Fréttablaðið - 13.08.2005, Blaðsíða 2

Fréttablaðið - 13.08.2005, Blaðsíða 2
BYGGÐAKVÓTI „Útgerðarmenn sýna fáheyrða ósvífni með því að krefj- ast þess að dómsúrskurður færi þeim beinan eignarrétt yfir fisk- inum í sjónum,“ segir Össur Skarphéðinsson, þingmaður Sam- fylkingar. Magnús Kristinsson, útgerðar- maður í Vestmannaeyjum, íhugar að höfða mál gegn sjávarútvegs- ráðherra vegna úthlutunar byggðakvóta í síðustu viku, en Vestmannaeyingar fengu engan kvóta. Friðrik J. Arngrímsson, framkvæmdastjóri LÍÚ, segir einnig vilja innan sambandsins til þess að kanna fyrir dómstólum hvort úthlutun byggðakvóta stenst eignarréttarákvæði stjórn- arskrárinnar. Össur segir útvegsmenn með þessu að kasta stríðshanskanum. „Ef farið verður fyrir dómstóla eru þeir að ganga þeir lengra en áður að halda því fram að þeir hafi beint eignarhald yfir kvótan- um,“ segir Össur. „Lögin segja hins vegar fortakslaust að svo sé ekki.“ Össur segir lagabreytingar þurfi með ef niðurstaðan verði önn- ur. „Þetta færir mér enn frekar heim sanninn um nauðsyn þess að fest verði rækilega í stjórnarskrá að auðlindin í hafinu sé sameigin- leg þjóðareign,“ segir Össur. - ht 2 13. ágúst 2005 LAUGARDAGUR Össur Skarphéðinsson segir útvegsmenn ekki hafa eignarrétt yfir kvótanum: Fáheyr› ósvífni útvegsmanna Mótmælandi krotaði á styttuna af Jóni Sigurðssyni: Handtekinn fyrir veggjakrot MÓTMÆLI Mótmælandi var hand- tekinn í miðborg Reykjavíkur í gær grunaður um veggjakrot á styttuna af Jóni Sigurðssyni, Al- þingishúsið, Ráðhúsið og fleiri byggingar í miðborg Reykjavík- ur í fyrrinótt. Manninum var sleppt að loknum yfirheyrslum síðdegis í gær. Að sögn Óskars Þórs Sigurðs- sonar, lögreglufulltrúa á rann- sóknardeild, hélt maðurinn á málningarbrúsa er hann var handtekinn en annar maður sem einnig var á staðnum komst und- an á hlaupum. Maðurinn sem handtekinn var er af erlendu bergi brotinn og tilheyrir hópi fólks sem mót- mælt hafa Kárahnjúkavirkjun og álveri á Reyðarfirði. Birgitta Jónsdóttir, talsmaður þeirra, segir manninn saklausan af veggjakrotinu. Málningarbrúsi sem maðurinn hélt á hafi ekki verið notaður. Útlendingastofnun hefur gefið út að 21 erlendum ríkis- borgara sem mótmælt hafa framkvæmdum fyrir austan verði hugsanlega vísað úr landi. Þeir hafi eina viku til andmæla og verður ákvörðun um brott- vísun tekin í framhaldi af því að sögn Ragnheiðar Böðvarsdóttur, forstöðumanns á Útlendinga- stofnun. - ht Löngu tímabært a› stokka rá›uneytin upp Árni Magnússon og Björn Bjarnason lei›a vinnu vi› endursko›un stjórns‡sl- unnar. Fækkun rá›uneyta og tilkoma a›sto›arrá›herra hefur veri› rædd. For- sætisrá›herra segir löngu tímabært a› hefja vinnu vi› uppstokkun rá›uneyta. STJÓRNSÝSLA „Við erum fyrst og fremst að vinna að því að gera stjórnsýsluna markvissari og meira í takt við tímann,“ segir Halldór Ásgrímsson forsætisráð- herra. Á fundi ríkis- stjórnarinnar í gær var sam- þykkt að fela Birni Bjarnasyni dómsmálaráð- herra og Árna Magnússyni fé- l a g s m á l a r á ð - herra að leiða verkefni um endurskoðun á skipulagi stjórn- sýslunnar. Verk- efnið verður und- ir forystu forsæt- isráðuneytisins en Halldór Ás- grímsson viðraði upphaflega hug- myndir þessa efnis í hátíðar- ræðu sinni 17. júní síðastliðinn. „Það hafa orðið gífurlegar breytingar á okkar þjóðfélagi frá því að breyt- ingar af þessu tagi voru gerðar síðast árið 1969 en reyndar hefur umhverfisráðuneytið verið stofn- að síðan þá. Það hafa verið í gangi mjög margar hugmyndir um breytingar, þar á meðal að færa verkefni milli ráðuneyta, hugsan- lega sameina einhver ráðuneyti og koma á starfi aðstoðarráð- herra. Það er í það minnsta orðið löngu tímabært að fara í vinnu af þessu tagi,“ segir Halldór. Árni Magnússon félagsmálaráð- herra segist binda miklar vonir við þá vinnu sem er fram undan. „Við höfum lýst því yfir að það er tíma- bært að endurskipuleggja stjórnar- ráðið og hafa aðra og skýrari verkaskiptingu milli ráðuneyta með talsverðri fækkun þeirra líka. Ég held að það verði töluverð upp- stokkun enda hefur lítil sem engin breyting orðið á þessu skipulagi frá árinu 1969,“ segir Árni. Hann segir of snemmt að segja til um hversu mikið ráðuneytum geti fækkað en búast megi við talsverðri fækkun. „Ég hef sjálfur sagt það að mér finnst að hægt sé að fækka umtalsvert. En það verður að koma í ljós þegar vinn- an er hafin,“ segir Árni. Ekki náðist í Björn Bjarnason dómsmálaráðherra. hjalmar@frettabladid.is RÁNSBÍLLINN Jafnvirði 27 milljóna króna voru í Mitsubishi-pallbílnum sem fannst í fyrradag. Hluti fengsins fundinn: Gæti veri› klækjabrag› SAO PAULO, AP Lögregla hefur fundið örlítinn hluta ránsfengsins sem stolið var úr Banco Central í borg- inni Fortaleza fyrr í vikunni. Peningarnir, að jafnvirði 27 milljóna króna, fundust í pallbíl í bænum Belo Horizonte en hann er 1.500 kílómetra frá Fortaleza. Þótt lögreglan fagni fundinum útlokar hún ekki að verið sé að leiða hana á villigötur því enn eru 4,5 milljarðar króna ófundnir. Þá hafa rannsókn- arlögreglumenn skýrt frá því að þeim hafi tekist að bera kennsl á nokkra þjófana af myndum úr eftir- litsmyndavélum. Þeir eru taldir tengjast PCC, alræmdum glæpa- samtökum frá Sao Paulo. ■ SPURNING DAGSINS Gu›ni, ætlar›u a› svæfa d‡ralæknamáli›? „Nei! Ég ætla að vekja þessa menn.“ Dýralæknar hafa gagnrýnt Guðna Ágústsson landbúnaðarráðherra fyrir ráðningu forstjóra Landbúnaðarstofnunar. BRASILÍA LULA Í VONDUM MÁLUM Forseti Brasilíu, Lula da Silva, berst fyrir pólitísku lífi sínu eftir að fyrrum kosningastjóri hans upplýsti í vik- unni að kosningabaráttan hefði ver- ið fjármögnuð með leynilegum sjóðum. Skoðanakannanir sýna að minnihluti kjósenda styður hann. BANDARÍKIN DÓ VIÐ GÆLUDÝRABJÖRGUN Kona dó í eldsvoða á heimili sínu í smábæ í Oldham-sýslu í Kent- ucky á dögunum, hún hafði farið inn í logandi húsið til þess að bjarga heimiliskettinum. Eigin- maður hennar reyndi að koma henni til hjálpar en varð frá að hverfa vegna reyks. Hann horfði svo á húsið hrynja með konunni innandyra. VEGGJAKROT Kárahnjúkavirkjun og álveri við Reyðarfjörð var mótmælt með veggjakroti á styttuna af Jóni Sigurðssyni á Austurvelli og fleiri mannvirki í miðborg Reykjavíkur í fyrrinótt. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /H AR I HALLDÓR ÁSGRÍMS- SON Forsætisráðherra segir koma til greina að fækka ráðuneyt- um og færa verkefni milli ráðuneyta. STJÓRNARRÁÐIÐ Búast má við talsverðum breytingum á skipulagi stjórnarráðsins á næst- unni. Árna Magnússyni og Birni Bjarnasyni hefur verið falið að vinna að tillögum undir for- ystu forsætisráðuneytisins. ÁRNI MAGNÚSSON Félagsmálaráðherra segist binda miklar vonir við vinnuna framundan. ÖSSUR SKARPHÉÐINSSON Össur segir nauðsynlegt að festa í stjórnarskrá að auð- lindin í hafinu sé sameiginleg þjóðareign. BAUGSMÁLI‹ Ákærur I. FJÁRDRÁTTUR Ákærðu Jóni Ásgeiri, Tryggva, Jóhannesi og Kristínu er gefinn að sök fjárdráttur í eftirgreindum tilvikum: 1. Ákærðu Jóni Ásgeiri og Tryggva með því að hafa dregið sér og öðrum samtals kr. 40.073.196,54, á tímabilinu frá 30. apríl 1999 til 11. júní 2002, þegar þeir létu, með vitund og liðsinni meðákærðu Jóhannesar og Kristínar, Baug hf. greiða 34 reikninga sem voru gefnir út af félaginu Nordica Inc. á hendur Baugi hf., samkvæmt fyrirmælum ákærðu Jóns Ásgeirs og Tryggva, vegna af- borgana af lánum, rekstrarkostnaði og öðr- um tilfallandi kostnaði sem tilheyrði skemmtibátnum „Thee Viking“ sem var Baugi hf. óviðkomandi. Bát þennan höfðu ákærðu Jón Ásgeir og Jóhannes keypt í fé- lagi við Jón Gerald Sullenberger, eiganda Nordica Inc., í Miami í Flórída í Bandaríkj- unum, þar sem báturinn var staðsettur og skráður sem eign félags í eigu Jóns Geralds Sullenberger, New Viking Inc., skrásettu í Delaware í Bandaríkjunum. Reikningarnir voru sem hér greinir: [töflur ekki tiltækar] ATHUGASEMDIR SAKBORNINGA: Fyrirtæki Jóns Geralds Sullenbergers [JGS], Nordica, fékk mánaðarlegar greiðslur vegna ráðgjafar og annarrar þjónustu sem JGS veitti Baugi við innkaup og merkingar á vör- um. Þá annaðist JGS flutning varanna til Ís- lands, líkt og kemur fram í texta reikning- anna. Vegna taps á rekstri vöruhúss Nordica voru greiðslurnar nauðsynlegar til fram- færslu JGS og fjölskyldu hans. Þetta kemur fram í gögnum sem aflað var í tengslum við málarekstur í Bandaríkjunum og afhent voru RLS. Meðal þeirra gagna voru bankareikning- ar hans og Nordica. Þar kemur fram að ráð- stöfun hans á þessum fjármunum virðist vera í samræmi við þá lýsingu sem Jón Ásgeir Jó- hannesson [JÁJ] og Tryggvi Jónsson [TJ] hafa gefið. JGS átti umræddan bát einn eins og kemur fram í ákærunni. Hvorki JÁJ persónu- lega né Gaumur eignuðust hlutdeild í honum heldur lánaði Gaumur umtalsverða fjármuni til JGS og Nordica vegna kaupa og reksturs á bátnum. Því er vandséð hvaða auðgunarbrot hafi átt sér stað. Athygli vekur að þar sem RLS telur að hér hafi verið um lögbrot að ræða hefði embættinu skilyrðislaust borið að ákæra JGS fyrir hlutdeild í brotunum. Ítar- lega er gerð grein fyrir þessu í bréfum JÁJ til RLS frá 5. mars 2004 og 30. júní 2005. Rétt er að taka fram að Kristínu og Jóhannesi er ekki gefinn að sök fjárdráttur samkvæmt þessum lið heldur hlutdeild í fjárdrætti, sbr. heim- færslu ákæruvalds til refsiákvæða í ákæru. 2. Ákærðu Jóni Ásgeiri og Jóhannesi með því að hafa dregið sér samtals kr. 441.254,00 á tímabilinu frá 19. apríl 1999 til 17. desember 2002, þegar ákærðu létu Baug hf. greiða til SPRON í eftirtöldum 17 greiðslum þóknun vegna bankaábyrgðar sem ákærðu höfðu stofnað til og var Baugi hf. óviðkomandi, í tengslum við kaup ákærðu og Jóns Geralds Sullenberger á skemmtibát samkvæmt 7. tölulið II. kafla ákæru hér á eftir, svo sem hér greinir: [töflur ekki tiltækar] ATHUGASEMDIR SAKBORNINGA: Árið 1996 gaf Bónus út ábyrgð til handa Nor- dica vegna vöruviðskipta. Umrædd ábyrgð var notuð til tryggingar yfirdráttarláni sem Nordica tók vegna vöruviðskipta samkvæmt gögnum sem aflað var í Bandaríkjunum og RLS hefur í vörslum sínum. Haustið 2003 féll ábyrgðin á Baug en sakborningar telja fráleitt að hún hafi staðið í tengslum við kaup á bát. Ef svo væri hefði einnig átt að ákæra JGS fyrir þessar sakir. Ítarlega er greint frá þessu í bréfi JÁJ 5. mars 2004, svo og í bréfi JÁJ til RLS, dags. 5. júlí 2004. 3. Ákærða Tryggva með því að hafa dregið sér samtals kr. 1.315.861,27 á tímabilinu frá 11. janúar 2000 til 12. febrúar 2002, þegar ákærði lét Baug hf. greiða í 13 skipti reikn- inga sem gefnir voru út í nafni félagsins Nordica Inc. í Bankaríkjunum á hendur Baugi hf., sem voru útgjöld Baugi hf. óvið- komandi. Til útgjaldanna hafði ákærði stofnað til í útlöndum með úttektum á American Express greiðslukorti í reikning hins bandaríska félags, Nordica Inc., sem hið bandaríska félag lagði út fyrir og inn- heimti síðan sem ferðakostnað hjá Baugi hf., samkvæmt fyrirmælum ákærða, sem hér greinir: [töflur ekki tiltækar] ATHUGASEMDIR SAKBORNINGS: Um er að ræða kostnað sem fellur að stórum hluta undir risnu aðstoðarforstjóra. Hefur RLS verið bent á að rannsaka þennan lið betur og ræða m.a. við vitni sem hafa notið risnunn- ar en því hefur ekki verið sinnt. Ekki getur verið um fjárdrátt að ræða þar sem allan auðgunarásetning skorti. 4. Ákærða Tryggva með því að hafa dregið sé samtals kr. 99.605,00 hinn 17. maí 2001, þegar ákærði lét Baug hf. greiða Tollstjór- anum í Reykjavík eftirgreind aðflutnings- gjöld; virðisaukaskatt kr. 72.479,00, vöru- gjald kr. 26.087,00 og toll kr. 1.039,00, sam- tals kr. 99.605,00, þegar hann lét Baug hf., flytja til landsins og tollafgreiða sláttu- vélatraktor af gerðinni Craftsmann, sem ákærði hafði keypt til eigin nota í Banda- ríkjunum, ásamt fylgihlutum, fyrir samtals USD 2.702,97, samkvæmt vörureikningi út- gefnum af Nordica Inc., Miami, Flórída í Bandaríkjunum, dags. 4. apríl 2001 á Baug- Aðföng hf. ATHUGASEMDIR SAKBORNINGS: Vegna mistaka starfsmanna Baugs láðist að innheimta aðflutningsgjöld hjá TJ. TJ hafði rætt við viðkomandi starfsmenn um að þeir gerðu honum reikning vegna gjaldanna og var í þeirri trú að það hefði verið gert og málið væri þannig afgreitt. Ekki getur verið um fjárdrátt að ræða þar sem allan auðgunará- setning skorti. Brot ákærða Jóns Ásgeirs samkvæmt 1. og 2. tölulið ákæru teljast varða við 247. gr. al- mennra hegningarlaga nr. 19,1940. Brot ákærða Tryggva samkvæmt 1., 3. og 4. tölulið ákæru teljast varða við 247. gr. almennra hegningarlaga nr. 19,1940. Brot ákærða Jóhannesar samkvæmt 2. tölulið ákæru teljast varða við 247. gr. al- mennra hegningarlaga nr. 19, 1940 og brot samkvæmt 1. tölulið ákæru við 247. gr., sbr. 22. gr. sömu laga. Brot ákærðu Kristínar samkvæmt 1. tölulið ákæru teljast varða við 247. gr. al- mennra hegningarlaga nr. 19, 1940, sbr. 22. gr. sömu laga. II. UMBOÐSSVIK. Ákærðu Jóni Ásgeiri, Tryggva og Jóhann- esi, eru gefin að sök umboðssvik með því að hafa misnotað aðstöðu sína hjá Baugi hf. í eftirgreindum tilvikum: 5. Ákærðu Jóni Ásgeiri og Tryggva með því að hafa blekkt og misnotað aðstöðu sína sem forstjóri og aðstoðarforstjóri Baugs hf. þegar þeir fengu, með vitund ákærða Jóhannesar sem stjórnarmanns, stjórn þess á stjórnarfundi hinn 20. maí 1999 til þess að heimila ákærða Jóni Ásgeiri að ganga til samninga og að kaupa 70 % hlutafjár í Vöruveltunni hf. Á stjórnarfundinum leyndu ákærðu stjórn hlutafélagsins því að ákærði Jón Ásgeir var þá sjálfur umráð- andi 70 % hlutafjár og átti stærsta hluta þess og var raunverulegur stjórnandi Vöru- veltunnar hf., frá því að hann gerði hinn 7. október 1998 bindandi samning um kaup á öllu hlutafé í Vöruveltunni hf., að nafnverði kr. 4.600.000,00 fyrir kr. 1.150.000.000,00 og með viðbótargreiðslu að fjárhæð kr. 100.000.000,00 samkvæmt viðbótarsamn- ingi ákærða við seljendur sem dagsettur er hinn 5. júní 1999. Baugur hf. eignaðist með viðskiptunum á árinu 1999 70% hlutafjár í Vöruveltunni hf. sem ákærði Jón Ásgeir átti að meginhluta og réði yfir, fyrir kr. 1.037.000.000,00. ATHUGASEMDIR SAKBORNINGA JÁJ gerði samning við samning við seljendur Vöruveltunnar sem umboðsmaður kaupanda, sem skyldi tilgreindur innan 30 daga. Samn- ingurinn fól þannig í sér sölutryggingu fyrir eigendur Vöruveltunnar sem JÁJ var ábyrgur fyrir. Íslandsbanki tók yfir söluferlið og aðrir aðilar komu að málinu, sem voru eigendur 70% hlutafjárins en ekki JÁJ líkt og segir í ákæru. Voru viðskiptin gerð með vitund og samþykki hluthafa Baugs, sem var ekki skráð félag á hlutabréfamarkaði á þeim tíma. Eng- inn auðgunarásetningur var til staðar og fyrir liggur að JÁJ hagnaðist ekkert á þessum við- skiptum. Baugur (í dag Hagar hf.) hefur hins vegar hagnast um 3,5 til 4 milljarða á viðskipt- unum að mati sakborninga. Þessu er nánar lýst í bréfi JÁJ 30. júní 2005. 6. Ákærðu Jóni Ásgeiri og Tryggva með því að hafa misnotað aðstöðu sína, Jón Ásgeir sem forstjóri Baugs hf. og Tryggvi sem að- stoðarforstjóri Baugs hf. og stjórnarformað- ur Fasteignafélagsins Stoða hf., dótturfélags Baugs hf., þegar Fasteignafélagið Stoðir hf. keyptu fasteignir að Suðurlandsbraut 48, Laugalæk 2, Sporhömrum 3, Langarima 21 „ 23 og Efstalandi 26 í Reykjavík, af Litla fast- eignafélaginu ehf., fyrir kr. 354.000.000,00, en í árslok 1998 höfðu ákærðu selt Litla fast- eignafélaginu ehf. eignirnar frá Vöruvelt- unni hf. fyrir kr. 217.000.000,00 með því að einkahlutafélagið yfirtók skuldir Vöru- veltunnar hf., auk greiðslu. – Ákærur birtar Fréttabla›i› birtir í dag ákærur Ríkislög- reglustjóra á hendur Jóni Ásgeiri Jóhann- essyni, Jóhannesi Jónssyni, Kristínu Jó- hannesdóttur, Tryggva Jónssyni, Stefáni Hilmari Hilmarssyni og Önnu fiór›ar- dóttur í Baugsmálinu svonefnda. Ríkislögreglustjóri gaf ákærurnar út flann 1. júlí sí›astli›inn. fiær flokkast í ellefu kafla eftir tegund brota og eru kafl- arnir merktir me› rómverskum tölustöf- um. Alls eru ákærurnar í fjörutíu li›um. Ákærurnar eru birtar í Fréttabla›inu me› vitund og samflykki allra fleirra sem ákær›ir eru í málinu enda eru flær frá fleim komnar. Ákærurnar eru birtar me› athuga- semdum sakborninga, sem allir neita sök í málinu. Athugasemdirnar eru birtar me› ö›ru letri til a›greiningar frá texta Ríkislög- reglustjóra. Fréttabla›i› hefur ekki undir höndum töflur í ákærunum um notkun grei›slukorta og eru flær flví ekki birtar hér. Í Fréttabla›inu í dag eru birt vi›töl vi› tvo af sakborningunum, Jóhannes Jónsson og Jón Ásgeir Jóhannesson. Var fleim og lögfræ›ingum fleirra gefinn kostur á a› lesa vi›tölin yfir. Er fla› frávik frá si›aregl- um Fréttabla›sins um a› vi›mælendur fái ekki vi›töl til yfirlestrar á›ur en flau birtast. Undantekning var ger› í flessu tilfelli vegna umfangs málsins og lög- fræ›ilegra álitamála. fiessi undantekning leiddi ekki til efnislegra breytinga á vi›töl- unum. LAUGARDAGUR 13. ágúst 2005 1 í - l n t n i . m m . n r n . - - - - . 5 - / LÖGREGLUMÁL Tugir lögreglumanna gerðu húsleit í höfuðstöðvum fyr- irtækisins Baugs á miðvikudags- kvöld. Húsleitin var gerð sem hluti rannsóknar efnahagsbrotadeildar ríkislögreglustjóra á meintum lögbrotum Tryggva Jónssonar forstjóra og Jóns Ásgeirs Jóhann- essonar, stjórnarformanns fyrir- tækisins. Rannsóknin fer fram vegna kæru Jóns Geralds Sullen- berger, eiganda bandaríska fyrir- tækisins Nordica Inc. sem átt hef- ur í viðskiptum við Baug. Viðskiptunum fyrirtækjanna mun hafa verið sagt upp af hálfu Baugs. Auk vanefnda á viðskipta- samningi sakar eigandi Nordica Inc. Jón Ágeir og Tryggva um að hafa auðgast með sviksamlegum hætti. Það hafi þeir gert með því að skrifa upp á 33 ranga reikninga sem Nordica gaf út á tímabilinu frá janúar 2000 til loka maí á þessu ári. Féð hafi verið notaðir til kaupa á snekkjunni „Thee Vik- ing“ sem þremenningarnir hafi átt í sameiningu í Flórída þar sem Jón er búsettur. Þá snýst málið um 589.980 dollara reikning sem Jón Gerald segir vera tilbúning. Hann hafi enga greiðslu fengið. Baugur segir þennan reikning ósköp eðlilegan kreditreikning vegna afsláttar. Það hafi efna- hagsbrotadeildinni yfirsést. Baugur kærði í gær aðgerðir lögreglunnar til Héraðsdóms Reykjavíkur og krafðist þess að úrskurðað yrði um lögmæti þess að lagt var hald á gögn og hvernig staðið var að húsleitinni. Fyrir- tækið hefur einnig sagst munu vísa til úrskurði héraðsdóms um veitingu heimildar til húsleitar til Hæstaréttar. Fram kemur í kæru Hreins Loftssonar hrl., lögmanns Baugs, að tugir lögreglumanna hafi tekið þátt í húsleitinni. Hún hafi staðið frá því klukkan 16.45 og til mið- nættis. Hreinn segir aðgerðirnar hafa verið alltof umfangsmiklar og framgöngu lögreglu ámælis- verða. Upplýsingunum sem aflað var hefði mátt ná með vægari að- gerðum. Hreinn segir lögreglu hafa láðst að gefa Baugsmönnum við- hlýtandi skýringu á aðgerðunum eða upplýs þá um rétt til að bera haldlagningu einstakra muna und- ir lögreglu. Lögregla hafi notað tækifærið og lagt hald á viðkvæm gögn sem ekki tengdust málinu. Gróflega væri brotið gegn stjórn- arskrárvörðum rétti manna. Hreinn Pálsson vildi ekki tjá sig nánar um málið að svo stöddu. Hvorki Jón Ásgeir Jóhannesson né Tryggvi Jónsson svöruðu skila- boðum Fréttablaðsins í gær. gar@frettabladid.is HÖFUÐSTÖÐVAR BAUGS Baugur hefur bregst hart við húsleit efnahagsbrotadeildar Ríkislögreglustjóra. Þess er kraf- ist að öllum gögnum sé skilað tafarlaust. Baugur bregst hart við húsleit Lagt var hald á margvísleg gögn við húsleit í höfuðstöðvum Baugs hf. Eigandi bandarísks fyrirtækis sakar tvo stjórnendur Baugs um fjársvik. Illa fengið fé hafi verið notað til að kaupa lystisnekkju. Stjórn Baugs seg- ir húsleitina ólöglega, hefur kært hana og krefst þess að fá gögnin aftur. Frétt Fréttablaðsins 30. ágúst 2002 af húsleit starfsmanna Skattrannsóknarstjóra ríkisins í húsakynnum Baugs. Baugsmálið: Ákærur og vi›brög› DÓMSMÁL Átta síðna umfjöllun um Baugsmálið er að finna í miðju Fréttablaðsins í dag. Þar eru kær- urnar birtar og rætt er við Jón Ás- geir Jóhannesson og Jóhannes Jóns- son. Eastwood-myndin: Var›skip not- u› vi› tökur LANDHELGISGÆSLAN Varðskip verða notuð sem leikmyndir við tökur á Flags of our fathers, mynd Clints Eastwood, næstu daga. Landhelgis- gæslan fær milljón króna á dag fyr- ir leigu skipanna. Framleiðendur myndarinnar óskuðu eftir aðkomu tveggja varð- skipa. Stjórnendur Landhelgisgæsl- unnar samþykktu að leigja Óðinn, sem ekki er notaður nema þegar Ægir og Týr eru í viðgerð, og leggja annað varðskip til þegar önnur verkefni Landhelgisgæslunnar koma ekki í veg fyrir það. Einn yfirmaður hjá Landhelgis- gæslunni er á launaskrá sem ráð- gjafi við gerð myndarinnar - bþg Brotthvarf landnema: Gætu loka› fleiri bygg›um JERÚSALEM, AP Ariel Sharon, forsæt- isráðherra Ísraels, útilokar ekki að landnemabyggðum á Vesturbakkan- um verði lokað, þó ekki þeim stærstu. Ísraelsher flytur í næstu viku landnema af Gaza-ströndinni með valdi. Margir hafa skoðað áætlanir Ariels Sharon um afnám landnema- byggða á Gaza-ströndinni sem lið í því að styrkja slíkar byggðir á Vest- urbakka Jórdanar. Forsætisráð- herrann ræddi þessi mál við Yediot Ahronot-dagblaðið í gær en þar kom fram að fleiri byggðir myndu hugs- anlega bætast í hóp þeirra fjögurra á Vesturbakkanum sem þegar væri búið að ákveða að leggja niður.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.