Fréttablaðið - 13.08.2005, Blaðsíða 22

Fréttablaðið - 13.08.2005, Blaðsíða 22
22 13. ágúst 2005 LAUGARDAGUR Íslam og Ísland lofsungi› í Ármúlanum Fjölmenningarsamfélagi› Ísland á sér ‡msa kima sem eiga fátt skylt vi› bláeyg›u og skolhær›u ímynd flessarar fljó›ar sem oft vill láta í ve›ri vaka a› hún sé alin á súrmeti og fiski. Félag múslima á Íslandi sk‡tur skökku vi› flessa ímynd en bænastundirnar sem fla› stendur fyrir á hverjum föstudegi eru yfirleitt fjölmennari en flestar kirkjusamkomur landsins á venjulegum sunnudegi. Eins og þú sérð þá erum viðekki að smíða kjarnorku-vopn hérna,“ segir Salmann Tamimi, formaður Félags múslima á Íslandi, hlæjandi með- an hann leiðir blaðamann um að- setur félagsins í Ármúla, þar sem staðið er fyrir bænastundum á hverjum föstudegi. Hann segist ekki merkja neina fordóma í Ís- lendingum í garð múslima eftir 11. september en hann segir þó fjölmiðla, innlenda sem erlenda, oft lenda í þeirri gildru að dæma alla múslima eftir verkum örfárra einstaklinga. Salmann telur að múslimar á Íslandi séu á bilinu sjö hundruð til þúsund talsins og fari sífellt fjölg- andi. „Við erum ekki í neinu trú- boði,“ segir hann. „Reyndar lítum við á það sem hlutverk okkar að upplýsa Íslendinga um íslam en hver og einn verður svo að gera það sem hugur og hjarta segir honum. Um það bil hundrað Ís- lendingar hafa gerst múslimar og þeim fer fjölgandi.“ Hann segir að allnokkrir hafi lesið sig til sjálfir um Íslam og tekið trú í framhaldi af því. Aðrir hafi tekið trú maka síns þegar þeir hafi gifst múslima og enn aðrir hafi lagt krossinum fyrir hálfmánan eftir að hafa kynnst trúnni í gegnum vini erlendis. „Í rauninni er meirihluti fé- lagsmanna Íslendingar,“ segir Salmann, „en þá teljum við líka með þá araba sem hafa tekið ís- lenskan ríkisborgararétt.“ Formaðurinn segir félagið verða að bregðast við þessari þró- un og nú liggur á borði fram- kvæmdasviðs Reykjavíkurborgar umsókn þess um lóð þar sem moska félagsins mætti standa og leysa bænahúsið í Ármúlanum af. Hann vonast til þess að moskan verði risin innan þriggja ára. Bóndinn fær ekki að giftast annarri Þrjátíu og fjórir tilbiðjendur voru við bænahaldið þegar blaðamann bar að garði. Þar á meðal voru fjórar konur og ein þeirra var Sigrún Valsdóttir en hún gerðist múslimi fyrir sex árum og þylur nú heilu kaflana úr kóraninum á arabísku án þess að vefjast tunga um tönn. „Ég kynntist íslam í gegnum vini þegar ég var að læra í Banda- ríkjunum,“ segir hún. „Svo fór ég að lesa mér til og þá fannst mér sem ég hefði fundið það sem ég hafði alltaf verið að leita að. Það kom mér afskaplega mikið á óvart hvað íslam er falleg trú og hvað mikill friður er í henni.“ Sigrún býr í Kaíró ásamt eg- ypskum eiginmanni sínum en er nú í faðmi fósturlandsins í fríi. Blaðamanni lék forvitni á að vita hvort ekki kæmi til togstreitu hjá þeim þar sem íslenskar og svo ís- lamskar hefðir tækjust á. Hvað um til dæmis ef hann giftist nú annarri konu sem trúin heimilar honum að gera? „Þótt fjölkvæni sé til í íslam er það frekar sjald- gæft orðið, enda að mörgu leyti vandasamt nú á tímum. Ég gerði hins vegar samkomulag við minn mann um að ég myndi ekki líða að hann giftist annarri og þar með var það afgreitt,“ segir hún. Klökknar við manngæsku fólksins hér á landi Aziz Naíli er Íslendingur af al- sírskum uppruna en hann er hinn ánægðasti með þessa norrænu landa sína sem hann telur ekki svo ólíka Alsíringum. „Það er mjög mikil samheldni hérna, allir eru tilbúnir að hjálpa náunganum með öllum möguleg- um hætti; ég er alinn upp við slík- an hugsunarhátt eins og flestir múslimar svo þetta kemur sér vel. Í gegnum íslenska bændur hef ég svo kynnst því að virðing manna hér fyrir náttúrunni og gjöfum hennar eru nær sam- tvinnuð innræti þeirra, eitthvað sem ég þekki frá mínum bernsku- slóðum. Hér borða menn einnig nær allt sem af sauðkindinni kemur og þar er eitt dæmið enn um hve margt er sameiginlegt með þessum þjóðum. Kannski er þetta ekki svo skrítið í ljósi þess að fjölmargar konur voru teknar hér á landi í Tyrkjaráninu svo- kallaða og þær hafa lagt sitt að mörkum í Alsír svo kannski eru þjóðirnar ekki svo óskyldar,“ segir Aziz hlæjandi. „Ég ber mikla virðingu fyrir fólkinu hér. Ég er til dæmis að vinna á leikskóla með svo dásam- legu fólki að ég er fullur þakklæt- is að hafa kynnst því. Það kemur mér sífellt á óvart með gæsku sinni, til dæmis passar það sér- lega upp á að trufla mig ekki með- an ég þýt í bakherbergi til að fara með bænirnar. Þau skilja í raun- inni ekki hvað ég er að gera en virða það samt og við slíkri mann- gæsku klökkna ég bara en þetta er reynsla mín af fólkinu hér og ég þakka Allah fyrir það.“ Ísland og íslam Allt virtist renna saman í þessari bænastund. Út um gluggann sáust bílar og fólk á ferli í önnum íslenska hversdagsins. Arabíska hljómaði sungin og sögð frá ein- beittum biðjendum af fjölmörg- um þjóðernum. Inni á milli voru svo krakkar, múslimar sem og kristnir sem horfðu forvitnir á en voru fljótir að bregða á leik þegar bænahaldi var lokið. Blaðamaður ætlaði sér að spyrja frekar um togstreitu ís- lenskra og íslamskra siða og hefða en svo rann allt í fjöl- menningarlega heild. jse@frettabladid.is FR ÉT TA B LA Ð IÐ /V IL H EL M G U N N AR SS O N AZIZ NAÍLI Aziz lýkur við bænir sínar. Hann mætir miklum skilningi vinnufélaga sinna sem stundum þurfa að hafa hann afsakaðan meðan hann leggst á bæn. SALMANN TAMIMI Salmann sagði í ræðu sinni að íslam væri trú friðar og um- burðarlyndis. Hann segir Íslendinga ekki fordómafulla í garð múslima. SIGRÚN VALSDÓTTIR Sigrún þylur kór- aninn á arabísku utanbókar og virðist ekki eiga í miklum vanda með að samtvinna ís- lenska innrætið og íslömsku trúna. 2 fyrir 1 til Alicante 17. eða 24. ágúst frá kr. 19.990 Nú getur þú tryggt þér síðustu sætin í sólina við Alicante á hreint ótrúlegum kjörum. Þú bókar 2 sæti en greiðir bara fyrir 1. Úrval gistimöguleika á Benidorm í boði. Síðustu sætin 19.990 Flugsæti með sköttum báðar leiðir. Netverð á mann. BÆNAHALD Í ÁRMÚLA Ungur drengur fylgist með bænahaldinu. Salmann er fremstur en hann fór fyrir bænahópnum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.