Fréttablaðið - 29.06.2005, Blaðsíða 72
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 550 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 550 5005, fax: 550 5006, ritstjorn@frettabladid.is
DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 550 5000
555 7500
Gerum þök og
svalagólf vatnsheld
Nánari upplýsingar á www.pace.is
Málarameistari sér um þakið
Síðan 1991
Hef verið að koma mér upp sól-palli við heimili mitt í höfuð-
borginni. Reyndar þremur pöllum,
slík er sólin í Reykjavík. Að ég hélt.
Einn pallurinn nær morgunsólinni,
annar síðdegissólinni og loks sá að
vestanverðunni; hann nær kvöldsól-
inni. Ég á sumsé að heita nokkuð ör-
uggur með að fanga sólina, þegar og
ef hún lætur sjá sig. Þar fyrir utan
hef ég reist forláta skjólveggi um
allar koppagrundir í garðinum mín-
um, nánast burðarveggi, enda hvess-
ir Reykjavíkurlognið meira en geng-
ur og gerist með önnur logn.
ÉG HEF SVO AÐ SEGJA ekkert
notað pallana. Ýmist hefur verið of
kalt eða of hvasst eða sólin hefur
haldið sig í öðrum landshlutum.
Þessi paradís mín er sumsé mann-
laus svo vikum skiptir. Garðhús-
gögnin standa þar auð og yfirgefin
og sömuleiðis niðurdregin sólhlífin.
Keypti mér þó gashitara á dögunum
ef ske kynni að hægt væri að leika á
náttúruna – en enn hefur ekki verið
ástæða til að kveikja á honum sakir
vinds sem slekkur jafnharðan á log-
anum og kveikt er á honum.
MÉR HEFUR VERIÐ bent á að
kaupa mér markísu og festa hana
við útveggi hússins, svo sem eins og
tuttugu fermetra segldúk sem dreg-
inn er á örmum út yfir pallinn.
Þannig yrði ég varinn fyrir regni og
einhverjum vindi og líklegt væri að
loginn lifði á gasinu. Þess þá heldur
líka að einhver hiti héldist á pallin-
um og færi hvergi. Ég hef því verið
að bera mig eftir markísu-auglýs-
ingum í blöðunum á síðustu dögum
og jafnframt verið að skoða festing-
ar í byggingarvöruverslunum af því
að festingar eru víst lykilatriði þeg-
ar kemur að svona seglhimnum í
borginni.
EINN DAGINN ÞEGAR ég
horfði út um eldhúsgluggann minn á
herlegheitin og suðaustan úrfellið
lék um allar þessar eignir mínar í
garðinum fór ég að velta fyrir mér
þessari áráttu Íslendinga. Það má
heita plagsiður landsmanna að víg-
girðast á lóðum sínum; hvarvetna í
hverfum landsins er keppst við að
steypa niður staura svo hægt sé að
leita einhvers skjóls og berja í sig
hita. Þetta er eitthvað svo örvænt-
ingarfullt ... og séríslenskt; að eiga
pall en geta ekki notið hans ...
BAKÞANKAR
SIGMUNDAR ERNIS
RÚNARSSONAR
Sólpallar