
Samkvæmt áreiðanlegum heimildum Markaðarins
átti Ólafur Ólafsson, stjórnarformaður Samskipa
og SÍF, félagið Serafin Shipping. Ekki hefur legið
fyrir hver var eigandi félagsins þrátt fyrir að það
hafi verið sjötti stærsti eigandinn í Icelandic Group
við sameiningu Sölumiðstöðvar hraðfrystihúsanna
og Sjóvíkur í byrjun sumars. Serafin fékk um sex
prósent hlutabréfa í sameinuðu félagi í skiptum
fyrir hlut sinn í Sjóvík.
Þegar svo stór eignarhlutur er á hönd sama aðil-
ans er honum skylt að gefa Kauphöll Íslands
ákveðnar upplýsingar samkvæmt lögum um verð-
bréfaviðskipti. Það var ekki gert. Í staðinn var
hlutabréfum Serafin Shipping í Icelandic Group
skipt niður á tvö félög; Fordace Limited sem fékk
4,47 prósenta hlut og Deeks Associates Ltd. með
1,49 prósenta hlut. Hvorugt þessara félaga réð þá
yfir meira en fimm prósent hlutafjár og þau voru
því ekki tilkynningarskyld í Kauphöllinni.
Ólafur Ólafsson vildi ekki staðfesta í síðustu
viku að hann ætti Serafin Shipping. Í samtali við
blaðamann sagðist hann ekki kannast við Fordace
Limited sem var á lista yfir tíu stærstu hluthafana
í Icelandic Group. Ekki náðist í hann við vinnslu
þessarar fréttar.
Fjármálaeftirlitið skoðar nú viðskiptin og þá sér-
staklega hlut Serafin Shipping. Eftirlitinu ber með-
al annars að fylgjast með því að nauðsynlegar lög-
bundnar upplýsingar séu gefnar upp á skiplögðum
hlutabréfamörkuðum. Sé brotið gegn lögum um
verðbréfaviðskipti varðar það sektum – liggi
þyngri refsing ekki við brotinu samkvæmt öðrum
lögum.
Ólafur var stjórnarformaður SÍF þegar félagið
seldi Sjóvík, sem hann var hluthafi í, söluhluta SÍF
í Ameríku síðastliðið haust. Þá höfðu margar til-
raunir verið gerðar til sameiningar SÍF og SH.
F R É T T I R V I K U N N A R
8 12-13 9
Starfslokasamningur Sparisjóðs
Hafnarfjarðar við Björn Inga
Sveinsson, fyrrum sparisjóðs-
stjóra, gæti numið 50 milljónum
króna samkvæmt heimildamönn-
um Markaðarins en ekki hefur
verið gengið endanlega frá hon-
um. Þegar samið var við Björn
Inga um kaup og kjör af fyrrver-
andi sparisjóðsstjórn var fallist á
að hann fengi ríflegar bætur ef
breytingar yrðu á yfirstjórn
sparisjóðsins.
Björn Ingi lét af störfum
skömmu eftir að ný stjórn náði
völdum í sparisjóðnum í lok apríl
síðastliðnum. Hann tók við af Þór
Gunnarssyni um síðustu áramót
og var því aðeins fjóra mánuði í
starfi áður en til starfsloka kom.
Magnús Ægir Magnússon var
ráðinn í stað Björns Inga.
Páll Pálsson, stjórnarformaður
SPH, sagðist lítið geta tjáð sig um
þessi mál nema að lögfræðingar
sparisjóðsins væru að skoða málið.
Björn Ingi Sveinsson vildi heldur
ekki tjá sig um þessi mál að svo
stöddu en sagði að málið yrði til
lykta leitt á næstu vikum. - eþa
Útrásarvísitalan lækkar:
Low & Bonar
hækkar mest
Útrásarvísitalan lækkar um 1,5
prósent milli vikna en krónan
hefur styrktst á sama tíma. Low
& Bonar er félagið sem hækkar
mest milli vikna en gengi þess
hækkaði um 8,5 prósent. Fjögur
félög lækkuðu um meira en þrjú
prósent þegar tekið hafði verið
tillit til hækkandi gengis en það
eru Somerfield, EasyJet, Scri-
bona og Finnair. DeCode er eina
félagið utan Low & Bonar sem
hækkaði milli vikna. Gengi þess
var 8,45 Bandaríkjadalir á hlut.
Sjá síðu 6. -dh
Ólafur Ólafsson átti
Serafin Shipping
Eigandi huldufélagsins í Icelandic Group var Ólafur Ólafsson í
Samskipum. Fjármálaeftirlitið skoðar viðskipti Serafin Shipping.
Starfslok Björns Inga Sveinssonar fyrrverandi sparisjóðsstjóra SPH enn í athugun:
Gæti fengið 50 milljónir fyrir 4 mánuði
HÖFUÐSTÖÐVAR ICELANDIC GROUP
Fr
ét
ta
bl
að
ið
/G
VA