Fréttablaðið - 13.08.2005, Blaðsíða 78
Stór
humar
Risarækjurnar komnar
Að leika í Flags of Our Fathers Slæm laun eru al-gjört aukaatriði þegar manni býðst að leika í stór-
mynd eftir Clint Eastwood. Og þó svo að viðkomandi
sjáist jafnvel aldrei í mynd er það ekkert slæmt því
reynslan af myndatökunum með Clint og co. hlýtur að
vera gulls ígildi. Það er ekki amalegt að geta sagt
barnabörnunum í framtíðinni að maður hafi tekið þátt í
gerð Flags of Our Fathers.
Haustferðir Sífellt fleiri geyma ferðalögtil útlanda til haustsins. Þannig nýtist
íslenska sumarið best og þegar haustið
skellur á með tilheyrandi myrkri, veðri, og
skólaþunglyndi er ljúft að skella sér í
skreppitúr til Evrópu eða jafnvel til Banda-
ríkjanna. Haustferðir
eru málið í dag.
Svart Þó að svarti liturinn hafi alltaf verið kúl erhann að koma enn sterkar inn aftur. Svartur fatnað-
ur og fylgihlutir verða möst í haust og vetur og jafnvel
núna í andarslitrum sumarsins er hressandi að vera í
svörtu.
Að mæta seint á djammið Loksins, loksins eru Reykvík-ingar farnir að mæta fyrr á djammið. Nú vill fólk njóta
þess að sýna sig og sjá aðra þegar staðirnir eru ekki of
fullir. Minna af kvöldinu fer í bið eftir því að fara í bæinn
þegar fólk mætir klukkan eitt en ekki klukkan þrjú og
þannig nýtist nóttin líka betur í svefn. Eini gallinn við þetta
trend er að leigubílaröðin í bænum um hálf fjögur leytið
er risavaxin því svo margir fara heim á sama tíma.
Sandalar Við verðum að sætta okkur við þaðað það er farið að kólna og myrkrið skellur á
mun fyrr en í sumar. Það er ekki inni lengur að vera of
sumarlegur, í ljósum fötum og sandölum, því hausttískan
með sínum dökku tónum og hlýrri skófatnaði er farin að
láta á sér kræla.
Tjaldútilegur Verslunarmannahelgin var síðastiséns til að fara í tjaldútilegu. Nú býður veðrið og
myrkrið síður upp á góða útilegu og flestir líka farnir
að hugsa um skólann eða vinnuna í haust og
komnir úr stuði fyrir næturlanga útiveru. Hætta er á
að útileguglaðir einstaklingar í lok ágúst verði
stimplaðir örvæntingafullir djammfíklar.
INNI ÚTI
46 13. ágúst 2005 LAUGARDAGUR
Kvikmyndatökumaðurinn Óttar
Guðnason er svo sannarlega á
uppleið í kvikmyndaheiminum.
Nýverið lauk hann vinnu sinni við
myndina A Little Trip to Heaven í
leikstjórn Baltasars Kormáks og í
fyrradag hóf hann störf við stór-
mynd Clints Eastwood, Flags of
Our Fathers, sem er tekin upp hér
á landi.
Óttar verður á svokallaðari „C-
Cameru í Main Unit“ hjá East-
wood sem þýðir að hann verður í
nánu samstarfi við goðsögnina við
tökurnar sem hluti af aðalkvik-
myndatökuhópnum. „Það er virki-
lega gaman að fá að taka þátt í
þessu og hitta hann,“ segir hinn 31
árs gamli Óttar, sem hóf feril sinn
sem myndatökumaður á Stöð 2 að-
eins átján ára. „Ég er sérstaklega
hrifinn af tökumanninum Tom
Stern. Hann hefur unnið að mynd-
um Eastwood á borð við Mystic
River og Million Dollar Baby.
Hann er líka frábær ljósamaður
sem meðal annars vann við Road
to Perdition og American Beauty.
Þetta verður mjög spennandi og
gaman að sjá hvernig Eastwood
vinnur, því ég er búinn að heyra
mikið um hann.“
Eftir að Óttar hafði starfað í
þrjú ár á Stöð 2 færði hann sig um
set til Saga Film og var þar í
fjögur ár. Eftir það hóf hann sam-
starf með leikstjóranum Ágústi
Baldurssyni og undanfarin tíu ár
hafa þeir gert fjölmargar auglýs-
ingar bæði í Bandaríkjunum og
Evrópu, m.a. fyrir Crysler, Sony
PlayStation og Jagúar. Óttar hefur
búið í Bandaríkjunum undanfarin
fimm ár og á þeim tíma hefur
hann komið sér upp góðum sam-
böndum og jafnframt náð að
sanna sig svo um munar í faginu.
Þegar Óttar fékk boð um að
taka upp myndina A Little Trip to
Heaven með stjörnum á borð við
Forest Whitaker og Juliu Stiles í
aðalhlutverkum þurfti hann ekki
að hugsa sig tvisvar um. „Þetta
var mjög gaman og þegar við
byrjuðum tökurnar klappaði Balti
mér á öxlina og sagði að það væri
ekki slæmt að byrja bíómyndafer-
ilinn á að taka upp með Whitaker
og Stiles. Við hlógum mikið að
þessu,“ segir Óttar.
Eftir að tökum á Eastwood-
myndinni lýkur er ljóst að Óttari
eru allir vegir færir í kvikmynda-
bransanum. Reyndar hefur Óttar
þegar unnið náið með hollenska
leikstjóranum Jan de Bont sem
gerði myndirnar Speed, Twister
og Lara Croft Tomb Raider: The
Cradle of Life. Þeir hafa tekið upp
fjölda auglýsinga undanfarin tvö
ár og hafa nýlokið við eina stóra
fyrir Chevrolet. Bont hefur ekki
leikstýrt kvikmynd síðan hann
gerði Lara Croft en tökur á nýrri
hasarmynd Meg fer í framleiðslu
á næsta ári og hver veit nema
Óttar verði honum þar til halds og
trausts.
freyr@frettabladid.is
VIÐ TÖKUR Óttar Guðnason á framtíðina fyrir sér í kvikmyndabransanum. Hann mun vinna náið með Clint Eastwood við tökur á Flags of Our Fathers.
ÓTTAR GUÐNASON: TEKUR UPP FLAGS OF OUR FATHERS
Gaman að sjá hvernig Eastwood vinnur
...fær Thor Vilhjálmsson rithöf-
undur, sem náði áttræðisaldrin-
um í gær, fyrir að stunda júdó og
hafa það að lífsviðhorfi að láta
aldurinn ekki aftra sér.
HRÓSIÐ
Hundarnir í Tasiilaq eru hálfgerð-
ir úlfar. Harðgerir sleðahundar
sem eru einnig notaðir á ísbjarna-
veiðum. Þeir eru hlekkjaðir úti um
allan bæ og það hvarflar stundum
að manni að það hljóti að búa fleiri
hundar en menn í bænum.
Grænlendingar verða seint
sakaðir um að vera góðir við
blessuð dýrin enda eru gælur og
dekur ekki réttu meðulin þegar
verið er að ala upp villidýr. Hund-
unum er gefið að éta einu sinni í
viku á sumrin og þannig er þeim
haldið blóðþyrstum og grimmum.
Skepnurnar eru því vitaskuld
sísvangar og spangóla nokkrar
hunguraríur á dag þannig að undir
tekur í hæðunum í kring. Það
skapast alltaf svolítið geggjuð
stemning þegar gólin byrja og
maður getur hæglega ímyndað sér
að maður sé staddur í villta vestr-
inu umkringdur sléttuúlfum eða
að maður sé boðsgestur hjá Dra-
kúla greifa sem býður manni að
hlusta á aftantónleika barna næt-
urinnar. Grænlensku hundarnir
eru náskyldir úlfum og því óhjá-
kvæmilega býsna tignarlegar og
fallegar skepnur þannig að það
þarf engan að undra þó að við, vit-
lausu Íslendingarnir, freistumst
til þess að læðast út í myrkrið og
fóðra dýrin á pylsum úr kaupfé-
laginu. Þetta er vitaskuld í algerri
óþökk eigendanna sem þurfa þó
varla að hafa miklar áhyggjur af
því að við reynum að spilla upp-
eldinu fyrir þeim eftir ævintýri
liðinnar nætur. Úlfastóðið sem
heldur til við herbergisgluggann
minn bókstaflega sturlaðist þegar
fyrstu pylsubitarnir svifu yfir
höfðum þeirra og önnur eins læti
og djöfulgang hefur undirritaður
aldrei heyrt, hvorki fyrr né síðar.
Einn hundurinn er auðvitað aðal,
langstærstur og flottastur. Hann
pissar alltaf ef maður kemur of
nálægt bara svona til að það sé á
hreinu hver eigi svæðið. Hann
fékk alla bestu bitana og hinir
lúffuðu hiklaust fyrir honum en
þegar minni gaurarnir fóru að
berjast um restirnar runnu á
mann tvær grímur. Það var allt út-
lit fyrir það að þeir væru tilbúnir
að drepa fyrir rúsínulausa pylsu-
enda og heilu gengin réðust á þá
sem kræktu í bita og rifu þá með
ofbeldi út úr skoltunum á þeim.
Þarna gerðum við okkur grein fyr-
ir því að við myndum ekki bylta
hundalífinu í Tasiilaq og að senni-
lega væri betra að gera ekkert þar
sem við hefðum aldrei nóg fyrir
alla. Rússneska byltingin í hnot-
skurn?
REISUBÓKARBROT
ÞÓRARINN ÞÓRARINSSON ER Á SKÁKHÁTÍÐ HRÓKSINS Á GRÆNLANDI.
Börn næturinnar í Tasiilaq
1
6 7
98
10
12 13
1514
16
18
17
11
2 3 4 5
Lárétt: 1 fögur, 6 þvottaefni, 7 slá, 8
sólguð, 9 forfaðir, 10 hlass, 12 skel, 14
kvíði, 15 varðandi, 16 til, 17 snák, 18
málning.
Lóðrétt: 1 gamall, 2 leiða, 3 endir + k, 4
torveldur, 5 lít, 9 keyra, 11 fiskur, 13 for-
móðir, 14 herbergi, 17 byrði.
Lausn
Lárétt:1falleg,6omo,7rá,8ra,9afi,
10æki,12aða,14sút,15um,16að,17
orm,18lakk.
Lóðrétt:1forn,2ama,3lo,4erfiður, 4
gái,9aka,11lúða,13amma,14sal,17
okt
550 5000
AUGLÝSINGASÍMI