Fréttablaðið - 13.08.2005, Side 22
22 13. ágúst 2005 LAUGARDAGUR
Íslam og Ísland lofsungi› í Ármúlanum
Fjölmenningarsamfélagi› Ísland á sér ‡msa kima sem eiga fátt skylt vi› bláeyg›u og skolhær›u ímynd flessarar fljó›ar sem oft vill láta í
ve›ri vaka a› hún sé alin á súrmeti og fiski. Félag múslima á Íslandi sk‡tur skökku vi› flessa ímynd en bænastundirnar sem fla› stendur
fyrir á hverjum föstudegi eru yfirleitt fjölmennari en flestar kirkjusamkomur landsins á venjulegum sunnudegi.
Eins og þú sérð þá erum viðekki að smíða kjarnorku-vopn hérna,“ segir Salmann
Tamimi, formaður Félags
múslima á Íslandi, hlæjandi með-
an hann leiðir blaðamann um að-
setur félagsins í Ármúla, þar sem
staðið er fyrir bænastundum á
hverjum föstudegi. Hann segist
ekki merkja neina fordóma í Ís-
lendingum í garð múslima eftir
11. september en hann segir þó
fjölmiðla, innlenda sem erlenda,
oft lenda í þeirri gildru að dæma
alla múslima eftir verkum örfárra
einstaklinga.
Salmann telur að múslimar á
Íslandi séu á bilinu sjö hundruð til
þúsund talsins og fari sífellt fjölg-
andi. „Við erum ekki í neinu trú-
boði,“ segir hann. „Reyndar lítum
við á það sem hlutverk okkar að
upplýsa Íslendinga um íslam en
hver og einn verður svo að gera
það sem hugur og hjarta segir
honum. Um það bil hundrað Ís-
lendingar hafa gerst múslimar og
þeim fer fjölgandi.“
Hann segir að allnokkrir hafi
lesið sig til sjálfir um Íslam og
tekið trú í framhaldi af því. Aðrir
hafi tekið trú maka síns þegar
þeir hafi gifst múslima og enn
aðrir hafi lagt krossinum fyrir
hálfmánan eftir að hafa kynnst
trúnni í gegnum vini erlendis.
„Í rauninni er meirihluti fé-
lagsmanna Íslendingar,“ segir
Salmann, „en þá teljum við líka
með þá araba sem hafa tekið ís-
lenskan ríkisborgararétt.“
Formaðurinn segir félagið
verða að bregðast við þessari þró-
un og nú liggur á borði fram-
kvæmdasviðs Reykjavíkurborgar
umsókn þess um lóð þar sem
moska félagsins mætti standa og
leysa bænahúsið í Ármúlanum af.
Hann vonast til þess að moskan
verði risin innan þriggja ára.
Bóndinn fær ekki að giftast
annarri
Þrjátíu og fjórir tilbiðjendur voru
við bænahaldið þegar blaðamann
bar að garði. Þar á meðal voru
fjórar konur og ein þeirra var
Sigrún Valsdóttir en hún gerðist
múslimi fyrir sex árum og þylur
nú heilu kaflana úr kóraninum á
arabísku án þess að vefjast tunga
um tönn.
„Ég kynntist íslam í gegnum
vini þegar ég var að læra í Banda-
ríkjunum,“ segir hún. „Svo fór ég
að lesa mér til og þá fannst mér
sem ég hefði fundið það sem ég
hafði alltaf verið að leita að. Það
kom mér afskaplega mikið á
óvart hvað íslam er falleg trú og
hvað mikill friður er í henni.“
Sigrún býr í Kaíró ásamt eg-
ypskum eiginmanni sínum en er
nú í faðmi fósturlandsins í fríi.
Blaðamanni lék forvitni á að vita
hvort ekki kæmi til togstreitu hjá
þeim þar sem íslenskar og svo ís-
lamskar hefðir tækjust á. Hvað
um til dæmis ef hann giftist nú
annarri konu sem trúin heimilar
honum að gera? „Þótt fjölkvæni
sé til í íslam er það frekar sjald-
gæft orðið, enda að mörgu leyti
vandasamt nú á tímum. Ég gerði
hins vegar samkomulag við minn
mann um að ég myndi ekki líða að
hann giftist annarri og þar með
var það afgreitt,“ segir hún.
Klökknar við manngæsku
fólksins hér á landi
Aziz Naíli er Íslendingur af al-
sírskum uppruna en hann er hinn
ánægðasti með þessa norrænu
landa sína sem hann telur ekki
svo ólíka Alsíringum.
„Það er mjög mikil samheldni
hérna, allir eru tilbúnir að hjálpa
náunganum með öllum möguleg-
um hætti; ég er alinn upp við slík-
an hugsunarhátt eins og flestir
múslimar svo þetta kemur sér
vel. Í gegnum íslenska bændur
hef ég svo kynnst því að virðing
manna hér fyrir náttúrunni og
gjöfum hennar eru nær sam-
tvinnuð innræti þeirra, eitthvað
sem ég þekki frá mínum bernsku-
slóðum. Hér borða menn einnig
nær allt sem af sauðkindinni
kemur og þar er eitt dæmið enn
um hve margt er sameiginlegt
með þessum þjóðum. Kannski er
þetta ekki svo skrítið í ljósi þess
að fjölmargar konur voru teknar
hér á landi í Tyrkjaráninu svo-
kallaða og þær hafa lagt sitt að
mörkum í Alsír svo kannski eru
þjóðirnar ekki svo óskyldar,“
segir Aziz hlæjandi.
„Ég ber mikla virðingu fyrir
fólkinu hér. Ég er til dæmis að
vinna á leikskóla með svo dásam-
legu fólki að ég er fullur þakklæt-
is að hafa kynnst því. Það kemur
mér sífellt á óvart með gæsku
sinni, til dæmis passar það sér-
lega upp á að trufla mig ekki með-
an ég þýt í bakherbergi til að fara
með bænirnar. Þau skilja í raun-
inni ekki hvað ég er að gera en
virða það samt og við slíkri mann-
gæsku klökkna ég bara en þetta
er reynsla mín af fólkinu hér og
ég þakka Allah fyrir það.“
Ísland og íslam
Allt virtist renna saman í þessari
bænastund. Út um gluggann
sáust bílar og fólk á ferli í önnum
íslenska hversdagsins. Arabíska
hljómaði sungin og sögð frá ein-
beittum biðjendum af fjölmörg-
um þjóðernum. Inni á milli voru
svo krakkar, múslimar sem og
kristnir sem horfðu forvitnir á en
voru fljótir að bregða á leik þegar
bænahaldi var lokið.
Blaðamaður ætlaði sér að
spyrja frekar um togstreitu ís-
lenskra og íslamskra siða og
hefða en svo rann allt í fjöl-
menningarlega heild.
jse@frettabladid.is
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M
G
U
N
N
AR
SS
O
N
AZIZ NAÍLI Aziz lýkur við bænir sínar.
Hann mætir miklum skilningi vinnufélaga
sinna sem stundum þurfa að hafa hann
afsakaðan meðan hann leggst á bæn.
SALMANN TAMIMI Salmann sagði í
ræðu sinni að íslam væri trú friðar og um-
burðarlyndis. Hann segir Íslendinga ekki
fordómafulla í garð múslima.
SIGRÚN VALSDÓTTIR Sigrún þylur kór-
aninn á arabísku utanbókar og virðist ekki
eiga í miklum vanda með að samtvinna ís-
lenska innrætið og íslömsku trúna.
2 fyrir 1
til Alicante
17. eða 24. ágúst frá kr. 19.990
Nú getur þú tryggt þér síðustu
sætin í sólina við Alicante á hreint
ótrúlegum kjörum. Þú bókar 2 sæti
en greiðir bara fyrir 1. Úrval
gistimöguleika á Benidorm í boði.
Síðustu sætin
19.990
Flugsæti með sköttum báðar
leiðir. Netverð á mann.
BÆNAHALD Í ÁRMÚLA
Ungur drengur fylgist með
bænahaldinu. Salmann er
fremstur en hann fór fyrir
bænahópnum.