Fréttablaðið - 29.06.2005, Blaðsíða 70
30 29. júní 2004 MIÐVIKUDAGUR
Miklir
mottumenn
Fjórða Tom Selleck-keppnin
verður haldin í kvöld á Sirkus.
„Keppnin hefst klukkan átta og
við erum harðir á tímanum,“ seg-
ir Sindri Már Kjartansson, tals-
maður keppninnar. „Hingað til
hafa keppendur verið í kringum
tuttugu manns og fjöldinn verð-
ur örugglega á svipuðu róli í
kvöld.“
Dómarar í keppninni eru
Raggi í Botnleðju, Harry Johans-
son sigurvegari ársins 2003 og
Maggi legó en hann bar sigur úr
býtum í fyrra. „Þetta eru allt
miklir mottumenn og auk þeirra
verður einn leynidómari. Það
sem skiptir máli í þessari keppni
er hvort eigandi mottunnar ber
hana vel. Hvort hún sé partur af
karakternum eða hvort þetta sé
bara eitthvað grín,“ segir Sindri
alvörugefinn en viðurkennir að
vissulega sé þetta svolítið grín.
„Svo verður líka sms-kosning í
salnum sem vegur 50 prósent á
móti dómurum,“ segir hann
hlæjandi og telur upp fjöldan all-
an af þeim glæsilegu verðlaun-
um sem bíða sigurvegarans
heppna. „Sigurvegarinn fær
skeggsnyrtikit, farandbikar sem
er hattur, veglegan skammt af
Thule frá Vífilfelli, hótelher-
bergi og alls konar fíneríi.“ ■
Lárétt: 2 mæra, 6 tveir eins, 8 lengdarein-
ing, 9 fugl, 11 í röð, 12 býður vafasama
greiðslu, 14 býr til brauð, 16 endalok,
17 skel, 18 vökva, 20 á fæti, 21 grind.
Lóðrétt: 1 hikst, 3 smáorð, 4 gerði fal-
lega, 5 skammstöfun, 7 trúaður maður,
10 maka, 13 keyra, 15 útstáelsi, 16 lækn-
ismeðferð, 19 tónn.
Lausn.
Lárétt: 2 lofa,6tt,8fet,9ara,11 gh,
12mútar, 14bakar, 16ko,17aða,
18 úða,20il,21rist.
Lóðrétt: 1 stam,3of, 4fegraði, 5ath,
7trúboði,10ata,13aka,15 rall,16kúr,
19 as.
BARNANÍÐINGURINN Í
SMÁÍBÚÐAHVERFINU
SKIPTIR UM HVERFI
Sumar gjafir skipta
öll börn máli!
Gefum börnum góða sumargjöf
Síðasta tölublað Grapevine virð-
ist hafa verið töluvert vinsælla
en fólk í herbúðum blaðsins átti
von á. Blaðið, sem
kom út 8. apríl og er
það fyrsta undir rit-
stjórn Barts Camer-
on, rauk út og er nú
svo illa fyrir rit-
stjórninni komið að
hún á ekki einu sinni
blöð í sitt eigið safn.
Jón Trausti Sigurðar-
son, markaðsstjóri
Grapevine, segir að
þá bráðvanti tölublöð
og því hafa þau tekið
upp á því að greiða
hundrað krónur
hverjum þeim sem
getur fært þeim eigu-
legt eintak af blaðinu.
Í gjafmildi sinni ætla þau einnig
að afhenda bjargvættum sínum
nýtt eintak af blaðinu. Umrætt
tölublað var með þremur mis-
munandi forsíðum þar sem þrír
meðlimir Spaugstof-
unnar brugðu á leik í
gervum þriggja ís-
lenskra stjórnmála-
manna. Grapevinel-
iða vantar eingöngu
þau blöð sem hafa
Randver Þorláksson í
gervi Jóhönnu Sig-
urðardóttur og
Pálma Gestsson í
gervi Halldórs Ás-
grímssonar á forsíð-
unni.
Fólk er því beðið
að mæta á Laugaveg
11 í Grapevinebúðina
og láta gott af sér
leiða því vonast er til
að fá tíu eintök af hvoru blaði
fyrir sig. ■
GRAPEVINE Hin eftirsóttu
tölublöð sem kláruðust.
Clint Eastwood hefur fengið
grænt ljós fyrir tökur í Krýsu-
vík fyrir myndina sína Flags of
Our Fathers. Allt er farið á fullt
við undirbúning á myndinni en
fimm hundruð leikarar og
statistar á aldrinum 18 – 40 ára
koma við sögu. Alexía Jóhannes-
dóttir, casting director hjá
Eskimo, hefur verið að leita að
fólki því hún þarf að finna mun
stærri hóp. „Phyllis Huffman
sem hefur valið leikara í kvik-
myndir Eastwood síðan 1982
kemur til landsins og við veljum
leikarana í sameiningu,“ segir
Alexía.
Fréttablaðið hefur heimildir
fyrir því að bjóða eigi statistum
heldur bág kjör fyrir þátttöku
sína en Alexía þverneitar fyrir
það. „Það er ekki búið að semja
um neitt kaup og kjör enda ekki
orðið ljóst hversu lengi hver
statisti þarf að vera á tökustað,“
segir hún. „Það verða allir í þrjá
daga á tökustað á meðan sumir
verða í allt að í tvær vikur,“
bætir hún við en það verður að
teljast mikill happafengur fyrir
íslenska leikara að fá að verja
jafn löngum tíma með leikstjóra
á borð við Clint Eastwood.
Statistarnir munu þurfa að þola
þó nokkuð mikið af sprenging-
um því alls verða 700 kíló af
Hollywood-sprengiefni notað í
Sandvík.
Ekki er eingöngu um texta-
laus hlutverk að ræða því þó
nokkrir fá að fara með setning-
ar í myndinni. „Það eru í kring-
um sjö til átta hlutverk sem
fylgja ein setning,“ segir Alexía
en rúsínurnar í pylsuendanum
verða eflaust tvö hlutverk. „Það
eru tveir leikarar sem fá að
segja í kringum átta setningar í
myndinni,“ segir hún sem telst
nokkuð mikið.
Alexía segir að mikill áhugi
sé fyrir þessari mynd og farsím-
inn hennar stoppi varla. „Það
eru margir sem hafa haft sam-
band,“ segir hún en reiknað er
með að prufur hefjist í júlí. Að-
spurð hvort búið sé að ráða í að-
alhlutverk í myndinni vildi hún
ekkert segja, búið væri að bjóða
þekktum Hollywoodleikara eitt
af þremur aðalhlutverkum í
myndinni og mjög líklegt væri
að hann þæði það. „Hann á mjög
fræga konu,“ segir hún leyndar-
dómsfull.
freyrgigja@frettabladid.is
FÁNINN REISTUR Það verður að teljast heldur ólíklegt að einhverjum af hinum íslensku
statistum verði leyft að lyfta fánanum í Iwo Jima. Þeir fá þó einhverjir að segja nokkrar
setningar.
...fá Þorsteinn Stephensen og að-
standendur tónlistarhátíðarinnar
Iceland Airwaves. Hátíðin hefur
vakið verðskuldaða athygli og
var valin ein af fimm bestu tón-
listarhátíðum heims af breska
tímaritinu New!
HRÓSIÐ
Grimmileg blaða-
mennska
Ég veit ekki hvort ég á
að öskra eða öskra þegar
ég sé svona fyrirsagnir
eins og birst hafa síðustu
daga. Af hverju förum við
ekki bara aftur í það að
hlekkja fólk við staura á
fjölförnum stöðum þegar
okkur finnst það hafa
misstigið sig? Það yrði að
vísu fljótlega skortur á
fólki til að reisa staurana
því við stæðum þarna öll
hlekkjuð á endanum.
Þessi blaðamennska er grimmileg, lágkúruleg og
heimskuleg og við eigum að taka höndum saman í
þessu litla þorpi okkar og stöðva hana hið snarasta.
Siðferðisgildin
breytast ekki
Tvímælalaust. Mér finnst
að blaða- og fréttamenn
eigi að virða þær siða-
reglur sem eru í gildi þó
svo að þær séu gamlar.
Þær eru byggðar á sið-
ferðisgildum mannsins og
gildin okkar eiga ekki að
breytast þó tímarnir
breytist. Fyrir þær sakir tel
ég rangt þegar blaða-
menn bera fyrir sig að
siðareglur séu úreltar og
hvet þá eindregið til að
virða þær reglur sem
stéttin í heild sinni hefur sett sér og leggja sig fram
um það að koma almennt vel fram við náungann.
Fyrir neðan beltis-
stað
Já, algjörlega. Að minnsta
kosti blöð eins og Hér og
Nú. Hingað til hefur mér
fundist blöðin hafa hag-
að sér ágætlega en þetta
er bara fyrir neðan beltis-
stað. Þetta er óforsvaran-
legt. Landið er nógu lítið
og fólk slúðrar nógu mik-
ið sín á milli. Blöðin eiga
ekki að vera að skipta
sér af svona persónuleg-
um málum sem koma
öðru fólki ekki við.
ERU ÍSLENSKIR FJÖLMIÐLAR AÐ FARA YFIR STRIKIÐ?
ÞRÍR SPURÐIR
Sóley Kristjánsdóttir
plötusnúður.
Gunnar Örlygsson þing-
maður Sjálfstæðisflokks-
ins.
Margrét Kristín Sigurðar-
dóttir, söngkona.
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
[ VEISTU SVARIÐ ]
Svör við spurningum á bls. 8
1
3
2
Gunnar I. Birgisson bæjarstjóri.
Spánarsnigill.
Makhtar Mai.
TOM SELLECK Leikarinn góðkunni þykir
bera einstaklega vel snyrta og glæsilega
mottu. Hann er sérleg fyrirmynd mottu-
keppninnar á Sirkus.
MOTTUKEPPNIN MIKLA Keppendur í
fyrra skörtuðu hver og einn glæsilegri
mottu. Hér eru þeir Raggi í Botnleðju og
Stebbi og Maggi úr GusGus.
Hundra› kall fyrir
Halldór og Jóhönnu
M
YN
D
/J
O
E
RO
SE
N
TH
AL
FLAGS OF OUR FATHERS: 500 STATISTA LEITAÐ
Tveir Íslendingar fá átta
setningar í myndinni