Fréttablaðið - 13.08.2005, Blaðsíða 26
Farsímar
Mikilvægt er að hafa slökkt á farsímum við flugtak og lendingu því farsím-
ar og annar rafeindabúnaður geta auðveldlega truflað stjórntæki vélarinn-
ar. Best er að hafa slökkt á símanum þar til komið er út úr vélinni.[ ]
Á kláfi í náttúruperluna Kringilsárrana
Sigurpáll í kláfnum, ásamt Sæunni, 8 ára dóttur sinni, og öðrum ferðalangi.
Nýlega var settur upp kláfur
við Kringilsá, sem fellur í Jök-
ulsá á Dal. Hann auðveldar
aðgengi að hinum magnaða
Kringilsrárrana. Fyrirtækið
Augnablik stendur fyrir fjög-
urra daga trússferðum þang-
að og Sigurpáll Ingibergsson
fór í eina slíka.
„Þetta er eins og að taka að
minnsta kosti tvær einingar í nátt-
úrufræði á einu bretti því þarna
mætist svo margt,“ segir Sigur-
páll þegar hann er beðinn að lýsa í
fáum orðum Kringilsárrana, sem
er náttúruperla við norðanverðan
Vatnajökul. Hann nefnir þrjú at-
riði sem hann segir einstök.
Stefnumót við hreindýrahjarðir,
Hraukana sem urðu til við fram-
skrið Brúarjökuls um 1890 og set-
lögin sem sumir kalla handritin.
„Svo hefur maður allan Vatnajök-
ul í bakgrunni frá Grendli til
Kverkfjalla og Snæfellið í ná-
grenninu,“ bendir hann á.
Sigurpáll var í 36 manna hópi
fólks á öllum aldri og enginn
þurfti að bera annað en nesti og
föt til dagsins. Fólk var vakið með
ljúfum söng og Augnablik lagði til
allan mat. „Fyrsta dag var gengið
upp með Jökulsá í Fljótsdal en þar
eru fimmtán fossar sem verða
þurrkaðir upp að minnsta kosti
part úr árinu þegar búið verður að
virkja. „Dagurinn var svolítið
stífur en það var frábært veður.
Þegar við komum undir Snæfellið
var þar þó hávaðarok því þar
myndast oft staðbundnar lægðir,“
lýsir Sigurpáll og heldur áfram.
„Á öðrum degi var gengið með-
fram Jökulsá á Brú og upp með
Kringilsá að Töfrafossi, þar sem
tjaldað var til tveggja nátta.
Þriðja daginn var farið yfir
Kringilsá í þessum frábæra kláfi
sem nýlega var settur upp af fé-
lagi um verndun hálendis Austur-
lands. Þetta er traust mannvirki
og það höfðu allir voða gaman af
þessu. Svolítið eins og að fara í
rússibana því það er mikill kraft-
ur í ánni. Í Kringilsárrana rák-
umst við á stóra hjörð hreindýra
og gátum komist nærri þeim en
síðan skokkuðu þau bak við hæð.
Þó sáum við í hornin á þeim en
þau áttuðu sig ekki á því.“ Sigur-
páll tekur skýrt fram að fara
verði um svæðið með gát enda sé
það friðland hreindýra og heiða-
gæsa. „Fólk verður að vera í
skipulögðum hópferðum og á
ákveðnum tímum. En þarna er
margt sem maður upplifir á til-
tölulega litlum punkti.“
Þess má geta að Augnablik er
með aukaferð í Kringilsárrana
18.-21. ágúst og það er trússferð.
gun@frettabladid.is
Hason Raja er sérstaklega góður veitingastaður rétt
við Russell Square í London.
Í London er aragrúi af indverskum veitingastöðum og nokk-
uð víst að maturinn þar er oftast góður. Einn þeirra er að
finna á Southampton Row, rétt við Russell Square, og er einn
þeirra sem skara fram úr. Hann heitir Hason Raja og sér-
hæfir sig í mat frá Bangladess og Indlandi. Úrvalið er þar
feikigott af góðum karrí- og tandoori-réttum og á matseðlin-
um eru meðal annars réttir sem sérstaklega er ætlað að
kynna tandoori-rétti. Þjónustan er óaðfinnanleg og umhverf-
ið mjög huggulegt. Veitingastaðurinn er fjarri því að vera
dýr og fær maður mikið fyrir peningana. Réttirnir eru hver
öðrum girnilegri en sérstaklega er mælt með Garlic Mugh
Tawa,Ýsem staðurinn sérhæfir sig í. Það er kjúklingur eld-
aður með tómötum og grænni papriku ásamt hvítlauk og
engifer.
Staðurinn er í nokkurra mínútna göngu frá King's Cross-
lestarstöðinni, en nákvæma staðsetningu er hægt að sjá á
www.hasonraja.co.uk. Þar er einnig hægt að skoða matseðil-
inn og panta borð. ■
Góður indverskur staður
Á veitingastaðnum Hason Raja í London er hægt að fá
öðruvísi og góða indverska rétti.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/G
ET
TY
Fararstjórarnir Ásta Arnardóttir og Ósk Vilhjálmsdóttir í viðtali í heimildarmynd sem tekin
var í ferðinni. Hálsalón mun ná í hælana á þeim. Hluti af Hraukunum fer því í kaf, sem
og Sethjallarnir sem eru í baksýn og sumir kalla handritin.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/S
IG
U
R
PÁ
LL
I
N
G
IB
ER
G
SS
O
N
Töfrafoss í Kringilsá.