Fréttablaðið - 13.08.2005, Blaðsíða 80
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 550 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 550 5005, fax: 550 5006, ritstjorn@frettabladid.is
DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 550 5000
ÍSKALDUR
EINN LÉTTUR
Málum bæinn
RAUÐAN!
SVENNING
skrifstofustóll 2.950,-
Laugardaga kl. 10:00 - 18:00 | Sunnudaga kl. 12:00 - 18:00 | Mánudaga - föstudaga kl. 10:00 - 18:30 | www.IKEA.is
Skóladagar
50 02 .V .B s
met sy S
AEKI re tn I
©
MIKAEL
hornvinnustöð eik
5.950,-
290,-
Barnakjötbollur
TERTIAL
vinnulampi 590,-
ROBIN tölvuborð blátt
SNAJDA vekjaraklukka
75,-
590,-
190,-
DIDRIK
tölvuhirsla 1.290,-
LINGO BLOMMA
tímaritahirslur 5 stk. 250,-
MACKIS ritfangahirsla
FNISS ruslafata
890,-
14.900,-
110x60 sm
KASSET
kassi með loki ýmsir litir
890,-37x29x17 sm
120x120x166 sm
34x16x17 sm
Græjur fyrir
góða námsmenn.Hringur
Mér telst svo til að þeir séu orðniræði margir í gegnum tíðina sem
hafa freistað þess að safna fjársumm-
um til góðra málefna með því að fara
hringinn í kringum landið á alls konar
mismunandi vegu. Reynir Pétur gekk,
annar bakkaði bíl sínum hér um árið
og bara núna í sumar hefur einn
hjólað, annar róið, tveir – annar haltur
og hinn blindur – gengið og gott ef
einhver sýndi ekki tilburði til þess að
synda hringinn, sem yrði nýbreytni.
ÉG segir bara Guði sé lof, út af öll-
um söfnunum til líknarmála, að land-
ið skuli vera hringur. Lítum bara á
land eins og Chile sem er eiginlega
bara ein strandlengja og langur fjall-
garður niður eftir vestanverðri Suð-
ur-Ameríku. Ekki safna menn miklu
þar með því að ganga í hring. Hvað
hring? Landið er strik og ef menn
ætla að safna þar einhverju þurfa
menn að byrja á einum stað og enda
annars staðar, sem er ekki næstum
því eins flott og hér, eða ganga fram
og til baka, sem er frekar bjánalegt.
ÞETTA er auðvitað hið besta mál og
gaman að alltaf skuli vera hægt að
grípa til hringsins til þess að safna
fé, en ég hef samt örlitlar
áhyggjur af því – þótt ekki missi ég
svefn af þeim sökum – að þessar
hringferðir allar í þágu góðra mál-
efna lýsi fremur bágu ímyndunarafli
þjóðarinnar þegar kemur að söfn-
unarátökum. Steingrímur J. Sigfús-
son fær prik fyrir að hafa brotið
þetta mynstur upp göngulega séð, en
hann gekk þvert yfir landið á dög-
unum, frá Reykjanestá að Langanesi,
og þótt svo Steingrímur hafi ekki
safnað neinu fé í þágu eins eða neins
á þessari göngu, að þá getur samt
verið að þessi nýja gönguleið kveiki
hugmyndir hjá öðrum um að hægt sé
að safna fé öðruvísi en að ganga í
hring.
EN auðvitað, ef menn ætla að ganga
þvert yfir, þá verða menn að gæta
þess að vera með far til baka, því
ekki viljum við að allir helstu hug-
sjónamenn þjóðarinnar og velgjörð-
armenn líknarsamtaka verði
strandaglópar á Langanesi til þess
eins að þurfa síðan aðstoð líknar-
samtaka sjálfir um lengri eða
skemmri hríð út af vosbúð.
Í ANNAN stað er ég alveg viss um
að lögreglan er hæstánægð með
þennan almenna skort á ímyndunar-
afli, því samkvæmt nýjustu tíðind-
um er augljóst að lögreglan vill
helst ekki að menn fari mikið út fyr-
ir hringinn þegar kemur að því sýna
borgaralega virkni. Vissulega er
söfnun til líknarmála eitt og mót-
mæli annað, en bæði er þó dæmi um
það að almennir borgarar láti til sín
taka, í sér heyra, og freisti þess að
vekja fólk til umhugsunar og jafn-
vel stuðla að breyttu samfélagi.
EKKI verður betur séð, samkvæmt
lögreglunni, en að mótmælendur
Kárahnjúkavirkjunar ættu líka að
halda sig við það að ganga, hjóla,
synda eða keyra hringinn afturábak
til þess að vekja athygli á málstað
sínum og láta þar við sitja. Þeim
sem fara út fyrir hringinn er veitt
eftirför af lögreglu og ef þeir eru
útlenskir er þeim helst vísað úr
landi. Dálítið eins og í Chile einu
sinni, þó svo Chile sé reyndar strik,
eins og áður kom fram, en Ísland
hringur.
BAKÞANKAR
GUÐMUNDAR
STEINGRÍMSSONAR